Fréttablaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 74
Handaband er
samfélagsverk-
efni þar sem nýr
textíll og vörur
eru þróaðar úr
efni sem fellur
til við fram-
leiðslu á Íslandi.
Síðasta fimmtudag var opnuð sýningin Endalaust í Duus Safnahúsum í Reykjanesbæ
í tengslum við bæjarhátíðina
Ljósanótt. Þar sýna verk sín 20
hönnuðir og handverksfólk sem
eiga það sameiginlegt að vinna
með endurunna hluti og hráefni
sem annars hefði farið forgörðum,
segir Ragna Fróðadóttir sýningar-
stjóri sem valdi verkin á sýninguna.
„Hugmyndin að sýningunni kemur
frá Sunnevu Hafsteinsdóttur hjá
Handverki og hönnun. Hún hafði
samband við mig og bað mig um
að setja upp sýningu þar sem
Ruslið sem
breyttist
í listaverk
Tuttugu hönnuðir og handverksfólk,
sem eiga það sameiginlegt að vinna
með endurunna hluti og hráefni sem
annars hefði farið forgörðum, sýna
verk sín á Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Skartgripir úr rekavið sem tíndur var á Ströndum.
Ragna Fróðadóttir er sýningarstjóri
Endalaust. MYND/STEFÁN
Gamlar og
þreyttar
peysur fá nýtt líf
þegar þær eru
skreyttar og fá
fyrir vikið nýtt
framhaldslíf.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
fókusinn væri á hluti úr endurunnu
efni. Kveikjan að þessari hugmynd
var blaðagrein sem fjallaði um
textíliðnaðinn og offramleiðslu
og umhverfisspjöll sem tengjast
honum en sá iðnaður er næstmest
mengandi iðnaður í heiminum á
eftir olíuiðnaðinum.“
Mikil breidd
Hún segir landsmenn lifa í miklu
neyslusamfélagi þar sem alls konar
dóti sem sé jafnvel notað bara einu
sinni sé hent á hverjum degi. „Það
er mikilvægt að hönnuðir og lista-
fólk taki næstu skref í að gjörnýta
það sem flokkað er sem rusl í dag.
Þannig komum við því inn í hring-
rásina og gerum okkar til að snúa
við þessari þróun.“
Vel gekk að fá hönnuði og hand-
verksfólk til að taka þátt en Ragna
ákvað strax setja saman hóp ólíkra
aðila til að sýna breidd og fjöl-
breytni. „Þegar ég hóf leitina og aug-
lýsti eftir tillögum að verkum kom
í ljós að það er margt í gangi. Það er
auðvelt að finna spennandi hluti úr
endurunnum textíl en þegar kemur
að öðru hráefni þá er ekki eins
mikið í boði. Breiður grundvöllur
og ólíkir hönnunargripir urðu
þannig lykilorð sýningarinnar.“
Áhugaverð stuttmynd
Ragna segir undirbúninginn hafa
gengið vel. „Ég fékk til liðs við mig
tvo unga hönnuði sem útskrifuðust
úr textíldeild Myndlistaskólans
í Reykjavík í vor, þær Ragnheiði
Stefánsdóttur og Margréti Katrínu
Guttormsdóttur. Þær eiga hluti á
sýningunni en þær bjuggu einnig til
stuttmynd um efnivið og endur-
vinnslu. Myndin er hugsuð til að
vekja áhuga okkar á því að flokka
og endurvinna. Hún gengur út á að
vera meðvituð og sjá hluti í nýju
ljósi.
Einnig var ég með nema frá Eist-
landi, Anneli Kurm, sem tók þátt í
að búa til hluta af umgjörð sýning-
arinnar, sem eru grímur á gínunum
sem eru búnar til úr afgangsefnum
og rusli. Samstarfið við Handverk
og hönnun gekk mjög vel en þar eru
miklar fagmanneskjur á ferð með
ótrúlega reynslu í sýningarhaldi.“
Endalaust er samstarfsverkefni
Listasafns Reykjanesbæjar og
Handverks og hönnunar og styrkt
af umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
inu. Á Ljósanótt verður sýningin
opin milli kl. 12 og 18 í dag, laugar-
dag, og á morgun, sunnudag. Eftir
að Ljósanótt lýkur er sýningin opin
alla daga milli kl. 12 og 17 alveg til 4.
nóvember.
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS
SKIPTU UM SKÓ!
SKILAÐU GÖMLU SKÓNUM TIL OKKAR
OG FÁÐU KR.4.000.- INNEIGN UPP Í NÝJA!*
*ATH. Gildir 3.-10.sept. og ekki með öðrum afsláttum.
Við látum gömlu skóna þína ganga aftur!
HLAUPASKÓR - ÆFINGASKÓR
INNANHÚSSKÓR - UTANVEGASKÓR
VELDU RÉTTU SKÓNA TIL ÁRANGURS!
SKÓSÉRFRÆÐINGAR Á STAÐNUM
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . S E p T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
7
-C
6
4
0
2
0
B
7
-C
5
0
4
2
0
B
7
-C
3
C
8
2
0
B
7
-C
2
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K