Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 66

Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 66
Up p á h a l d s s t a ð u r inn minn á þess-ari jörðu er Ísland. Ég er algjörlega heilluð af landinu og íslenskri nátt- úru,“ segir Sierra Blair-Coyle, atvinnumaður í klifri. Sierra er ein sú færasta í greininni og ferðast um heiminn allt árið um kring til þess að taka þátt á mótum og upplifa fjölbreytni klifurmenningarinnar. Hún kom hingað til lands með móður sinni í lok síðasta mánaðar eftir að hafa tekið þátt á heims- meistaramótinu í klifri í München. „Ég kom fyrst til Íslands fyrir þremur árum en var þá ekki í nema fimm daga. Þá æfði ég innanhúss og áttaði mig ekki á að það væri hægt að klifra utandyra, fyrr en undir rest. Þannig að þessi ferð hefur verið í bígerð um nokkurt skeið,“ segir Sierra. Hnappavellir í Öræfum og Vestrahorn á Stokksnesi urðu fyrir valinu hjá þeim mæðgum en það eru afar vinsæl útivistar- og klifursvæði. „Þessi svæði eru talsvert frá- brugðin því sem ég hef áður kynnst, en það er fyrst og fremst vegna stórbrotinnar náttúrunnar. Veðrið stríddi okkur aðeins en fyrsta dag- inn var sól og logn, sem var æðis- legt.“ Vildi strax verða atvinnumaður Sierra er 24 ára, frá Arizona í Banda- ríkjunum og þrátt fyrir ungan aldur hefur hún klifrað nánast sleitulaust í sextán ár. „Ég var átta ára þegar ég prófaði fyrst að klifra og varð ástfangin af þessari íþrótt þannig að ég ákvað strax að ég ætlaði að fara í atvinnu- mennsku. Foreldrar mínir voru óvissir í upphafi en það leið ekki á löngu þar til þeir ákváðu að skrá mig á námskeið,“ segir hún. „Við höfðum varla val um neitt annað,“ skýtur Lisa Blair, móðir Sierru, hlæjandi inn í. Hún segist hins vegar ekkert sjá eftir þessari ákvörðun því hún klifrar sjálf mikið og flakkar heims- horna á milli með dóttur sinni. „Við ferðumst mjög mikið. Bara í ár höfum við farið til sjö landa – og sumra landa oftar en einu sinni. Ég held við höfum ekki verið heima í nema sex vikur á þessu ári,“ segir Sierra. „Sem betur fer höfum við báðar mjög gaman af ferðalögum, og ég er svo heppin að mamma er til í að fara með mér út um allt. Ég er ekki viss um að ég hefði eins gaman af þessu ef ekki væri fyrir hana.“ Aðspurð segir Sierra að sér þyki íþróttin alltaf jafn skemmtileg, þó allir dagar snúist um æfingar og rútínu. „Nei, þetta verður aldrei leiðin- legt. Nema kannski þegar flugi er seinkað,“ segir hún brosandi. „Týpískur dagur er að vakna, borða morgunmat, æfa, borða hádegis- mat, fara á klifuræfingu og borða meira. Þannig að þetta snýst fyrst og fremst um að borða rétt og vel og æfa. Ég æfi í um þrjár klukku- stundir á dag en á móti tek ég mér frí þriðja hvern dag.“ Þrautseigja og dugnaður lykillinn Sierra hefur klifrið að lifibrauði og stundar hún því klifurmót af kappi og situr mikið fyrir. Hún kemur sjálfri sér á framfæri í gegnum sam- félagsmiðla en tæplega 150 þúsund manns fylgjast með Instagram-síðu hennar daglega. „Samfélagsmiðl- arnir hafa hjálpað mér mikið en það er auðvitað að ýmsu að huga þegar fylgjendurnir eru orðnir svona margir. En allt sem ég set inn sýnir mig í réttu ljósi.“ Sierra vill setja fordæmi fyrir aðrar konur í greininni. „Það eru álíka margar konur og karlar í íþróttinni, þó konur í atvinnu- mennsku séu talsvert færri en karl- arnir. Þetta virðist samt vera að breytast og ég reyni alltaf að hvetja alla, bæði konur og karla, til þess að láta á þetta reyna.“ Þrautseigja og dugnaður er það sem þarf til þess að ná langt í klifri, að sögn Sierru. Hins vegar sé þetta íþrótt sem allir geti tekið þátt í. „Mitt líf snýst auðvitað fyrst og fremst um klifrið, þar sem ég hugsa mikið um æfingar, mat og heilbrigt líferni – og það er í raun það sem þarf til þess að komast í atvinnu- mennskuna.“ Draumastaður klifrarans Sierra klifraði meðal annars á Hnappavöllum og á Vestrahorni á Stokksnesi. Hún er einn færasti klifrari heims og segir að Ísland hafi komið sér mjög á óvart, sérstaklega landslagið. Myndir/Garpur Sierra Blair-Coyle hefur klifrað í sextán ár. Hún ákvað átta ára gömul að gerast atvinnuklifrari. FréttaBlaðið/SiGtryGGur ari Sierra Blair-Coyle er einn færasti klifr- ari heims. Hún kom nýverið til Íslands og segir landið drauma- stað klifrarans. Hvað þarf til þess að byrja að klifra? • Mæta á staðinn og kaupa stakan tíma eða kort. • Þægileg föt og klifurskór. Hægt er að leigja klifurskó í flestum klifurhúsum. • Byrja rólega og vinna sig upp. Erfiðleikastigin eru nokkur. • Kalk, kalk, kalk. Gott viðnám er lykilatriði. • Aldur er afstæður og líka í klifri. Íþróttin hentar öllum aldurs- hópum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is 7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R26 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -3 4 A C 2 0 5 6 -3 3 7 0 2 0 5 6 -3 2 3 4 2 0 5 6 -3 0 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.