Fréttablaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 47
Byggjum á betra verði
VEFSTJÓRI
Húsasmiðjan auglýsir eftir framúrskarandi einstaklingi í starf vefstjóra.
Vefverslun Húsa smiðjunnar hefur verið tilnefnd af SVEF sem
vefverslun ársins tvö ár í röð, 2016 og 2017.
Starf vefstjóra er fjölbreytt, spennandi og krefjandi. Vefstjóri ber ábyrgð á rekstri og þróun á vef síðum
og vefverslun Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts. Auk þess kemur vefstjóri mikið að staf rænni
markaðssetningu t.d. á samfélagsmiðlum. Vefstjóri starfar í markaðsdeild og heyrir undir markaðsstjóra.
Starfssvið
• Stýring, þróun og viðhald á vefsíðum
Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts.
• Dagleg umsjón, efnisinnsetning, ritstýring
og uppfærsla á vefsvæðum fyrirtækisins.
• Umsjón með vefverslun husa.is, blomaval.is
og iskraft.is ásamt þjónustuvef fyrirtækisins.
• Vinnsla myndefnis og yfirumsjón með viðhaldi
á vöruskrá á vef í samstarfi við vörusvið.
• Markaðssetning á samfélagsmiðlum
ásamt starfsfólki markaðsdeildar.
• Önnur tilfallandi verkefni er tengjast vefmálum,
s.s. leitarvélabestun, greining á gögnum o.fl.
Hæfniskröfur:
• Reynsla í vefumsjón og verkstjórn eða
sambærilegu starfi.
• Gott vald á íslensku og hæfni til að skrifa texta.
• Nákvæmni, agi og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Reynsla af vinnu með vefumsjónarkerfi (open source
kerfi t.d. Umbraco) er kostur.
• Grunnþekking á HTML (5), CSS og Javascript er kostur.
• Þekking á stafrænni markaðssetningu.
• Þekking á myndvinnslu t.d. Photoshop, Indesign eða
Illustrator er kostur.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar
til að sækja um. Öllum umsóknum
verður svarað og farið með þær sem
trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Magnús Magnússon,
markaðsstjóri Húsasmiðjunnar,
magnusm@husa.is.
Umsóknarfrestur:
9. september.
Sótt er um á:
www.husa.is/laus-storf
VILTU STÝRA EINNI STÆRSTU VEFVERSLUN LANDSINS?
Ein besta vefverslun
landsins tvö ár í röð!
Þjóðskrá Íslands leitar eftir að ráða sérfræðinga til starfa við fasteignaskráningu og
fasteignamat á Fasteignaskrársviði.
Við leitum að snjöllum starfsmönnum annars
vegar í teymi sem vinnur við skráningu
mannvirkja og eignaskiptayfirlýsinga og
hins vegar í teymi fasteignamatsútreikninga.
Starfsemin krefst daglegra samskipta við
fasteignaeigendur og sveitarfélög og lögð er
mikil áhersla á lipra og ábyrga þjónustu.
Sérfræðingar í fasteignaskráningu og fasteignamati
Hæfniskröfur:
• Menntun á sviði byggingarmála, fasteignasölu eða
sambærilegu sviði er skilyrði
• Reynsla af matsstörfum á byggingar- eða fasteingasviði
er kostur
• Reynsla af útreikningi byggingarkostnaðar er kostur
• Réttindi í gerð eignaskiptayfirlýsinga er kostur
• Góðir skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði
www.skra.is
www.island.is
Hlutverk Þjóðskrár Íslands er að greiða götu fólks og
fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi
þeirra og eignir. Við sinnum því með því að safna, varðveita
og miðla upplýsingum um fólk, mannvirki og landeignir.
Innan starfssviðs Þjóðskrár er rekstur fasteignaskrár og
þjóðskrár, útgefið fasteignamat og brunabótamat, rekstur
island.is og umsjón með útgáfu vegabréfa.
Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða
samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum
eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þá sem vilja starfa í
anda gilda okkar um virðingu, sköpunargleði og áreiðanleika.
Við höfum metnað til að hlúa að vinnustað okkar og
leggjum áherslu á fjölskylduvænt starfsumhverfi með
sveigjanleika fyrir starfsmenn. Þjóðskrá Íslands tekur nú þátt í
tilraunarverkefni um styttingu vinnuvikunnar.
ÁREIÐANLEIKIVIRÐING
SKÖPUNARGLEÐI
Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum.
Við nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að verða betri í dag enn í gær.
Umsóknarfrestur er til og með 17. september 2018. Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf.
Umsóknir óskast sendar á netfangið starfsumsoknir@skra.is.
Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og
viðkomandi stéttarfélag hafa gert og stofnanasamningum.
Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Steinsson, deildarstjóri mats- og hagdeildar í gegnum netfangið gs@skra.is
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
7
-B
7
7
0
2
0
B
7
-B
6
3
4
2
0
B
7
-B
4
F
8
2
0
B
7
-B
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K