Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.07.2018, Blaðsíða 48
Halland, Svalbarðsstrandar- hreppi – tillaga að deiliskipulagi Tillaga að deiliskipulagi í landi Halllands, Svalbarðsstrandarhreppi. Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 24. ágúst 2016 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í landi Halllands skv. 1. mgr. 41. gr. skip- ulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið felur í sér heimild til byggingar sex íbúðarhúsa á svæði Íb 15 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Tillagan liggur frammi á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps milli 9. júlí og 20. ágúst 2018 og á heimasíðu Svalbarðsstrandarhrepps, svalbardsstrond.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast sveitarfélaginu í síðasta lagi mánudaginn 20. ágúst 2018 annaðhvort á sveitarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 601 Akureyri, eða á netfangið postur@svalbardsstrond.is. F.h. Svalbarðsstrandarhrepps Skipulags- og byggingarfulltrúi Ofanflóðavarnargarðar á Patreksfirði Urðargata, Hólar og Mýrar Mat á umhverfisáhrifum Opið hús verður haldið þriðjudaginn 10. júlí, kl. 18.00-19.30, til að kynna mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra ofanflóðavarnargarða á Patreks- firði, ofan við Urðargötu, Hóla og Mýrar. Kynntar verða niðurstöður frummatsskýrslu og fer kynningin fram í fundarsal bæjarstjórnar Vesturbyggðar að Aðalstræti 63. Fyrirkomulag fundarins verður þannig að stutt erindi verður haldið um framkvæmdina og niðurstöður úr frummatsskýrslu auk þess sem sýnd verða veggspjöld með helstu niðurstöðum. Fulltrúar frá Framkvæmdasýslu ríkisins og Vesturbyggð ásamt sérfræðingum frá VSÓ Ráðgjöf verða á staðnum til að svara fyrirspurnum. Úthlutun byggingalóða í Sveitarfélaginu Vogum Sveitarfélagið Vogar auglýsir lóðir til úthlutunar fyrir íbúðabygg- ingar. Um er að ræða s.k. miðsvæði, síðari áfanga. Í þessum áfanga verður úthlutað lóðum undir fjölbýlishús (2 hús með 6 íbúðum hvert), parhús (5) og einbýlishús (7). Lóðirnar verða til- búnar til afhendingar í október 2018. Umsóknareyðublöð ásamt úthlutunarskilmálum og gjaldskrá er að finna á heimasíðu sveitar- félagsins, www.vogar.is Umsóknarfrestur er til 1. september 2018, og skal umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt fylgigögnum skilað til skrifstofu sveitarfélagsins, hvort heldur er með rafrænum hætti (tölvupóstur, umsókn á heimasíðu) eða með því að póstsenda gögnin á Sveitar- félagið Voga, Iðndal 2, 190 Vogar. Séu fleiri en ein umsókn um hverja lóð verður dregið úr gildum umsóknum. Skila skal greiðslumati með umsókn. Lágmarksupphæðir eru sem hér segir: Einbýlishús: kr.40.280.000,- pr. lóð. Parhús: kr.40.280.000,- pr. lóð. Fjölbýlishús I og II: kr.134.400.000,- Vogar eru staðsettir nokkurn veginn mitt á milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar. Í sveitarfélaginu búa nú um 1.280 íbúar. Megin áherslur atvinnulífsins eru á vettvangi matvælaframleiðslu og iðnaðar. Í Vogum er starfræktur heildstæður grunnskóli (1. – 10. bekkur), ásamt leikskóla. Sundlaug, íþróttahús og íþróttamannvirki eru einnig til staðar. Öflugt íþróttastarf er á vegum Ungmennafélagsins Þróttar, sveitar- félagið starfrækir einnig félagsstarf fyrir unglinga og eldri borgara. Vogum, 4. júlí 2018, Ásgeir Eiríksson bæjarstjóriwww.hagvangur.is Ný tækifæri, nýjar áskoranir! ÍAV Marti Búrfell sf. Vinnubúðir með eldhúsi og mötuneyti til sölu Vinnubúðir, staðsettar við Búrfellsvirkjun, eru til sölu. -132 herbergi öll með baðherbergi - þrjár setustofur - fullbúið eldhús með búri, kæliklefa og frystiklefa - borðsalur fyrir um 80 manns - þrjár gallageymslur - þrjú þvottaherbergi - Líkamsræktarherbergi og gufubaði. - Auk tengiganga, undirstaðna og eldveggja. Allt innbú og rúmfatnaður í herbergjum, setustofum og eldhúsbúnaður fylgir. Vinnubúðirnar eru staðsettar við Búrfellsstöð Landsvirkjunar. Hluti svefnherbergja er nú þegar tilbúin til afhendingar, en stefnt er að því að vinnubúðirnar verði að fullu til afhendingar í september í ár. Allar upplýsingar veita Heiðar Jón Heiðarsson, sími 6934222. heidar@iav.is og Einar Már, sími 6178933, einar@iav.is. Nánari upplýsingar og myndir er að finna á vef ÍAV - www.iav.is ÍAV Marti Búrfell sf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 7 . j ú L í 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 6 -5 C 2 C 2 0 5 6 -5 A F 0 2 0 5 6 -5 9 B 4 2 0 5 6 -5 8 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.