Fréttablaðið - 16.08.2018, Blaðsíða 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5407.
Elsku amma, langamma og
tengdamóðir,
Sigríður (Didda)
Benediktsdóttir
áður til heimilis að
Kársnesbraut 25, Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
laugardaginn 11. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 24. ágúst kl. 13.00.
Sigríður Kristín Hafþórsdóttir Magnús Már Magnússon
Hanna Björk Hafþórsdóttir Sveinbjörn Hólmgeirsson
Ólafur Árni Hafþórsson Hanna Sigrún Steinarsdóttir
Helga María Hafþórsdóttir Karen Sif Kristjánsdóttir
Hafþór Árnason
og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
Eyrún Helga Jónsdóttir
(Helga í Mörtungu)
lést 11. ágúst á hjúkrunar- og
dvalarheimilinu á Kirkjubæjarklaustri.
Jarðsungið verður laugardaginn
25. ágúst klukkan 13.00 frá Prestsbakkakirkju.
Fjölskylda hinnar látnu.
Okkar ástkæra
Herdís Bjarney
Guðmundsdóttir
lést á heimili sínu í Bandaríkjunum
mánudaginn 28. maí. Minningarathöfn
verður haldin í Grundarfjarðarkirkju
sunnudaginn 19. ágúst kl. 14.00.
Aðstandendur.
Ástkær faðir okkar tengdafaðir,
afi og langafi,
Sveinbjörn Sigtryggsson
húsasmíðameistari,
lést á dvalarheimilinu Grund 1. ágúst sl.
Bálför hefur farið fram að ósk hins
látna. Útför fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 25. ágúst kl. 13.00 og duftker jarðsett í
Ólafsvíkurkirkjugarði.
Kristinn Vigfús Sveinbjörnsson Ena Dahl
Guðbjörg Jenný Sveinbjörnsdóttir Sigfinnur Snorrason
Olga Sveinbjörnsdóttir Jóhann Ágústsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ólafía G. Ágústsdóttir
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir
13. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 23. ágúst kl. 13.
María J. Hreinsdóttir Rosario Ómar Russo
Þóra Hreinsdóttir Júlíus Brynjarsson
Bryndís Hreinsd. Cawley Conrad J. Cawley
Íris Hreinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir mín
og föðursystir okkar,
Áslaug Axelsdóttir
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund þann 30. júlí sl.
Útför fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 20. ágúst kl. 13.00.
Ólafía Axelsdóttir
Bryndís Ólafsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir
Axel Ólafsson og fjölskyldur.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Ásmundsson
bóndi í Ferjunesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 5. ágúst. Útförin fer fram
frá Villingaholtskirkju þriðjudaginn
21. ágúst kl. 14.00.
Aðalheiður Kristín Alfonsdóttir
Oddný Kristjánsdóttir Eiríkur Á. Guðjónsson
Helga Kristjánsdóttir Heimir Hoffritz
Ásmundur Kristjánsson G. Hildur Rósenkjær
Eiríkur Steinn Kristjánsson Kolbrún I. Hoffritz
Benedikt Hans Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Margrét Á. Halldórsdóttir
Snotrunesi, Borgarfirði eystri,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Dyngju á
Egilsstöðum 9. ágúst sl. Minningarathöfn
verður í Egilsstaðakirkju föstudaginn 17.
ágúst kl. 15. Útför hennar fer fram frá Bakkagerðiskirkju
laugardaginn 18. ágúst kl. 11.
Gróa Eiðsdóttir Júlíus Snorrason
Halldór Á. Eiðsson
Hulda Eiðsdóttir Hjörleifur Gunnlaugsson
Eygló Eiðsdóttir Knútur S. Hafsteinsson
Njáll Eiðsson Sigrún Viktorsdóttir
Egill Eiðsson Fjóla Hólm
og fjölskyldur.
Okkar ástkæri
Halldór Kristjánsson
(Dóri frá Tungu)
Mýrum 7, Patreksfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Patreksfirði 8. ágúst
og er því kominn í hin eilífu berjalönd.
Útför fer fram frá Patreksfjarðarkirkju
laugardaginn 25. ágúst kl. 14.00.
Aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ágústa Úlfarsdóttir Edwald
lést á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 6. ágúst. Útför hennar fer
fram frá Grensáskirkju föstudaginn
17. ágúst kl. 13.00.
Jón Haukur Edwald Álfheiður Magnúsdóttir
Birgir Edwald Ragnheiður Óskarsdóttir
Helga Edwald
Eggert Edwald Jacqueline McGreal
Kristín Edwald
barnabörn og barnabarnabörn.
Eitt af fyrstu verkefnum Elliða Vignissonar, nýs bæjarstóra Ölfuss, var að veita bæði lista- og menningarverðlaun og umhverfisverðlaun Ölfuss fyrir árið 2018. Þau fyrr-
nefndu hlaut tónlistarmaðurinn Jónas
Sigurðsson fyrir framlag sitt á sviði lista
og menningar til sveitarfélagsins. Í rök-
stuðningi kom fram að hann hafi margoft
haldið tónleika eða verið hluti af menn-
ingarviðburðum í Þorlákshöfn og sé alltaf
tilbúinn að rétta hjálparhönd, hafi hann
tök á því.
Því var við hæfi að heyra í Jónasi.
„Ég er frá Þorlákshöfn, fæddur og
uppalinn þar og byrjaði í tónlist í Lúðra-
sveit Þorlákshafnar,“ útskýrir hann. „Svo
gerði ég dálítið stórt heimabyggðarverk-
efni árið 2012. Þá var ég með Lúðrasveit
Þorlákshafnar í að gera plötu. Þar var lag
sem var mikið spilað sem heitir Hafið
er svart, það var til dæmis tekið upp
af mér með Lúðrasveit Þorlákshafnar í
kirkjunni í Þorlákshöfn,“ segir Jónas sem
kveðst alltaf halda góðum tengslum við
sína heimabyggð og hugsa hlýtt til henn-
ar. Nefnir annað dæmi um það. „Ég hef
haft það prinsipp að láta ekki nota tón-
listina mína í auglýsingar. En svo sýndi
sveitarfélagið Ölfus áhuga á að nota
lagið mitt Hamingjan er hér í auglýsingu
og ég gaf því ótakmarkað leyfi fyrir því
lagi. Nú hefur það verið með auglýsinga-
herferð í tvö ár þar sem þetta lag hefur
hljómað. Það virkar svona vel. Ég held að
þessi viðurkenning sé þakklætisvottur
fyrir uppsafnaða hamingju. Mér þykir
mjög vænt um það.“
Umhverfisverðlaun Ölfuss 2018 hlaut
Gróðrarstöðin í Kjarri fyrir einstaklega
fallegt og snyrtilegt umhverfi. Gróðrar-
stöðin er í eigu hjónanna Helgu Rögnu
Pálsdóttur og Helga Eggertssonar og frá
árinu 1981 hafa þau byggt þar upp garð-
plöntuframleiðslu.
Ragna, dóttir Helgu og Helga, tók við
verðlaununum fyrir þeirra hönd.
Verðlaunagripina gerði Dagný Magn-
úsdóttir glerlistakona og eigandi kaffi-
hússins/glerlistasmiðjunnar Hendur í
Höfn í Þorlákshöfn. gun@frettablaðið.is
Þakklætisvottur fyrir
uppsafnaða hamingju
Jónas Sigurðsson tónlistarmaður hlaut nýlega lista- og menningarverðlaun Ölfuss og
Gróðrarstöðin í Kjarri fékk umhverfisverðlaun sama sveitarfélags fyrir árið 2018.
Ragna, dóttir Helgu Rögnu Pálsdóttur og Helga Eggertssonar í Gróðrarstöðinni í Kjarri,
tók við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd. Elliði er í miðið og Jónas lengst til hægri.
1 6 . á g ú s t 2 0 1 8 F I M M t U D A g U R22 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A ð I ð
tímamót
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
6
-4
4
9
4
2
0
9
6
-4
3
5
8
2
0
9
6
-4
2
1
C
2
0
9
6
-4
0
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K