Fréttablaðið - 01.09.2018, Page 84

Fréttablaðið - 01.09.2018, Page 84
MEÐ Hildur Björnsdóttir Fyrir fáeinum árum var ég búsett í London. Sonur minn var í grunnskóla og dóttir mín örfárra mánaða gömul. Dag einn barst erindi frá skólanum sem greindi frá misl- ingasmiti innan bekkjarins. Dóttir mín hafði ekki náð þeim aldri að vera bólusett gegn misl- ingum. Ég fylgdi syni mínum gangandi til skóla daglega og var systir hans ávallt meðferðis. Vegna vanrækslu annarra foreldra komst hún því daglega í návígi við óbólusett börn. Börn sem reyndust með mislinga. Þátttaka í almennum bólusetningum á Íslandi er óviðunandi að mati sóttvarnalæknis. Minnki þátttaka frekar má búast við dreifingu sjúkdóma sem ekki hafa sést hérlendis um árabil. Samkvæmt alþjóðaheilbrigðisstofnun hafa mislingar náð gífurlegri útbreiðslu í Evr- ópu síðustu tvö ár – raunar hafa mislingatilfelli sextánfaldast á tímabilinu. Ég legg til að Reykjavíkurborg geri almennar bólusetningar að skilyrði við inntöku í leik- skóla, þó með sanngjörnum undantekningum. Sækir tillagan fyrirmynd til annarra Evrópu- þjóða. Hún sækir stoð í lög um leikskóla og meðferð upplýsinganna færi eftir ákvæðum persónuverndarlaga. Hversu lengi ætlum við að bíða? Bólusetningar eru ekki einungis gagnlegar þeim sem þær þiggja – þær eru nauðsynlegar þeim varnarlausu. Til eru einstaklingar sem af heilsufarsástæðum eða vegna ungs aldurs mega ekki þiggja bólusetningar – þeir reiða sig á hjarðónæmi samfélagsins. Óbólusettum börnum fjölgar. Foreldrar þessara barna eru í langflestum tilfellum að gleyma sér. Heilsugæslur hafa hrint af stað fræðslu- og eftirfylgniátaki en átakið virðist ekki hafa skilað tilætluðum árangri. Ein- hverjir segja að gefa þurfi átakinu meiri tíma. En útbreiðsla smitsjúkdóma er hröð – á fyrstu sex mánuðum þessa árs hafa yfir 41.000 misl- ingatilfelli greinst í Evrópu. Hversu lengi ætlum við að bíða? Ef bólusetningar verða inntökuskilyrði á leikskóla borgarinnar yrði það foreldrum tiltekin hvatning. Skilyrðinu yrði ekki beitt af harðræði. Foreldrum væri gefinn aðlög- unartími og fólk aðstoðað við að ljúka bólu- setningum barna sinna svo tryggja mætti leik- skólapláss. Hafi barni ekki verið gefið nafn við 6 mán- aða aldur telja yfirvöld sig knúin til að beita foreldra dagsektum. Vilji foreldrar gefa barni nýstárlegt nafn gæti það verið stöðvað af mannanafnanefnd. Ef foreldrar neita barni um bólusetningar aðhafast yfirvöld ekkert. Foreldrum má ekki vera í sjálfsvald sett að taka skaðlegar ákvarðanir um líf barna sinna – allra síst þegar slíkar ákvarðanir geta einnig haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir börn annarra. Talið er að eingöngu 2% foreldra séu mótfall- in bólusetningum. Það er því lítill hluti barna sem lendir í vanda verði tillagan samþykkt. Stærsti vandi þessara barna er auðvitað sá að þeim er ekki tryggð nauðsynleg heilbrigðis- þjónusta. Tillögunni er ekki ætlað að jaðarsetja óbólusett börn. Henni er ætlað að vernda hags- muni heildarinnar. Fræða þarf foreldra óbólu- settra barna og styðja börnin sérstaklega svo þeim séu tryggð þroskavænleg skilyrði. Sóttvarnalæknir setur ekki inngönguskil- yrði á leikskóla. Það gera sveitarfélög með heimild í lögum um leikskóla. Sóttvarna- læknir gefur ekki út tilmæli um skyldubundnar bólusetningar nema faraldur fari af stað hér- lendis. Það er hins vegar pólitísk ákvörðun hvort sveitarfélög vilji ráðast í fyrirbyggjandi aðgerðir. Stjórnmálamenn þurfa stundum að taka djarfar ákvarðanir með hagsmuni heildar- innar í huga. Sumir vilja ekkert aðhafast fyrr en alvarleg tilfelli smitsjúkdóma greinast hérlendis. Ég vil ekki bíða. Bregðumst við strax. Á MÓTI Líf Magneudóttir Með bólusetningum höfum við náð góðum tökum á og sigrað afar skæða sjúkdóma á síðustu öld. Þeim árangri hljótum við öll að vilja viðhalda og ég efast ekki um að allir borgarfulltrúar eru sammála um mikilvægi þess að bólusetningarhlut- fall haldist áfram nægilega hátt til að tryggja hjarðónæmi. Í þeim efnum tel ég skynsam- legast að hlusta á ráðleggingar sérfræðinga í málaflokknum. Heilbrigðisstarfsfólk segir að sem betur fer sé staðan ekki sú að beita þurfi íþyngjandi aðgerðum við inntöku barna í leik- skóla eins og að binda hana við bólusetningu þeirra og sóttvarnalæknir hefur tekið í sama streng og bendir á að skráningum geti verið ábótavant og að rauntölur bólusettra séu lík- lega hærri. Heftandi inngrip í líf fólks Heilbrigðismál, líkt og bólusetningar, verða best leyst á vettvangi heilbrigðiskerfisins. Það er ekki sveitarfélaga að taka fram fyrir hend- urnar á Embætti landlæknis og stjórnmála- menn verða að vera yfirvegaðir og upplýstir þegar þeir leggja fram tillögur sem mæla með heftandi inngripum í líf fólks og í þessu tilfelli ungra barna og fjölskyldna þeirra. Það þarf þá að minnsta kosti að vera vel rökstutt og að almannaheill sé í húfi og vá fyrir höndum og slíkt þarf að gerast í náinni samvinnu og sam- ráði við fagfólk. Að mínu mati er hugmynd borgar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vanreifuð og ýmsar spurningar vakna sem krefjast úrlausnar verði farið í slíkar þvingunaraðgerðir. Ástæðulaust inngrip getur líka gert ástandið verra. Nú eru t.d. bólusetningar við mislingum í fyrsta lagi við 18 mánaða aldur. Hvenær á þá að vísa óbólusettum börnum úr leikskóla og hvernig á þá að starfrækja ungbarnadeildir eða taka börn inn við 12 mánaða aldur séu þessi skil- yrði í gildi? Það má líka spyrja sig hversu gagn- legar þessar aðferðir eru ef einungis Reykja- vík meinar óbólusettum börnum aðgang að leikskólum en önnur sveitarfélög ekki. Hvað á síðan að gera við óbólusett börn í grunn- skólunum? Það er líka áleitin spurning í þessu samhengi. Hvað með þau börn sem fara ekki í endurbólusetningu við 12 ára aldur? Eru leikskólastjórnendur eða starfsfólk skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sérstak- lega fært um að leggja mat á heilbrigðisgögn og sinna umsýslu þeirra? Er til lagastoð sem styður þessar hugmyndir á vettvangi sveitar- félaga? Svona mætti lengi telja. Einnig getur verið að aðgerðir af þessu tagi kunni að skapa falskt öryggi og gætu raunar snúist upp í andhverfu sína. Ef óbólusettum börnum foreldra, sem einhverra hluta vegna bólusetja ekki börn sín, er meinaður aðgangur að leikskólum þar sem þau njóta verndar af hjarðónæmi, eykst hættan á því að þau safn- ist saman í hópa, t.d. í tengslum við heima- kennslu eða daggæslu. Slíkar aðstæður hafa komið upp í Bandaríkjunum, þar sem þær hafa átt ríkan þátt í t.d. nýlegum mislinga- faröldrum. Þetta er raunverulegt áhyggjuefni vísindafólks. Langflestir foreldrar láta sem betur fer bólusetja börnin sín og eru viljugir til þess. Mín skoðun er sú að refsingar séu síst til þess fallnar að fjölga bólusettum börnum. Sú leið sem sóttvarnalæknir hefur lagt til sem varðar fræðslu, forvarnir, eftirfylgni og að ná betur utan um skráningar er mun betri en sú leið sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ætlar að leggja til; að útiloka óbólusett börn frá leik- skólum borgarinnar. Aðgerðaáætlun Emb- ættis landlæknis er mun skynsamlegri nálgun svona fyrst í stað heldur en að byrja á öfugum enda með óþarfa forræðishyggju og vanhugs- uðum bönnum sem gætu haft ófyrirséðar afleiðingar. Umræðan er góð en hún þarf að vera upplýst og laus við upphlaup, oftúlkanir og ónauðsynlegan hræðsluáróður. Borgarfulltrúarnir Líf Magneudóttir, Vinstri græn- um, og Hildur Björnsdóttir, Sjálfstæðisflokki, rök- ræða um bólusetningar sem skilyrði fyrir inntöku barna í leikskóla borgarinnar. Eiga bólusetningar að vera skilyrði fyrir inntöku barna í leikskóla? MEÐ og Á MÓTI Einnig gEtur vErið að aðgErðir af þEssu tagi kunni að skapa faLskt öryggi og gætu raunar snúist upp í andHvErfu sína. forELdruM Má Ekki vEra í sjáLfsvaLd sEtt að taka skaðLEgar ákvarðanir uM Líf Barna sinna – aLLra síst þEgar sLíkar ákvarðanir gEta Haft afdrifaríkar afLEiðingar. 1 . s E p T E M b E r 2 0 1 8 L A U g A r D A g U r40 H E L g I n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð 0 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 B 7 -6 D 6 0 2 0 B 7 -6 C 2 4 2 0 B 7 -6 A E 8 2 0 B 7 -6 9 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 1 2 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.