Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 16

Fréttablaðið - 07.07.2018, Síða 16
Stjarna dagsins á HM 2018 Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois var reiðubúinn þegar kallið kom í 2-1 sigri Belga á Brasilíu í gærkvöldi. Brasilía var umtalsvert meira með boltann og átti mun fleiri tilraunir að marki Belga en þegar tilraunir Brasilíumanna fundu markrammann var Courtois yfirleitt tilbúinn og leysti það vel. Varamaðurinn Renato Augusto fann leiðina framhjá honum með snyrtilegum skalla í seinni hálfleik en þegar kallið kom undir lok leiks- ins var Courtois tilbúinn. Stórstjarnan Neymar virtist ætla að kreista fram framlengingu í uppbótartíma með snyrtilegu skoti en Courtois náði að blaka boltanum yfir og um leið Brasilíumönn- um heim. HM 2018 í Rússlandi, 8-liða úrslit Úrúgvæ - Frakkland 0-2 0-1 Raphael Varane (40.), 0-2 Antoine Griez- mann (61.). Brasilía - Belgía 1-2 0-1 Fernandinho (13, sjálfsm.), 0-2 Kevin De Bruyne (31.), 1-2 Renato Augusto (76.) Belgía og Frakklands mætast í undanúr- slitum HM í Pétursborg á þriðjudaginn. HM í dag 14.00 Svíþjóð – England 18.00 Rússland – Króatía Gullkynslóðin búin að taka næsta skref Ósviknar tilfinningar Belgar fagna sigrinum gegn Brasilíu af innlifun í Kazan í gærkvöldi en Belgía komst í gær í undanúrslit á stórmóti í fyrsta sinn síðan HM 1986 í Mexíkó. Er því ljóst að næstu heimsmeistarar í knattspyrnu koma frá Evrópu en síðustu tvö liðin utan Evrópu, Úrúgvæ og Brasilía, duttu út í gær. Eru Belgar einum leik frá því að komast í úrslit HM í fyrsta sinn en Frakkar standa í vegi fyrir þeim í undanúrslitunum. FRéttaBlaðið/Epa Greiddu félögum íslensku leikmannanna samtals 5,1 milljón dollara. 543.000.000 kr. Birkir Már Sævarsson Valur 23.630.000 kr. Kári Árnason Víkingur R. 23.630.000 kr. 26 dagar sem FiFa greiðir fyrir, fjórtán í aðdraganda móts og tólf þegar Ísland er á HM. FIFA greiðir félögum leikmanna 8.530 dollara hvern dag. 908.870 kr. Tvö íslensk félög stórgræddu á Rússlandsævintýri Íslands FIFA greiddi félagsliðum íslensku landsliðsmann- anna bætur upp á hálfan milljarð króna vegna þátttöku Íslands á HM. Tvö íslensk lið nutu góðs af því og fengu rúmar 23 milljónir í sinn vasa. Fótbolti Alþjóðaknattspyrnusam­ bandið þurfti alls að greiða félögum íslensku landsliðsmannanna 5,1 milljón dollara eða rúmar 543 millj­ ónir íslenskra króna í bætur fyrir að leikmenn liðsins færu á Heims­ meistaramótið í knattspyrnu. Fá öll félög sem eiga leikmann á mótinu því greitt fyrir að leikmaður liðsins hafi tekið þátt í HM og skipt­ ir þar ekki máli hvort leikmaðurinn heitir Lionel Messi eða Birkir Már Sævarsson. Var FIFA búið að taka til hliðar 210 milljónir dollara til að útdeila meðal liða sem áttu fulltrúa í Rússlandi. Valur og Víkingur högnuðust vel Segja reglur FIFA til um að félögin eigi rétt á bótum sem reiknast út frá ákveðinni tíma­ setningu, tveimur vikum fyrir mót eða 31. maí. Reiknast þær til síðasta keppnisdags liðs á mótinu sem var 26. júní þegar tap Íslands gegn Króatíu gerði það að verkum að við féllum úr leik í riðla­ keppninni. Hljóma bæt­ urnar upp á 8 . 5 3 0 dollara á dag eða tæplega 910 þúsund krónur sem félögin fá greiddar frá FIFA fyrir hvern dag en fyrir íslensku leik­ mennina fá félögin greitt fyrir 26 daga. Hljómar lokaupphæðin því upp á tæplega 222 þúsund dollara, rúmlega 23,6 milljónir íslenskra króna, fyrir hvern leikmann. Tvö íslensk félög njóta góðs af því að fá þessa upphæð fyrir leikmenn sína í Rússlandi en það eru Víkingur Reykjavík og Valur. Kári Árnason samdi við Víking Reykjavík í vor og fékk félagsskipti sín staðfest þann 16. maí síðast­ liðinn. Taldist hann því leikmaður uppeldisfélags síns allan tímann sem bæturnar voru reiknaðar. Það sama er upp á teningnum með Birki Má Sævarsson, hann gekk til liðs við Val í febrúar og fær upp­ eldisfélag hans því greiddar bætur upp á rúmlega 23 milljónir íslenskra króna. Það lítur hins vegar út fyrir að Fylkir fái ekki greiddar bætur fyrir Ólaf Inga Skúlason, miðjumanninn sem samdi við Árbæinga stuttu fyrir mót. Er ekki búið að ganga frá félags­ skiptunum frá Kardemir Kara­ bükspor í Tyrklandi og fær tyrkneska félagið því greidd­ ar bæturnar í stað Fylkis. kristinnpall@frettabladid.is Félagsskipti Ólafs inga Skúlasonar gengu ekki í gegn fyrir HM og fær Fylkir því ekki bætur. FRjálsaR íþRóttiR Spretthlauparinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir vann til gullverðlauna í 100 metra hlaupi á Evrópumótinu U18 í frjálsum íþróttum í Gyor, Ungverjalandi, í gær. Kom hún fyrst í mark á 11,75 sekúndum og var 0,0006 sekúndum á undan hinni frönsku Pamera Los­ ange í mark. Hún keppir á ný í dag í undanúr­ slitunum í 200 metra hlaupi. – kpt Guðbjörg fékk gull á EM í Gyor Handbolti Íslenska kvennalands­ liðið í handbolta skipað leikmönn­ um 20 ára og yngri tryggði sér sæti í 16 liða úrslitum á heimsmeistara­ mótinu með því að vinna öruggan fimmtán marka sigur á Kína í Ung­ verjalandi í gær, 35­20. Fengu stúlkurnar skell gegn Rúss­ landi á fimmtudaginn en Ísland hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli eftir fjórar umferðir. Riðla­ keppninni lýkur á sunnudaginn þegar Ísland mætir Chile sem er án stiga á botni riðilsins en hvorki Sló­ venía né Chile geta náð Íslandi að stigum fyrir lokaumferðina. – kpt Komnar áfram eftir sigur á Kína 7 . j ú l í 2 0 1 8 l a U G a R d a G U R16 s p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð spoRt 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 5 -E F 8 C 2 0 5 5 -E E 5 0 2 0 5 5 -E D 1 4 2 0 5 5 -E B D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.