Fréttablaðið - 07.07.2018, Side 24
Pillumyllan
Benidorm er íslenskum sóldýrkendum vel kunnur og einn vin-sælasti áfangastaður þeirra um áraraðir. Leið flestra ferðalanga liggur
með flugi frá Íslandi á alþjóðaflug-
völlinn á Alicante og svo þaðan til
Benidorm og annarra smábæja á
Costa Blanca strandlengjunni.
Á verslunargötu, þar sem eru
hótel, barir og minjagripaverslanir,
rétt við ströndinni Playa Levante á
Benidorm, er að finna litla lækna-
stofu, Centro Medico Benidorm.
Þar starfa nokkrir læknar, þeirra á
meðal Torres, sem hefur skrifað upp
á fíknilyf í miklu magni fyrir ferða-
menn sem leita til hans. Meðal ann-
ars Norðmenn og Íslendinga.
Tollgæslan hefur lagt hald á mikið
magn ávana- og fíknilyfja á árinu.
Hluta þeirra flytja íslenskir ferða-
menn til landsins frá Spáni.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að slóðin hefur verið rakin til
fáeinna lækna á Benidorm sem
skrifa út risastóra skammta ávana-
og fíknilyfja, þeirra á meðal til
Torres.
Framvísa erlendum vottorðum
Torres er stórtækur og hefur ávísað
gríðarlega stórum skömmtum til
Íslendinga sem eiga sér ekki heilsu-
farssögu sem rökstyður að nauðsyn-
legt sé að nota slík lyf.
Tollgæslan hefur ekki heimild til
að greina frá einstökum málum en
rannsóknardeild Tollgæslunnar svar-
aði fyrirspurn Fréttablaðsins og gaf
dæmi um haldlagt magn fíknilyfja
sem flutt eru til landsins. Stærstur
hluti þeirra er frá Spáni og ferða-
menn framvísa lyfjaávísunum og
vottorðum frá þarlendum læknum.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að nafn Torres komi fyrir
á vottorðum og lyfjaávísunum sem
Íslendingar framvísa.
Það sem af er ári hefur Tollgæslan
lagt hald á nærri 18.900 töflur af
ávana- og fíknilyfjum. Þar af eru
um það bil 3.100 OxyContin-töflur,
1.950 MST Continus-töflur (mor-
fín) og 5.200 töflur af Alprazolam
(Xanax).
Reglugerðum breytt í Noregi
Íslenskar reglugerðir auðvelda
ferðamönnum að flytja lyf með sér
til landsins. Þeim, sem hafa fengið
uppáskrifuð lyf frá læknum á Spáni
og flutt þau til landsins, er í raun
heimilt að flytja til landsins lyf til
eigin nota ef þeir framvísa vottorði
læknis eða lyfseðli en þeir þurfa
líka að sýna fram á að lyfin séu
nauðsynleg í því magni sem flutt er
inn. Í flokki ávana- og fíknilyfja er
leyfilegt að flytja með sér magn sem
svarar mest til 30 daga notkunar.
Reglugerðir í Noregi voru svip-
aðar og hér á landi. Þær voru
hertar árið 2016 vegna stóraukins
flutnings ávanabindandi fíknilyfja
til landsins sem síðan voru seld á
svörtum markaði.
Í dag mega ferðamenn með
MST, morfínlyf sem var flutt inn til landsins. Rúmlega 1.550 skammtar.
Benidorm er vinsæll áfangastaður Íslendinga. Á Playa
de Levante er læknastofa Torres. MyNd/GooGLe
norskt ríkisfang einungis flytja með
sér sjö daga skammt af ávana- og
fíknilyfjum sem keypt eru erlendis,
en 30 daga skammt ef viðkomandi
er með vottorð frá norskum lækni.
Sama mynstur
Eins og á Íslandi nýttu Norðmenn
sér smugu í reglugerð áður en
henni var breytt, um flutning lyfja
til einkaneyslu. Heimilt var að flytja
með sér 30 daga skammt nauðsyn-
legra róandi og verkjalyfja ef lyfja-
ávísun og vottorði erlendra lækna
var framvísað.
Árið 2015 fjölluðu blaðamenn
norska héraðsdagblaðsins Trønder-
Avisa um svartan markað lyfjanna
og flutning norskra ferðamanna á
þeim til landsins. Í Noregi eins og á
Íslandi fór að bera á söluaukningu
ávanabindandi róandi lyfja og
verkjalyfja á svörtum markaði.
Á sama tíma lögðu norskir toll-
verðir hald á mikið magn fíknilyfja
í farangri fólks sem ferðaðist frá
Alicante.
Eins og hér var slóðin rakin til
Benidorm og til sama læknis, Torres.
Ljóstrað upp um Torres lækni
Blaðamaður Trønder-Avisa Stian
Manka ákvað að staðreyna frá-
sagnir fólks sem hafði flutt inn
fíknilyf með þessum hætti og
flaug til Alicante í þeim tilgangi
að rannsaka starfsemi læknisins
Torres á Benidorm.
Manka hafði verið trúað fyrir
því að Torres tæki rúmlega 200
evrur fyrir að ávísa skammti fíkni-
lyfja og það var reyndin. Stian
greiddi spænska lækninum Torres
tæpar 25 þúsund krónur undir
borðið fyrir lyfjaávísun upp á
risastóran skammt af fíknilyfjum
án þess að þurfa að sýna fram á
heilsufarsvanda.
Hér að neðan fylgir brot úr
grein Stians sem var birt þann 3.
október 2015 í Trønder-Avisa þar
sem Manka ræðir við Torres.
– Halló. Er ég að tala við Torres
lækni?
– Torres lækni, já.
– Ég heiti Manka, ég er frá
Noregi.
– Allt í lagi, Manka. Hvernig hefur
þú það, hvað get ég gert fyrir þig?
– Ég fékk númerið þitt hjá góð-
um vini. Ég vil kaupa lyfjaávísun.
– Ok. Hvað viltu fá frá mér?
– Ég vil fá Dolcontin. Eða MST.
Ertu með það?
– Auðvitað. Hversu mikið? Fjórar
MST? Í hverri öskju eru hundrað
töflur.
– Tvær eru fínt. En ég vil líka fá
100 af valíum.
– Ok. 5 mg eða 10 mg?
– 10 mg.
– Ok. Ég skal græja það fyrir þig.
Þú getur komið á stofuna til mín.
Ég verð við eftir klukkan 17.
– Hvað kostar þetta?
– 220 evrur. Ég skal tala við apó-
tekið svo þú getir fengið pillurnar
þínar í kvöld.
– 220 evrur, ok. Er það bæði fyrir
pillurnar og lyfjaávísunina?
– Nei, nei. 220 evrur er bara fyrir
lyfjaávísunina. Þú verður að fara í
apótekið til að sækja pillurnar. En
ég skal tala við þau. Svo þau hafi
pillurnar til fyrir þig. Þú vilt fá pill-
urnar þínar í kvöld.
– Ok. Sé þig klukkan 17.
– Ja. Ég þarf eftirnafnið þitt
herra?
– Manka. M - A - N - K - A.
– Fínt. Sé þig á stofunni minni.
Manka fer klukkan fimm á
Centro Medico og lýsir fundi sínum
með Torres. Hávöxnum og vel
klæddum manni á sextugsaldri.
– Svo það ert þú sem hringdir
fyrr í dag og vildir fá valíum og
MST?
– Já.
– Hversu lengi hefur þú notað
lyfin?
– Kannski í tvö ár.
– Hefur þú lent í slysi eða eitt-
hvað þvíumlíkt?
– Nei, krabbamein.
– Krabbamein. Gott.
Manke
segir dr.
Torres
ekki hafa
spurt hann
á nokkurn
hátt frekar
út í sjúkdómsástand sitt eða
þörf fyrir töflurnar. Heldur hafi
hann einfaldlega gefið út lyfja-
ávísun fyrir 120 morfíntöflum,
þótt hann hafi reyndar fyrr um
daginn boðist til að skrifa út 240
töflur, og 100 valíumtöflum. Hann
rukkar Manke um 220 evrur og vill
fá seðla og alls ekki gefa kvittun.
Hann samþykkir hins vegar að
láta Manke fá pappíra til að sýna
tollyfirvöldum.
– Hvenær er flugið þitt?
– Í fyrramálið.
– Ég skal hjálpa þér.
Manke segir Torres hafa skrifað
upp á þörf fyrir lyfin. En skrifað
undir með öðru nafni.
Þetta stóð á vottorðinu:
Mr. Manka – ríkisborgari í
Noregi – hefur verið í meðferð á
stofu okkar. Hann er á leið heim
til Noregs. Hann fær með sér lyf
sem hann þarf í 30 daga, Valium
og MST Continus.
Blaðamaður Fréttablaðsins
reyndi að hafa samband við Torres
en fékk ekki aðgang að honum
og talaði við ritara á stofunni. Það
reyndist afar auðvelt að fá tíma hjá
lækninum og ritarinn lofaði því að
hann myndi hjálpa.
– Hæ, er Torres læknir við?
– Já, bíddu. hvers vegna ertu að
hringja?
– Ég er að hringja frá Íslandi.
Kem til Alicante í kvöld og þarf að
hitta Torres lækni?
– Bíddu, hvenær kemurðu á
morgun?
– Flugið mitt er klukkan 3 og
ég lendi í kvöld. Ég vil hitta hann
snemma á laugardagsmorgun.
– Við opnum klukkan 10, þú
mátt koma klukkan 11.
– Læknirinn minn heima á
Íslandi er í sumarfríi. Ég þarf lyfja-
ávísun.
– Já, ertu með einhverja papp-
íra?
– Er það nauðsynlegt? Hann er í
sumarfríi …
– Komdu bara með það sem þú
átt. Það má vera hvað sem er. Bara
hvað sem er sem hjálpar okkur að
vita hvaða lyf þú þarft.
– Má það vera gömul lyfjaávísun
eða bara hvað sem er?
– Já.
– En skiptir það máli hvað það
er?
– Nei, nei, nei.
– Má ég ekki tala við hann?
– Nei, komdu bara á morgun.
– Og hann mun alveg örugglega
hjálpa mér?
– Já, hann gerir það.
Fíknilyf á
svörtum
markaði
Róandi og ávana-
bindandi lyf eru
seld í gegnum
snjallforrit og sam-
félagsmiðla. Fram-
boðið er gríðarlega
mikið. Lyfið Xanax
er mjög áberandi
í auglýsingum á
þessum miðlum. En
eins eru áberandi
auglýsingar fyrir
OxyContin og mor-
fínlyf.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
34
2008
25
2016
30
2017
19
2018
janúar
til júlí
Lyfjatengd andlát
Íslendingar hafa
keypt lyfjaávís-
anir upp á fíknilyf á
Benidorm af lækn-
inum Torres og flutt
hingað til lands.
Tollgæslan hefur lagt
hald á mikið magn
ávana- og fíknilyfja
á árinu. Stór hluti
þeirra er frá Spáni.
Sama mynstur kom
upp í Noregi fyrir
fáeinum árum.
á Benidorm
7 . j ú l í 2 0 1 8 l A U G A R D A G U R24 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
0
7
-0
7
-2
0
1
8
0
4
:1
8
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
6
-3
9
9
C
2
0
5
6
-3
8
6
0
2
0
5
6
-3
7
2
4
2
0
5
6
-3
5
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
8
s
_
6
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K