Fréttablaðið - 16.08.2018, Page 40
Hvað
Hvenær
Hvar
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
16. ágúst
Tónlist
Hvað? KÍTÓN tónleikar – Dea sonans
Hvenær? 20.00
Hvar? Hannesarholt
Dea sonans var stofnaður snemma
árs 2018 af fjórum tónlistarkon-
um. Hann er tilkominn í kjölfar
tónleikaraðarinnar Freyjujazz sem
hefur það að markmiði að auka
sýnileika og tækifæri kvenna á
djassgrundvelli. Megináhersla tón-
leikanna í Hannesarholti verður á
frumsamda rytmíska tónlist með
latín og djass í aðalhlutverki, en
einnig er gripið til þekktra djass-
standarda í útsetningum meðlima.
Miðasala fer fram á tix.is
Hvað? Trausti X Seint X Dadykewl
Hvenær? 21.00
Hvar? Prikið
Tónlistarmennirnir Trausti, Seint
og Dadykewl koma fram á Prikinu.
Sálarmessa, af miklu að missa og
er áskilið er að mæta snemma.
Hvað? Tónlist í garðinum
Hvenær? 18.00
Hvar? Center Hótel, Laugavegi 120
Framúrskarandi djasstónlistar-
menn munu flytja vel þekkta
djass slagara og popp lög í djass-
búningi. Happy hour verð á
drykkjum og 20% afsláttur af
barmatseðli á meðan á viðburði
stendur. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
Hvað? Dillon Fönk
Hvenær? 21.30
Hvar? Dillon
Hljómsveitin Mókrókar
mun steikja allra heitustu
og sveittustu fönk-lumm-
urnar í matreiðslubókinni á
fimmtudögum á Dillon. Hver veit
nema þeir fái til liðs við sig góða
gesti. Gleðin hefst stundvíslega
klukkan 21.30, þannig að það er
eins gott að allir séu búnir að stilla
vasaúrið sitt. Aðgangur er ókeypis.
Hvað? Eyþór Ingi og allir hinir –
Bæjarbíó
Hvenær? 20.30
Hvar? Bæjarbíó
Það er ekkert lát á vinsældum
Eyþórs Inga. Uppselt víðsvegar um
landið og kemur hann nú fram í
fimmta sinn í Bæjarbíói í Hafnar-
firði. Eyþór Ingi er án efa einn af
okkar fremstu söngvarum í dag.
Hann hefur einnig getið sér gott
orð fyrir að vera mögnuð eftir-
herma. Hér er á ferðinni alveg
hreint mögnuð blanda af þessu
tvennu og gott betur. Eyþór hefur
farið sigurför um landið, einn
síns liðs, með píanóið, gítarinn og
röddina að vopni.
Hvað? Helgi Björns syngur óð um lífið
Hvenær? 21.00
Hvar? Skyrgerðin, Hveragerði
Helgi Björns fagnar 60 ára afmæli
um þessar mundir en hann á far-
sælan tónlistarferil að baki. Það
má enginn missa af því að heyra
þennan ástsæla söngvara flytja sín
bestu lög. Miðaverð kr. 3.500. For-
sala á bæjarskrifstofum.
Viðburðir
Hvað? Flamenco í Gamla kaupfélag-
inu
Hvenær? 20.00
Hvar? Gamla kaupfélagið, Akranesi
Ólíkir menningarheimar samein-
ast í eldheitum dansi, tilfinninga-
þrungnum söng og suðrænum
gítarleik undir formerkjum
flamenco. Flamenco hefur numið
land á Íslandi og verða settar á
svið fjórar sýningar víðsvegar
um landið. Listamennirnir sem
koma frá Spáni, Mexíkó og Íslandi
sameinast undir formerkjum
flamenco. Alejandra P. de Ávila,
dans – Jacób de Carmen, söngur
– Julian Fernández, gítar – Reynir
Hauksson, gítar.
Hvað? Technology and Touch
Hvenær? 17.00
Hvar? Tryggvagata 17
Félagið Íslensk grafík kynnir
Technology and Touch (Tækni og
snerting) í Grafíksalnum, Tryggva-
götu 17, hafnarmegin. Sýnendur
koma frá Íslandi og San Francisco
en sýningin hefur áður verið
sýnd í San Francisco og Las Vegas.
„Tækni og snerting“ er titill á sam-
vinnuverkefni grafíklistamanna
í Reykjavík og í San Francisco á
sviði grafíklistar. Markmið og
þema verkefnisins er að rannsaka
og sýna nýsköpun í aðferðum sem
tengjast hefðbundnum tækni-
legum útfærslum í grafíklist og
unnið er með á tveimur landfræði-
legum stöðum.
Hvað? Futurama Quiz at Lebowski
Bar
Hvenær? 21.00
Hvar? Lebowski bar
Búist er við fullu húsi og því um að
gera að bóka borð fyrirfram í síma
552-2300.
Hvað? Menningar- og heilsuganga:
Núvitund við Hvaleyrarvatn
Hvenær? 20.00
Hvar? Hvaleyrarvatn
Bryndís Jóna Jónsdóttir frá Núvit-
undarsetrinu leiðir í núvitund um
Hvaleyrarvatn. Gengið frá bílastæði
vestan við vatnið.
Hvað? Blómstrandi bjórbingó
Hvenær? 21.00
Hvar? Ölverk, Hveragerði
Við munum spila nokkra leiki
þvers og kruss um spjaldið og hafa
mjög gaman saman. Bingóstjóri
kvöldsins verður Sigurður Páll
bjórspekúlant ásamt leynigesti.
Ókeypis aðgangur en bjór spjald
fylgir með hverjum seldum bjór
frá kl. 20.30 (eitt spjald á mann
– takmarkað magn af spjöldum
í boði). 20 ára aldurstakmark &
mætið tímanlega vegna þess að
sætaframboð verður takmarkað.
Námskeið
Hvað? Hrað-námstækninámskeið
Hvenær? 10.00
Hvar? Náms- og starfsráðgjöf Háskóla
Íslands, Sæmundargötu 4
Stofa Ht-301. Skráning: Þjónustu-
borð Háskólatorgs (s. 525-5800)
Á þessum námskeiðum er farið
yfir kjarnaatriði varðandi góðar
námsvenjur og öfluga námstækni
eins og markmiðssetningu, tíma-
stjórnun, lestur og glósuaðferðir.
Verð: 6.000 kr.
Sýningar
Hvað? Sýning á verkum barna á
sumarnámskeiðum Hafnarborgar
Hvenær? 17.00
Hvar? Hafnarborg
Að baki er skapandi og skemmti-
legt myndlistarsumar í Hafnar-
borg þar sem börn sem tóku þátt í
myndlistarnámskeiðum á vegum
safnsins unnu að mörgum fjöl-
breytilegum verkefnum. Sýning
á afrakstri námskeiða sumarsins
verður opnuð fimmtudaginn
16. ágúst kl. 17-19 í Apótekssal
Hafnarborgar á jarðhæð safnsins,
boðið verður upp á léttar veitingar
og allir eru hjartanlega velkomnir.
Auk opnunardagsins verður
sýningin opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 12-17 til
24. ágústí
Helgi Björns fagnar 60 ára afmæli og syngur óð um lífið í Skyrgerðinni klukkan 21.00 í kvöld. fréttaBlaðið/anton Brink
flamenco dansar í Gamla kaupfélaginu,
akranesi, í kvöld klukkan 20.00
fréttaBlaðið/þórarinn
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Ódýr blekhylki
og tónerar!
VIÐ SÉRHÆFUM
OKKUR Í
ASÍSKRI
MATARGERÐ.
HOLLUR OG
LJÚFFENGUR
MATUR.
Vietnamese restaurant
Laugavegi 27 og
Suðurlandsbraut 8
sími: 588 6868
pho.is
1 6 . á g ú S T 2 0 1 8 F I M M T U D A g U R32 M e N N I N g ∙ F R É T T A B L A ð I ð
1
6
-0
8
-2
0
1
8
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
9
6
-2
6
F
4
2
0
9
6
-2
5
B
8
2
0
9
6
-2
4
7
C
2
0
9
6
-2
3
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K