Fréttablaðið - 01.09.2018, Qupperneq 18
20%
opnunar-
afsláttur
Gildir til og með 3. sept.
Við erum
komin
á Granda
Ly
a hefur opnað nýtt apótek við
Fiskislóð 3, í húsnæði Nettó, á Granda.
Komið og nýtið ykkur vegleg opnunar-
tilboð fram á mánudag, 3. september.
20% af öllum vörum.
*Tilboð gildir ekki fyrir lyfseðilsskyld lyf.
Lya á Granda er
opin alla daga 8–24. lya.is
Ef þig vantar langvarandi lausn
við þínum vanda,
er Lya góður fundarstaður,
hérna úti’ á Granda.
Fótbolti Rétt fyrir klukkan 15.00 í
dag mun Sara Björk Gunnarsdóttir
leiða lið sitt inn á fullan Laugar-
dalsvöll þar sem andstæðingarnir
verða Þjóðverjar. Leikurinn er liður í
undankeppni HM 2019 í knattspyrnu
kvenna, en þegar tveir leikir eru eftir
er Ísland á toppi riðilsins með eins
stigs forskot á þýska liðið. Liðið sem
hafnar í efsta sæti fer beint í loka-
keppnina og annað sætið gæti veitt
þátttökurétt í umspili. Af þeim sökum
er mikið í húfi.
„Það er mikil spenna hjá leik-
mönnum liðsins fyrir leiknum og
mér finnst einbeitingin og líkamlegt
og andlegt ástand vera í fullkomnu
standi. Það hefur verið ró yfir mann-
skapnum í undirbúningnum og leik-
menn hlakkar til leiksins frekar en
að vera stressaðir fyrir honum. Við
gerum okkur klárlega grein fyrir því
að þetta verður erfður leikur, en við
förum í hann til þess að ná í stigin
þrjú og tryggja sætið í lokakeppni
HM,“ sagði Sara Björk á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í gær.
„Ég er búin að ná mér að fullu af
þeim meiðslum sem ég varð fyrir síð-
astliðið vor og ég er fullkomlega klár
í slaginn. Ég hef æft einkar vel í sumar
og undirbúningstímabil í Þýskalandi
eru þannig að leikmenn komast í
gott hlaupaform. Þar af leiðandi er
ég reiðubúin í að leika heilan leik á
þessu getustigi á fullu tempói. Aðrir
leikmenn liðsins eru einnig í góðu
formi og við munum leggja allt sem
við eigum í leikinn,“ sagði hún um
stöðuna á sér og samherjum sínum.
„Það verður gaman að etja kappi
við samherja mína hjá Wolfsburg, en
þessi leikur hefur ekki verið mikið
ræddur í aðdraganda leiksins. Það var
ekki mikil stemming hjá þeim fyrir
því að ræða fyrri leikinn og að þessu
sinni er þegjandi samkomulag um að
láta bara verkin tala inni á vellinum.
Það kitlar mjög að fara með sigur af
hólmi, tryggja farseðilinn til Frakk-
lands og skilja þær eftir. Vonandi
gengur það eftir og ég held áfram að
hafa montréttinn,“ sagði miðvallar-
leikmaðurinn öflugi um andstæðinga
dagsins. hjorvaro@frettabladid.is
Spennandi tilhugsun að tryggja sætið
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er gríðarlega spennt fyrir leik liðsins gegn Þýskalandi í dag.
Sara Björk segir spennustigið hjá leikmönnum vera rétt stillt fyrir leikinn og meiri tilhlökkun en kvíði verið til staðar í undirbúningnum.
Sara Björk Gunnarsdóttir skokkar hér ásamt Guðbjörgu Gunnarsdóttur á æfingu íslenska liðsins. FréttaBlaðið/Eyþór
Ísland trónir á toppi
riðilsins fyrir leikinn með 16
stig og hefur eins stigs forskot
á Þýskaland. Sigur tryggir
sæti í lokkeppni HM.
1 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 l A U G A r D A G U r18 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
Sport
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
B
7
-5
9
A
0
2
0
B
7
-5
8
6
4
2
0
B
7
-5
7
2
8
2
0
B
7
-5
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K