Fréttablaðið - 16.08.2018, Síða 20
Stjarnan - FH 2-0
1-0 Guðjón Baldvinsson (44.), 2-0 Guð-
mundur Steinn Hafsteinsson (85.).
Nýjast
Mjólkurbikar karla
1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R20 s p o R t ∙ F R É t t A B L A ð I ð
færa sig um set til AZ Alkmaar í leit
að meiri tíma inni á knattspyrnu
vellinum. Liðið endaði í þriðja sæti
hollensku úrvalsdeildarinnar á síð
asta tímabili.
„Eins og ég sagði síðasta vor þá
fannst mér vera kominn tími á að
spila aðalliðsfótbolta fljótlega. PSV
Eindhoven hélt sínum sterkustu
leikmönnum sem spila framarlega
á vellinum og þeir leikmenn voru
búnir að vinna sér sæti í liðinu
og því fannst mér nauðsynlegt að
breyta til,“ sagði Albert um vista
skiptin.
„AZ Alkmaar hefur haft auga á
mér lengi og það kom til greina að
ég færi þangað þegar ég fór til PSV
Eindhoven á sínum tíma. Þeir buðu
mér góðan samning, eru að greiða
þokkalega hátt kaupverð fyrir mig
og það eru meiri líkur á að ég fái að
spila þarna. Nú er það bara undir
mér komið að sanna mig.“
AZ Alkmaar seldi íranska kant
manninn Alireza Jahanbakhsh til
enska úrvalsdeildarliðsins Brighton
í sumar og Albert telur að hann
verði fyrst og fremst hugsaður sem
kantmaður fyrst um sinn. Forráða
menn liðsins vita hins vegar að
hann getur leysti fleiri stöður.
„Ég hugsa að stysta leiðin fyrir mig
inn í liðið sé í kantstöðurnar, annað
hvort hægra eða vinstra megin. Þriðji
þjálfari liðsins þjálfaði mig þegar ég
kom fyrst til PSV Eindhoven og stýrði
mér hjá varaliðinu þar. Þeir vita að ég
get spilað á miðjunni og sem fram
herji, en fyrst um sinn hugsa ég að
ég muni spila á kantinum,“ sagði
Vesturbæingurinn um hlutverk sitt
hjá nýjum vinnuveitanda.
„Liðið var í toppbaráttu við PSV
Eindhoven og Ajax á síðustu leiktíð
og ég hugsa og vona að það verði
eins á þessu tímabili. Það hafa ekki
orðið miklar breytingar á leik
mannahópi liðsins og það er raun
hæft fyrir okkur að stefna á að veita
fyrrgreindum liðum keppni við
topp deildarinnar.“
Hann gæti fengið fyrstu mínútur
sínar strax um helgina.
Það er leikur á sunnudaginn hjá
okkur og ég vonast til þess að vera í
leikmannahópnum þar. Ég næ hins
vegar bara þremur fótboltaæfingum
fyrir þann leik svo það er ekki víst
að ég komi við sögu í leiknum, en
við sjáum til.“ hjorvaro@frettabladid.is
Ætlað að fylla skarð Írana á kantinum
Albert Guðmundsson segir flest benda til að hann muni leika stærra hlutverk í aðalliði AZ Alkmaar en hann gerði hjá PSV Eindhoven.
Þess vegna ákvað hann að söðla um og færa sig um set á milli liðanna í vikunni. Hann segir að það stefni í titilbaráttu milli liðanna.
sport
Sigríður Lára
til meistaranna
FótBoLtI Sigríður Lára Garðarsdóttir
er gengin í raðir Noregsmeistara Lille
strøm. Hún kemur til Lilleström frá
ÍBV sem hún hefur leikið með allan
sinn feril. Samningur Sigríðar Láru
við Lillestrøm er til áramóta. Eftir það
verður hann endurskoðaður.
Sigríður Lára, sem er 24 ára, vann
sér sæti í íslenska landsliðinu á síð
asta ári og fór með því á EM í Hol
landi. Eyjakonan hefur leikið 13
landsleiki.
Sigríður Lára hefur alls leikið 125
leiki fyrir ÍBV í efstu deild og skorað
19 mörk. Hún skoraði sigurmark
ÍBV í bikarúrslitaleikn
um gegn Stjörnunni í
fyrra.
Lilleström hefur
unnið alla 14 leiki
sína í norsku
úrvalsdeildinni á
tímabilinu. Liðið
er með tólf stiga
forskot á Klepp
og það bendir allt
til þess að það
verði norskur
meistari fimmta
árið í röð. Næsti leik
ur Lillestrøm er gegn
ArnaBjørnar á laugar
daginn. – iþs
FótBoLtI Albert Guðmundsson varð
í upphafi vikunnar enn einn íslenski
knattspyrnumaðurinn sem rekur
á fjörur hollenska liðsins AZ Alk
maar. Íslenski landsliðsframherjinn
kemur til liðsins frá PSV Eindhoven,
en þetta er þriðja hollenska liðið
sem hann er á mála hjá.
Albert gekk til liðs við Heeren
veen frá KR árið 2013, þá 16 ára
gamall, og söðlaði svo um og fór
til PSV Eindhoven þar sem hann
hefur mestmegnis leikið með vara
liði félagins. Hann lék svo níu leiki
með aðalliðinu þegar liðið varð hol
lenskur meistari síðasta vor.
Albert sá hins vegar fram á að
spiltími hans með aðalliði félagsins
á yfirstandandi leiktíð yrði áfram af
skornum skammti og ákvað því að
Albert á æfingu með PSV á dögunum en nú er undir honum komið að sanna
sig í hollensku úrvalsdeildinni með liði AZ Alkmaar. NordicPHotoS/getty
Ég hugsa að stysta
leiðin fyrir mig inn í
liðið sé í kantstöðurnar,
annaðhvort hægra eða
vinstra megin.
Albert Guðmundsson
Eygja fyrsta bikarmeistaratitilinn í karlaflokki
Stjarnan komst í úrslit Mjólkurbikarsins með 2-0 sigri á FH á heimavelli sínum í gærkvöld þar sem Guðjón Baldvinsson, hér fyrir miðju, skoraði eitt
og lagði upp annað. Garðbæingar leika því til úrslita um bikarmeistaratitilinn í bæði karla- og kvennaflokki en karlaliðið er komið í úrslitin í fyrsta
sinn í fimm ár. Þeir eiga enn eftir að klófesta bikarmeistaratitilinn í karlaflokki en fá tækifæri til þess í úrslitaleiknum eftir mánuð. FréttAblAðið/erNir
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
9
6
-3
F
A
4
2
0
9
6
-3
E
6
8
2
0
9
6
-3
D
2
C
2
0
9
6
-3
B
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K