Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.07.2018, Qupperneq 61

Fréttablaðið - 07.07.2018, Qupperneq 61
Það hefur verið spennandi að verða hluti af NetApp, en við erum fyrsta íslenska fyrirtækið sem hefur verið keypt af Fortune 500 fyrirtæki, sem er alveg magnað. Þegar ég var í sumarstarfi hjá Greenqloud, næst í hlutastarfi með skóla og svo á fyrsta árinu mínu hjá fyrirtækinu var ég sett í mjög lærdómsrík verkefni sem áttu að koma mér vel í fram- tíðinni. Stjórnendur Greenqloud áttu þarna kollgátuna og ég á þeim margt að þakka, uni mér vel í starfi hjá NetApp Iceland og mun gera um ókomna framtíð,“ segir Helga Hjartardóttir, forritari hjá NetApp Iceland, sem helgað hefur sig á sínum ferli umræddum tveimur hugbúnaðarfyrirtækjum. Helga starfaði hjá Greenqloud þegar fyrirtækið var lítill vinnu- staður og segir að þar hafi allir haft sömu markmið og unnið hart að þeim. „Þetta var samt ekkert stór- fengleg breyting, starfsmenn þurftu að fara í gegnum ýmis námskeið og landslagið er formlegra í þessum alþjóðlega fyrirtækjaheimi.“ Spurð hvort eitthvað hafi breyst í hennar starfi síðan NetApp keypti Greenqloud segir Helga það ekki svo vera. „Mér skilst að áhersla hafi verið lögð á það að halda því þannig að áhrif stóra fyrirtækisins yrðu ekki mikil og að gamla teymið gæti haldið sinni sérstöðu, jafnvel að NetApp gæti lært af því sem Greenqloud áorkaði. Þannig að það voru ekki mikil afskipti af því hvernig við vorum að gera hlutina.“ Helga segist samt finna aðeins fyrir því að hún er ekki í litlu fjöru- tíu manna hugbúnaðarfyrirtæki á Íslandi heldur mörg þúsund manna risafyrirtæki á alþjóðavísu þegar kemur að hinum ýmsum vald- stjórnunarstigum og prótókollum. „Ég fann að áður fyrr gátum við stýrt stefnu okkur að mörgu leyti sjálf en í dag eru verkaðferðir aðrar. Nú er það svoleiðis að leggja þarf flestar ákvarðanir fyrir yfirmenn og samstarfsmenn víða annars staðar í heiminum og það getur tekið sinn tíma. Það hefur samt ekki komið niður á mínu starfi.“ NetApp lærði af okkur Helga Hjartardóttir hóf störf sem forritari hjá Greenqloud sem sumarstarfsmaður og reiknaði ekki með því þá að hún yrði á meðal ellefu þúsund starfsmanna stórfyrirtækisins Netapp. Helga Hjartar- dóttir er forritari hjá NetApp. MYND/ÞÓRSTEINN Við höfum einstakan hóp starfsmanna og það er ein aðalástæðan fyrir því að fólk vill vinna hjá okkur. Okkur finnst gaman að vinna saman og við erum stolt af starfi okkar,“ segir Sarah Cushing, mannauðsstjóri hjá NetApp. „Starfsmannahópur okkar eru sérstakur að því leyti að hann er mjög fjölbreyttur. Rétt tæpur fjórðungur starfsmanna er kvenkyns, sem er meira en gengur og gerist í hugbúnaðarfyrirtæki, og starfsmenn koma frá tíu ólíkum löndum. Menning vinnustaðarins ein- kennist af nýsköpun og metnaði og ég segi nýjum starfsmönnum alltaf að þeir eigi að láta í sér heyra, því við elskum að heyra af nýjum hug- myndum og aðferðum. Starfsmenn hafa líka mikið vald og frelsi til að gera það sem þeir þurfa að gera,“ segir Sarah. „Til þess að ná þessu fram þurfum við að skilja hvað hvetur starfsmenn okkar til dáða og vinna með þeim til að hjálpa þeim að standa sig sem best. Þetta getur falist í að tryggja að starfsfólk hafi rétta búnaðinn eða í að veita þeim tækifæri til að gera eitthvað nýtt og öðruvísi. Við leggjum áherslu á góða frammistöðu og að verðlauna þá sem standa sig vel,“ segir Sarah. „Það getur verið með einhverju einföldu, eins og að þakka fólki fyrir eða bjóða því í mat eða bíó, en nú þegar við erum orðin hluti af stórfyrirtækinu NetApp getum við líka gefið sérstaka bónusa. Það hefur verið spennandi að verða hluti af NetApp, en við erum fyrsta íslenska fyrirtækið sem hefur verið keypt af Fortune 500 fyrirtæki, sem er alveg magnað,“ segir Sarah. „Breytingar eru góðar og þó við þurfum nú að fylgja nýjum alþjóðlegum ferlum hefur reksturinn lítið breyst, enda finnst okkur mjög mikilvægt að halda í þá menningu og starfshætti sem laðaði NetApp að okkur til að byrja með. Svo opnast nýjar dyr við að verða hluti af alþjóðlegu fyrir- tæki, það eru betri tækifæri í starfi, Nýsköpun og metnaður í fyrirrúmi Starfsmannahópur NetApp er fjöl­ breyttur og metnaðarfullur og nýtur þess að vinna saman. Þægilegt starfs­ umhverfi, tækifæri til að ná langt í starfi og frábær hlunnindi gera Net­ App góðan og spennandi vinnustað. Það hefur verið spennandi að verða hluti af alþjóðlegu stór- fyrirtæki og það býður ýmis ný tækifæri, segir Sarah Cushing, mannauðsstjóri hjá NetApp. meiri ferðalög og aukin hlunnindi í boði fyrir starfsmenn. Það er auðvelt að sækja um hjá okkur. Fólk getur bara farið inn á netapp.com/iceland-jobs. Við bjóðum samkeppnishæf laun og bónusa, áherslu á jafnvægi daglegs lífs og vinnu, hlutabréfakaupakerfi fyrir starfsmenn, minnst 25 frídaga á ári og reglulega höfum við alls kyns viðburði og uppákomur fyrir starfs- menn, eins og til dæmis að bjóða upp á nudd og ýmislegt fleira.“ 45 starfsmenn 24% kvenkyns 26-34 ára meðalaldur 10 þjóðerni: Ísland, Nýja­Sjáland, Króatía, Pólland, Holland, Úkra­ ína, Bretland, Bandaríkin, Grikkland og Slóvakía 26% fjölgun starfs­ manna milli janúar og júlí 2018 27 lausar stöður KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 7 . j Ú l Í 2 0 1 8 NETApp á ÍSLANDI 0 7 -0 7 -2 0 1 8 0 4 :1 8 F B 0 8 8 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 6 -2 0 E C 2 0 5 6 -1 F B 0 2 0 5 6 -1 E 7 4 2 0 5 6 -1 D 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 8 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.