Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2018, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 01.09.2018, Qupperneq 50
Verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð menntamála á skóla- og frístundasviði Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir starf verkefnastjóra innleiðingar á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og verkefninu Opinskátt um ofbeldi í skóla- og frístundastarfi í Reykjavík. Skóla- og frístundasvið veitir börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og annast m.a. rekstur grunnskóla, leik- skóla, frístundamiðstöðva, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita. Um er að ræða nýtt starf til þriggja ára vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og verkefnisins Opinskátt um ofbeldi í starfsemi skóla- og frístundasviðs. Verkefnastjóri veitir ráðgjöf og fræðslu til stjórnenda og starfsmanna í skóla- og frístundastarfi og styður við þróun og nýsköpun. Verkefnið tengist innleiðingu nýrrar menntastefnu Reykjavíkurborgar. Næsti yfirmaður er deildarstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar menntamála á skóla- og frístundasviði. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Ráðið verður í stöðuna frá 1. október 2018, eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2018. Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, sími 411-1111. Netfang: ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is. Helstu verkefni: • Innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og verkefnið Opinskátt um ofbeldi í starfsemi skóla- og frístundasviðs í samvinnu við starfsfólk. • Skipuleggja fræðslu og þjálfun starfsfólks varðandi Barnasáttmálann og lýðræðisvinnu auk verkefnisins Opinskátt um ofbeldi. • Vinna í samvinnu við stjórnendur og starfsmenn skóla- og frístundasviðs að fræðslu til foreldra/forráðamanna eftir þörfum. • Þverfagleg samvinna innan og utan skóla- og frístunda- sviðs í tengslum við málefnið. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði, leikskólakennarafræði, grunnskóla- kennarafræði eða sambærileg menntun. • Framhaldsmenntun kostur. • Víðtæk reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum og þekking á skóla- og frístundastarfi. • Þekking og áhugi á mannréttindum og lýðræðisvinnu með börnum og unglingum. • Reynsla af innleiðingu verkefna. • Framúrskarandi hæfni í samskiptum. • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð. • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góð enskukunnátta og önnur tungumálakunnátta kostur. • Góð tölvukunnátta. HÆFNISKRÖFUR • Þekking á vörubílum og vinnuvélum • Lausnamiðuð, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð • Góðir samskiptahæfileikar og snyrtimennska • Frumkvæði og geta til að vinna eftir stöðlum framleiðanda • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði töluð og rituð • Góð tölvukunnátta Umsóknir sendist á svsi@klettur.is til og með 15. september 2018. Óskað er eftir ferilskrá með meðmælum og kynningarbréfi þar sem fram kemur ástæða þess að sótt er um starfið. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Símonarson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs (svsi@klettur.is, s. 825 5752). GAKKTU TIL LIÐS VIÐ KRAFTMIKINN HÓP Við hjá Kletti - sölu og þjónustu óskum eftir að ráða þjónustulipran og ábyrgðarfullan sölumann í varahlutadeild Kletts. Klettur er leiðandi í sölu og þjónustu vörubíla, vinnuvéla og tækja. Hjá Kletti vinna um 95 manns við þjónustu og sölu á meðal annars Scania og Caterpillar tækjum og vélum, IR loftpressum og Goodyear hjólbörðum. Gildi Kletts eru heiðarleiki, fagmennska, liðsheild og staðfesta. KLETTAGARÐAR 8-10 590 5100 www.klettur.is Leiðsögumenn! Ört stækkandi fyrirtæki í ferðaþjónustu leitar að öflugu starfsfólki til að slást í för fyrir ævintýri haustsins og vetursins. Við gerum kröfu um ríka þjónustulund og mikla færni í mannlegum samskiptum. Að auki er góð enskukunnátta algjört skilyrði. Önnur tungumálakunnátta ásamt reynslu og þekkingu á bókunarkerfinu Bókun mikill kostur. Tröllaferðir er ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í ævintýraferðum um Ísland. Helstu starfsstöðvar þess eru í Reykjavík, á Þingvöllum, í Skaftafelli og á Sólheimajökli. Hjá fyrirtækinu starfar fjöldinn allur af fólki víðsvegar að úr heiminum. Ökuleiðsögumenn Helstu verkefni: • Leiða hópa okkar í skipulagðar ferðir um landið. Hæfniskröfur: • Þekking á landi og þjóð og geta til að miðla þeirri þekkingu á áhugaverðan og eftirtektarverðan hátt. • Góð framkoma. • Aukin ökuréttindi (D réttindi), öll aukin réttindi umfram D er kostur. • Nám og reynsla í leiðsögn er kostur. • Brennandi áhugi á ferðalögum innanlands. Jöklaleiðsögumenn Helstu verkefni: Leiða hópa í göngu- og ísklifursferðir um skriðjökla Mýrdals- og Vatnajökuls. Hæfniskröfur: • Hard Ice 1 námskeið. Hard Ice 2/3 er mikill kostur, sem og öll önnur námskeið er hafa með leiðsögn á jöklum að gera. • Aukin ökuréttindi er kostur. • Góð framkoma. • Reynsla af jöklaferðum er mikill kostur. • Nám og reynsla í leiðsögn er kostur. • Brennandi áhugi á ferðalögum innanlands. Yfirborðskafarar (snorkeling guides) Helstu verkefni: • Leiða hópa í yfirborðsköfun (snorkeling) í Silfru í Þingvallavatni. Hæfniskröfur: • Padi Dive Master réttindi. • Aukin ökuréttindi er mikill kostur. • Góð framkoma. • Reynsla af jöklaferðum er kostur. • Nám og reynsla í leiðsögn er kostur. • Brennandi áhugi á ferðalögum innanlands. Frekari upplýsingar um fyrirtækið og starfsemi þess má nálgast á heimasíðu fyrirtækisins, www.trollaferdir.is Við hvetjum alla til að sækja um óháð kyni, aldri og þjóðerni. Umsóknum skal skilað á tölvupóstfangið info@trollaferdir.is og skal henni fylgja CV, kynning og mynd af umsækj anda. Umsóknarfrestur er til og með 20. september, en fyrirtækið tekur við umsóknum allt árið um kring. HH Ráðgjöf • Fjarðargata 13 - 15 • 220 Hafnarfjörður • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Ráðningarþjónusta Steypustöð Starfsmað Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um starfið þar. Leitað er að sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa í steypustöð. Starfssvið Hæfniskröfur • Starfið er fólgið í framleiðslu steinsteypu ásamt skráningu, afhendingu og almennu viðhaldi. • Kunnátta/þekking á framleiðslu steinsteypu • Góð almenn tölvukunnátta • Lyftarapróf kostur • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Rík öryggisvitund Starfsmaður í steypustöð Einingaverksmiðjan var stofnuð 1994 og framleiðir forsteyptar einingar til húsbygginga. Ertu í lEit að draumastarfinu? Finndu þitt starf á atvinna.frettabladid.is 0 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 B 7 -D 0 2 0 2 0 B 7 -C E E 4 2 0 B 7 -C D A 8 2 0 B 7 -C C 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.