Fréttablaðið - 01.09.2018, Síða 86

Fréttablaðið - 01.09.2018, Síða 86
KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Í lok ársins 2000 tilkynnti alþjóðaknattspyrnusam-bandið FIFA niðurstöður viðamikillar netkosningar, þar sem velja skyldi besta knattspyrnumann tuttug- ustu aldar. Óhætt er að segja að kosningin hafi snúist í höndunum á stjórnendum sambandsins. Fljót- lega kom í ljós að argentínska goð- sögnin Diego Maradona myndi vinna með yfirburðum og hlaut hann að lokum meira en helming atkvæða. Þessi úrslit voru FIFA lítt að skapi. Maradona er ólíkindatól sem rekinn hafði verið heim af heimsmeistara- móti fyrir að falla á lyfjaprófi, átti í stöðugum vandræðum með eitur- lyfjafíkn sína og undi sér betur í hópi kommúnistaleiðtoga á Kúbu eða í Venesúela en innan um silki- húfur á fundum FIFA. Brasilíumað- urinn Pelé þótti hins vegar betur húsum hæfur, hafði heilbrigðari lífsstíl og áralanga reynslu af kynn- ingarstörfum fyrir fótboltaíþróttina. Skömmu áður en kosningu lauk, lýstu stjórnendur FIFA því yfir að ekki yrði um einn heldur tvo titla að ræða. Annars vegar fyrir sigurvegara netkosningarinnar, en hins vegar myndi sérstök dómnefnd sérfræð- inga velja sinn leikmann – og varð Pelé þar hlutskarpastur. Rökin fyrir þessari ráðstöfun voru sögð þau að þátttakendur í netkosningunni væru flestir ungir að árum og hefðu því ekki haft færi á að sjá Pelé á velli! Þótt þessi nýtilkomna sögu- lega afstæðishyggja Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins snerist líklega mest um andúð á Maradona, var hún að mörgu leyti góðra gjalda verð. Almenningur hefur til- hneigingu til að velja þá sem næst standa í tíma. Listarnir yfir tíu efstu leikmennina í almennu net- kosningunni og í vali sérfræðinga- nefndarinnar voru þó keimlíkir. Helsti munurinn var sá að Argent- ínumaðurinn Alfredo Di Stéfano (sem síðar lék einnig landsleiki fyrir Kólumbíu og Spán) var í öðru sæti hjá sérfræðingunum en mun neðar hjá almúganum. Di Stéfano var lang- elsti fótboltamaðurinn á listanum, en hann var upp á sitt besta um og upp úr 1950. Með réttu hefðu verð- launin því átt að heita: besti knatt- spyrnumaður seinni helmings tuttugustu aldar. Gleymdir frumherjar En hvaða kempur frá fyrri helmingi aldarinnar hefðu getað komið til greina á lista sem þennan? Upp í hugann kemur Matthias Sinderlaar, sem var lykilmaður í austurríska landsliðinu á fjórða áratugnum, sem bylti hugmyndum fólks um hvernig leika skyldi fótbolta. Ung- verjinn Imre Schlosser kæmi líka til álita, en hann lék sinn fyrsta lands- leik árið 1906 aðeins sextán ára gamall og er enn í dag markahæsti leikmaður ungversku deildarinnar. Fyrsta ofurstjarnan Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um mann sem breytti fótbolta- sögunni. Og svo er það José Andrade … Með réttu ætti Úrúgvæinn José Leonardo Andrade að vera nefndur í sömu andrá og þeir Maradona og Pelé sem merkustu fótboltamenn Suður-Ameríku. Samanburður á færni leikmanna milli ólíkra tíma- bila er vissulega erfiður ef ekki ómögulegur, en allir þrír höfðu djúpstæð áhrif á íþróttina. Þar að auki var lífshlaup Úrúgvæ jans ævin- týralegast þeirra þriggja. Andrade fæddist í borginni Salto árið 1901. Móðir hans var argent- ínsk en faðirinn sagður strokuþræll frá Brasilíu, sem var talinn vel að sér í afrískum göldrum. Galdrakunn- áttan gæti hafa komið við sögu við getnað sonarins, því faðirinn var 98 ára gamall þegar José litli kom í heiminn. Lífsbarátta fjölskyldunnar var hörð og milli þess sem drengur- inn lék sér í fótbolta, sinnti hann hvers kyns störfum: burstaði skó og seldi dagblöð, en aflaði sér einnig tekna með dansi og hljóðfæraslætti. Hann lék á fjölda hljóðfæra og þótti góður söngmaður. Að auki var hann hár og tígulega vaxinn. Spruttu því sögur um að hann hefði framfleytt sér sem fylgdarsveinn ríkra, eldri kvenna. Vert er að taka öllum sögum um fjölkynngi og blíðusölu með fyrir- vara, þar sem þær kunna frekar að vera til marks um staðalmyndir og kynþáttafordóma sem ríkjandi voru í úrúgvæsku samfélagi þeirra tíma, þar sem fólk af evrópskum uppruna var í miklum meirihluta. Margt í lífshlaupi Josés Andrade átti þó eftir að styrkja í sessi glaumgosa- ímyndina. Tvítugur varð hann atvinnumað- ur í knattspyrnu og þremur árum síðar gekk hann í raðir stórliðsins Nacional í höfuðborginni Monte- vídeó. Það sama ár, 1924, vakti hann athygli heimsbyggðarinnar með landsliði þjóðar sinnar. Íbúar Suður-Ameríku höfðu lært fótbolta af Bretum og tekið opnum örmum. Í álfunni þróaðist íþróttin með nokkuð öðrum hætti en í Evr- ópu. Evrópski leikstíllinn var kröft- ugri og beinskeyttari, en vestan hafs var áherslan lögð á lipran samleik, auk þess sem leikmenn gátu rakið knöttinn fimlega fram og aftur um völlinn. Engir þóttu þó flinkari en íbúar Úrúgvæ. Þrátt fyrir smæð landsins vann Úrúgvæ Suður- Ameríkukeppnina í fimm af fyrstu átta skiptunum sem hún var haldin frá 1916-1924. Meistaratign og ljúfa lífið Í Evrópu vissi enginn neitt um styrkleika suður-amerísku liðanna. Ólympíuleikar voru haldnir í París sumarið 1924 og skráðu 22 lönd sig til leiks í knattspyrnukeppn- inni – þar af 19 frá Evrópu. Bresku landsliðin fjögur ákváðu að sitja heima vegna deilna um atvinnu- mennsku, en FIFA samdi um það við Alþjóðaólympíunefndina að sigurlið keppninnar yrði krýnt heimsmeistari. Úrúgvæ var eini fulltrúi Suður- Ameríku og vakti koma liðsins, sem sigldi á þriðja farrými til Evr- ópu, enga athygli. Keppt var með útsláttarfyrirkomulagi og mættu ferðalúnir leikmennirnir liði Júgó- slava í fyrsta leik. Júgóslavar voru sigurvissir og báðust fyrirfram afsökunar á að slá mótherja sína úr keppni eftir svo langt ferðalag. Gorgeirinn var skiljanlegur. Júgó- slavar höfðu látið njósnara sína fylgjast með æfingu hjá Úrúgvæ, en þar á bæ höfðu menn borið kennsl á njósnarana og þóst vera arfaslakir. Sárafáir áhorfendur sáu Suður- Ameríkumennina taka lið Júgó- slavíu í nefið, 7:0, en strax í kjölfarið fór fréttin að kvisast út: að hér væri einstakt knattspyrnulið á ferðinni. Slegist var um miðana á leiki Úrúg- væs það sem eftir var á mótinu. Í fjórðungsúrslitum troðfylltu Par- ísarbúar völlinn til að sjá sitt eigið lið sundurspilað, 5:1, en fögnuðu andstæðingunum engu að síður sem hetjum. Í úrslitaleiknum sjálfum var nánast hver einasti áhorfandi á bandi Úrúgvæ sem tók Sviss í 3:0 kennslustund. Hrifnæmur blaðamaður sagði úrúgvæsku leikmennina bera af öðrum á mótinu sem veðhlaupa- hestar í hópi dráttarklára. Aðrir líktu leikstíl þeirra við dans eða ballett. Enginn vakti þó meiri aðdáun en José Andrade. Annar eins leikstjórnandi hafði aldrei sést á velli. Hann virtist líða áfram með knöttinn fyrirhafnarlaust og senda hárnákvæmar sendingar að vild á samherja sína í gegnum vörn and- stæðinganna. Þess á milli brá hann á leik, þannig var hann sagður hafa hlaupið yfir hálfan völlinn með knöttinn á enninu, án þess að mót- herjarnir kæmu vörnum við. Litaraftið jók enn á dulúð Andr- ade í huga áhorfenda í París. Þel- dökkir íþróttamenn voru nánast óþekktir á evrópskum leikvöngum og vöktu því mikla forvitni. Franska skáldkonan Colette, sem oft hafði tekist að ganga fram af samlöndum sínum með hispursleysi, var send af ritstjóra nokkrum til að skrifa um úrúgvæsku knattspyrnumennina. Efnið vakti engan áhuga hennar, fyrr en komið var á hótel liðsins, þar sem meira fór fyrir dansi og hljóð- færaslætti en boltasparki. Skáldkonan dró upp æsilega mynd af gleðskapnum og krydd- aði sögu sína rækilega. Þannig lýsti hún því hvernig Úrúgvæjarnir hefðu heilsteikt lifandi nautgrip í veislunni og féll sú lýsing vel að hugmyndum Frakka um að fót- boltasnillingarnir væru einhvers konar náttúrubörn og hálfgerðir villimenn. Sjálf kolféll Colette fyrir Andrade, sem söng og dansaði. Varð það upphafið að stuttu en eldheitu ástarævintýri þeirra. Önnur frægð- arkona sem heillaðist af Andrade þessar vikur í París var dansarinn heimsfrægi Josephine Baker. Þau dönsuðu saman og urðu miklir vinir – sumir telja elskendur. Fleiri konur voru í spilinu hjá hinum dansglaða Andrade í París. Milli leikja skellti hann sér í svallið og er engin leið að greina á milli hvað er satt og hvað logið af hinum ótalmörgu frásögnum af gjálífi hans í heimsborginni. Ljóst er þó að stór- stjörnulífið féll leikmanninum vel í geð og hratt honum út á vafasamar brautir. Fjórum árum síðar var Andrade enn í aðalhlutverki þegar Úrúgvæ varði Ólympíu-/heimsmeistaratitil sinn, að þessu sinni í Amsterdam. Ófáar íþróttasögubækur segja frá því atviki þegar hann skallaði mark- stöng í undanúrslitaleiknum gegn Ítölum og varð fyrir vikið blindur á öðru auga. Aðrir telja þó líklegt að sjónsköddunin hafi verið afleiðing sárasóttar sem farin var að þjaka leikmanninn. Veikindin gerðu það að verkum að Andrade var ekki í sama burðarhlutverkinu á fyrsta HM í fótbolta í Úrúgvæ árið 1930, þar sem heimamenn unnu sinn þriðja heimsmeistaratitil. Í kjöl- farið lá leið hans niður á við og árið 1957 lést hann í sárri örbirgð aðeins 55 ára gamall, þrotinn að kröftum vegna áfengissýki og kynsjúkdóma. Hversu góður José Andrade var í raun í samanburði við aðra leik- menn sem uppi voru á allt öðrum tímum er erfitt að svara og skiptir í raun engu. Hann var hins vegar fyrsta alþjóðlega ofurstjarna fót- boltans og átti sem slíkur tals- verðan þátt í að stuðla að stöðu greinarinnar sem vinsælasta íþrótt í heimi. Það setur hann í hóp þeirra allra stærstu. Milli leikja Skellti hann Sér í Svallið  … 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r42 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 1 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 B 7 -8 1 2 0 2 0 B 7 -7 F E 4 2 0 B 7 -7 E A 8 2 0 B 7 -7 D 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 3 1 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.