Fréttablaðið - 16.08.2018, Qupperneq 26
Tískuiðnaðurinn er ósjálfbær og mengandi. Eina leiðin til að breyta því er að gera
stórvægilegar breytingar á fram-
leiðsluháttum og neysluvenjum. En
þá þarf almenningur að vilja kaupa
umhverfisvænar vörur og nýta þær
vel og til þess þarf tískan einfaldlega
að breytast.
Tískubylgjur eru kjarni tísku-
iðnaðarins og þær breytast með
hverri árstíð. Iðnaðurinn er drifinn
áfram af sífelldri og síbreytilegri
eftirspurn og stórfelldum inn-
kaupum neytenda. Fyrir vikið eru
vörur framleiddar og þeim hent
hraðar en nokkru sinni áður, sem
skapar gríðarlegt álag á umhverfið.
Framleiðslan mengar og kostar bæði
auðlindir og orku, endalaus tonn af
notuðum fötum fylla haugana og
þeim sem kaupa tískuvörur fjölgar
hratt um allan heim.
Eftirspurnin mótar framboðið
Ljóst er að eitthvað þarf að breytast
og því hafa ýmis tískumerki brugðist
við með því að bjóða tískuvörur sem
eru framleiddar á umhverfisvænan
og sjálfbæran hátt. Meðal þeirra eru
merki eins og Zara, sem bjóða línu
sem er framleidd úr endurunnu
hráefni, og ASOS, sem reynir að
finna leiðir til þess að fötin séu bæði
endurnýtt og endurunnin.
Til að auka sjálfbærni þarf fólk
líka að nota fötin sín
lengur og minnka þann-
ig eftirspurnina eftir
nýrri framleiðslu. Það
er samt hægara sagt
en gert fyrir marga
neytendur, því að
þeir eru vanir að
taka þátt í tísku-
straumum og kaupa
sífellt ný og ódýr föt
sem endast stutt.
Þegar fólk kaupir
mengandi vörur af fullum krafti
og það er dýrt að breyta framleiðslu-
háttum til að framleiða vörur á
sjálfbæran hátt, hafa framleiðendur
lítinn hvata til að breyta háttum
sínum. Aukin eftirspurn eftir vörum
sem eru framleiddar á sjálfbæran
hátt og minnkandi eftirspurn eftir
því sem er framleitt á mengandi
hátt gæti hins vegar breytt hegðun
framleiðenda. Tískuiðnaðurinn og
framleiðsluhættir í honum breytast
ekki nema neytendur biðji um það.
Gæti umhverfisvernd
komist í tísku?
Ein leið til að þetta gæti breyst
væri ef það kæmist í tísku að vera
umhverfisvænn og nýtinn. Það gæti
til dæmis kannski gerst ef leiðtogar
í tískuheiminum sýna gott fordæmi
og fá ríka og fræga fólkið, sem er
tískufyrirmyndir ótal margra, með
sér.
Tískuhönnuðurinn Stella
McCartney hefur mikil áhrif í
tískuheiminum og hún hefur sýnt
umhverfis- og dýravernd áhuga.
Hún virðist vera að
reyna að stíga skref í átt
að því að gera það flott að
vera umhverfisvænn með nýrri
línu af strigaskóm, Loop Sneakers.
Skórnir eru framleiddir á umhverfis-
vænan hátt og það er mjög auðvelt
að endurvinna þá.
Það er gríðarlegur vöxtur í sölu á
skófatnaði en framleiðsla á striga-
skóm mengar mikið. Ef skór eins
og Loop-skórnir kæmust í almenna
notkun væri því hægt að minnka
mengun verulega. Enn um sinn eru
þessir skór samt rándýr lúxusvara
sem bara vel efnað fólk getur leyft
sér. Ódýrasta parið kostar um 70
þúsund krónur.
En ef það verður fínt og flott að
ganga í umhverfisvænum fötum og
vera nýtinn gæti tískan og um leið
eftirspurn almennings breyst og þá
hefðu framleiðendur skyndilega
mun meiri hvatningu til að leggja
það á sig að breyta framleiðslu-
háttum. Ef umhverfisvænir fram-
leiðsluhættir tækju yfir má líka leiða
líkur að því að verðið lækkaði, því
hráefnið og vélarnar yrðu aðgengi-
legri. Þannig gæti mengun frá tísku-
iðnaði minnkað.
Tíska þarf að
verða sjálfbærari
Sóun og mengun er mikil í tískuiðnaðinum, meðal annars
vegna þess að tískustraumar breytast hratt. Kannski getur
það komist í tísku að vera umhverfisvænn og nýtinn.
Tískuhönnuðurinn
Stella McCartney
hefur áhuga á dýra-
og umhverfisvernd.
Loop-skórnir frá Stellu McCartney koma í ýmsum stærðum og gerðum. MYND/STELLAMCCARTNEY.COM
Virknilínan frá Life-flo inniheldur fjölbreytt úrval vörutegunda sem
henta sérstaklega vel fyrir hlaupara og annað íþróttafólk. Vörurnar
innihalda hreint magnesíum sem róar þreytta vöðva og liði, linar
verki og vinnur á fótaóeirð. Þú færð Life-flo í verslunum Lyfju.
lya.is
Hlauptu lengra
með Life-flo
25%
afsláttur
af allri línunni
til 30. ágúst
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
Stærðir 38-52
NÝJAR VÖRUR
STREYMA INN
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Nýjar
vörur
Algjört
verðhrun
Allra síðustu
dagar
útsölunnar
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . áG ú S T 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
6
-1
D
1
4
2
0
9
6
-1
B
D
8
2
0
9
6
-1
A
9
C
2
0
9
6
-1
9
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K