Fréttablaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 84
MEÐ
Hildur Björnsdóttir
Fyrir fáeinum árum var ég búsett í London. Sonur minn var í grunnskóla og dóttir mín örfárra mánaða gömul. Dag einn
barst erindi frá skólanum sem greindi frá misl-
ingasmiti innan bekkjarins. Dóttir mín hafði
ekki náð þeim aldri að vera bólusett gegn misl-
ingum. Ég fylgdi syni mínum gangandi til skóla
daglega og var systir hans ávallt meðferðis.
Vegna vanrækslu annarra foreldra komst hún
því daglega í návígi við óbólusett börn. Börn
sem reyndust með mislinga.
Þátttaka í almennum bólusetningum á
Íslandi er óviðunandi að mati sóttvarnalæknis.
Minnki þátttaka frekar má búast við dreifingu
sjúkdóma sem ekki hafa sést hérlendis um
árabil. Samkvæmt alþjóðaheilbrigðisstofnun
hafa mislingar náð gífurlegri útbreiðslu í Evr-
ópu síðustu tvö ár – raunar hafa mislingatilfelli
sextánfaldast á tímabilinu.
Ég legg til að Reykjavíkurborg geri almennar
bólusetningar að skilyrði við inntöku í leik-
skóla, þó með sanngjörnum undantekningum.
Sækir tillagan fyrirmynd til annarra Evrópu-
þjóða. Hún sækir stoð í lög um leikskóla og
meðferð upplýsinganna færi eftir ákvæðum
persónuverndarlaga.
Hversu lengi ætlum við að bíða?
Bólusetningar eru ekki einungis gagnlegar
þeim sem þær þiggja – þær eru nauðsynlegar
þeim varnarlausu. Til eru einstaklingar sem
af heilsufarsástæðum eða vegna ungs aldurs
mega ekki þiggja bólusetningar – þeir reiða
sig á hjarðónæmi samfélagsins.
Óbólusettum börnum fjölgar. Foreldrar
þessara barna eru í langflestum tilfellum að
gleyma sér. Heilsugæslur hafa hrint af stað
fræðslu- og eftirfylgniátaki en átakið virðist
ekki hafa skilað tilætluðum árangri. Ein-
hverjir segja að gefa þurfi átakinu meiri tíma.
En útbreiðsla smitsjúkdóma er hröð – á fyrstu
sex mánuðum þessa árs hafa yfir 41.000 misl-
ingatilfelli greinst í Evrópu. Hversu lengi ætlum
við að bíða?
Ef bólusetningar verða inntökuskilyrði á
leikskóla borgarinnar yrði það foreldrum
tiltekin hvatning. Skilyrðinu yrði ekki beitt
af harðræði. Foreldrum væri gefinn aðlög-
unartími og fólk aðstoðað við að ljúka bólu-
setningum barna sinna svo tryggja mætti leik-
skólapláss.
Hafi barni ekki verið gefið nafn við 6 mán-
aða aldur telja yfirvöld sig knúin til að beita
foreldra dagsektum. Vilji foreldrar gefa barni
nýstárlegt nafn gæti það verið stöðvað af
mannanafnanefnd. Ef foreldrar neita barni um
bólusetningar aðhafast yfirvöld ekkert.
Foreldrum má ekki vera í sjálfsvald sett að
taka skaðlegar ákvarðanir um líf barna sinna
– allra síst þegar slíkar ákvarðanir geta einnig
haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir börn annarra.
Talið er að eingöngu 2% foreldra séu mótfall-
in bólusetningum. Það er því lítill hluti barna
sem lendir í vanda verði tillagan samþykkt.
Stærsti vandi þessara barna er auðvitað sá að
þeim er ekki tryggð nauðsynleg heilbrigðis-
þjónusta. Tillögunni er ekki ætlað að jaðarsetja
óbólusett börn. Henni er ætlað að vernda hags-
muni heildarinnar. Fræða þarf foreldra óbólu-
settra barna og styðja börnin sérstaklega svo
þeim séu tryggð þroskavænleg skilyrði.
Sóttvarnalæknir setur ekki inngönguskil-
yrði á leikskóla. Það gera sveitarfélög með
heimild í lögum um leikskóla. Sóttvarna-
læknir gefur ekki út tilmæli um skyldubundnar
bólusetningar nema faraldur fari af stað hér-
lendis. Það er hins vegar pólitísk ákvörðun
hvort sveitarfélög vilji ráðast í fyrirbyggjandi
aðgerðir. Stjórnmálamenn þurfa stundum að
taka djarfar ákvarðanir með hagsmuni heildar-
innar í huga.
Sumir vilja ekkert aðhafast fyrr en alvarleg
tilfelli smitsjúkdóma greinast hérlendis. Ég vil
ekki bíða. Bregðumst við strax.
Á MÓTI
Líf Magneudóttir
Með bólusetningum höfum við náð góðum tökum á og sigrað afar skæða sjúkdóma á síðustu öld. Þeim árangri
hljótum við öll að vilja viðhalda og ég efast
ekki um að allir borgarfulltrúar eru sammála
um mikilvægi þess að bólusetningarhlut-
fall haldist áfram nægilega hátt til að tryggja
hjarðónæmi. Í þeim efnum tel ég skynsam-
legast að hlusta á ráðleggingar sérfræðinga í
málaflokknum. Heilbrigðisstarfsfólk segir að
sem betur fer sé staðan ekki sú að beita þurfi
íþyngjandi aðgerðum við inntöku barna í leik-
skóla eins og að binda hana við bólusetningu
þeirra og sóttvarnalæknir hefur tekið í sama
streng og bendir á að skráningum geti verið
ábótavant og að rauntölur bólusettra séu lík-
lega hærri.
Heftandi inngrip í líf fólks
Heilbrigðismál, líkt og bólusetningar, verða
best leyst á vettvangi heilbrigðiskerfisins. Það
er ekki sveitarfélaga að taka fram fyrir hend-
urnar á Embætti landlæknis og stjórnmála-
menn verða að vera yfirvegaðir og upplýstir
þegar þeir leggja fram tillögur sem mæla með
heftandi inngripum í líf fólks og í þessu tilfelli
ungra barna og fjölskyldna þeirra. Það þarf
þá að minnsta kosti að vera vel rökstutt og að
almannaheill sé í húfi og vá fyrir höndum og
slíkt þarf að gerast í náinni samvinnu og sam-
ráði við fagfólk.
Að mínu mati er hugmynd borgar fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins vanreifuð og ýmsar
spurningar vakna sem krefjast úrlausnar verði
farið í slíkar þvingunaraðgerðir. Ástæðulaust
inngrip getur líka gert ástandið verra. Nú eru
t.d. bólusetningar við mislingum í fyrsta lagi
við 18 mánaða aldur. Hvenær á þá að vísa
óbólusettum börnum úr leikskóla og hvernig
á þá að starfrækja ungbarnadeildir eða taka
börn inn við 12 mánaða aldur séu þessi skil-
yrði í gildi? Það má líka spyrja sig hversu gagn-
legar þessar aðferðir eru ef einungis Reykja-
vík meinar óbólusettum börnum aðgang að
leikskólum en önnur sveitarfélög ekki. Hvað
á síðan að gera við óbólusett börn í grunn-
skólunum? Það er líka áleitin spurning í þessu
samhengi. Hvað með þau börn sem fara ekki
í endurbólusetningu við 12 ára aldur? Eru
leikskólastjórnendur eða starfsfólk skóla- og
frístundasviðs Reykjavíkurborgar sérstak-
lega fært um að leggja mat á heilbrigðisgögn
og sinna umsýslu þeirra? Er til lagastoð sem
styður þessar hugmyndir á vettvangi sveitar-
félaga? Svona mætti lengi telja.
Einnig getur verið að aðgerðir af þessu tagi
kunni að skapa falskt öryggi og gætu raunar
snúist upp í andhverfu sína. Ef óbólusettum
börnum foreldra, sem einhverra hluta vegna
bólusetja ekki börn sín, er meinaður aðgangur
að leikskólum þar sem þau njóta verndar af
hjarðónæmi, eykst hættan á því að þau safn-
ist saman í hópa, t.d. í tengslum við heima-
kennslu eða daggæslu. Slíkar aðstæður hafa
komið upp í Bandaríkjunum, þar sem þær
hafa átt ríkan þátt í t.d. nýlegum mislinga-
faröldrum. Þetta er raunverulegt áhyggjuefni
vísindafólks.
Langflestir foreldrar láta sem betur fer
bólusetja börnin sín og eru viljugir til þess.
Mín skoðun er sú að refsingar séu síst til þess
fallnar að fjölga bólusettum börnum. Sú leið
sem sóttvarnalæknir hefur lagt til sem varðar
fræðslu, forvarnir, eftirfylgni og að ná betur
utan um skráningar er mun betri en sú leið
sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ætlar
að leggja til; að útiloka óbólusett börn frá leik-
skólum borgarinnar. Aðgerðaáætlun Emb-
ættis landlæknis er mun skynsamlegri nálgun
svona fyrst í stað heldur en að byrja á öfugum
enda með óþarfa forræðishyggju og vanhugs-
uðum bönnum sem gætu haft ófyrirséðar
afleiðingar. Umræðan er góð en hún þarf að
vera upplýst og laus við upphlaup, oftúlkanir
og ónauðsynlegan hræðsluáróður.
Borgarfulltrúarnir Líf Magneudóttir, Vinstri græn-
um, og Hildur Björnsdóttir, Sjálfstæðisflokki, rök-
ræða um bólusetningar sem skilyrði fyrir inntöku
barna í leikskóla borgarinnar.
Eiga bólusetningar
að vera skilyrði
fyrir inntöku
barna í leikskóla?
MEÐ og Á MÓTI
Einnig gEtur vErið að
aðgErðir af þEssu tagi kunni
að skapa faLskt öryggi
og gætu raunar snúist upp í
andHvErfu sína.
forELdruM Má Ekki vEra í
sjáLfsvaLd sEtt að taka
skaðLEgar ákvarðanir uM Líf
Barna sinna – aLLra síst þEgar
sLíkar ákvarðanir gEta Haft
afdrifaríkar afLEiðingar.
1 . s E p T E M b E r 2 0 1 8 L A U g A r D A g U r40 H E L g I n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
7
-6
D
6
0
2
0
B
7
-6
C
2
4
2
0
B
7
-6
A
E
8
2
0
B
7
-6
9
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K