Fréttablaðið - 01.09.2018, Qupperneq 100
Ifo Tolentino í Norræna húsinu.
Níu hannyrðabúðir á höfuð-borgarsvæðinu taka sig saman í dag og bjóða upp á
kynningar, tilboð, kaupauka, sýn-
ingar, pop-up-markaði, veitingar
og fleira. Þá fá prjónarar afhent
stimpilkort og geta fengið stimpil
í hverri búð sem þeir heimsækja.
Ef níu stimplar nást á kortið í dag
kemst viðkomandi í pott þar sem
veglegir vinningar eru í boði.
Guðrún Hannele Henttinen í
garnversluninni Storkinum við
Síðumúla segir garngönguna nú
haldna í annað sinn. „Í fyrra var
mjög góð þátttaka og við eigum
von á að hún verði enn meiri í ár.
Það er svo mikill fjöldi sem prjónar
af ástríðu, miklu fleiri en margir
halda. Þetta verður veisla fyrir þá.“
Guðrún á elstu prjónabúð lands-
ins, Storkinn sem er 65 ára. „Það er
svo mikil hreyfing á öllu á Íslandi
að mér finnst jákvætt þegar eitthvað
heldur velli,“ segir hún ánægju-
lega. Reyndar flutti búðin hennar í
Síðumúlann fyrir níu árum eftir 56
ár í Kjörgarði. „Hér er opnara, bjart-
ara og skemmtilegra,“ segir Guðrún,
„og mun auðveldara að fá stæði.“
Prjónasprengja síðustu ára er
alþjóðleg og henni fylgir fjölgun
prjónahönnuða og aukið framboð
af garni og prjónabókum, að sögn
Guðrúnar. „Mín kenning er sú að
í þessum tæknivædda heimi finni
fólk ró og lífsfyllingu í að grípa í
prjóna og nota hug og hönd til að
skapa með þeim. Við höfum kastað
á loft hugtakinu „ást í hverri lykkju“
og það á vel við því það er svo auð-
velt og gott að tjá ást og umhyggju
með því að prjóna eitthvað fallegt á
fólk.“ gun@frettabladid.is
Garnganga- og akstur milli búða
Guðrún segir sterkar prjónahefðir á Íslandi, og nefnir lopapeysuprjón og að
prjóna á nýfæddu börnin, sem dæmi. FréTTablaðIð/STeFáN
Hvað? Teitur Magnússon & Æðis-
gengið + Bagdad Brothers
Hvenær? 14.00
Hvar? Lucky Records, Rauðarárstíg 10
Ókeypis tónleikar í tilefni af nýút-
kominni plötu. Heitt á könnunni.
Sunnudagur
2. september 2018
Viðburðir
Hvað? Grafíkverk á
Mokka
Hvenær? 8.00
Hvar? Skólavörðu-
stígur 3a
Tryggvi Ólafs-
son sýnir grafík-
verk á Mokka
frá 24. ágúst til
3. október. Þetta
er fimmta einka-
sýning Tryggva á
Mokka á einum 40
árum. Sýningin er einn-
ig sölusýning.
Hvað? Bergman í Bíói Paradís
Hvenær? kl. 16.00
Hvar? Bíó Paradís, Hverfisgötu 54
Bíósýning á Wild Strawberries
eftir Ingmar Bergman, ásamt pall-
borðsumræðum eftir myndina um
Bergman sem höfund.
Hvað? Skiltagerð loftslagsgöngu
Hvenær? 15.00
Hvar? Andrými, Bergþórugötu 20
Nú hefst loftslagsvika sem endar á
loftslagsgöngu 8. september. Þema
vikunnar er baráttugleði. Við
ætlum að hittast og búa til skilti og
borða saman á sunnudag 2. sept-
ember. Öll velkomin sem hafið
áhuga á málstaðnum og ef þið
viljið einnig borða þá komið þið
með eitthvað vegan á hlaðborðið.
Tónlist
Hvað? Út í vorið og 3Klassískar
Hvenær? 16.00
Hvar? Háteigskirkja
Tveir sönghópar, Út í vorið og
3Klassískar, sameinast á tón-
leikum. Sönghóparnir hafa ekki
sungið saman síðan í Flatey á
Skjálfanda 2001 svo nú er einstakt
tækifæri til að hlýða á söng þeirra.
Hvað? Grísa lappalísa & Andi í Iðnó
Hvenær? 20.00
Hvar? Iðnó, Vonarstræti 3
Garnbúðirnar
amma mús
Grensásvegi 46, Reykjavík
Storkurinn
Síðumúla 20, Reykjavík
litla prjónabúðin
Faxafeni 9, Reykjavík
Handprjónasambandið
Borgartúni 31,Reykjavík
Handverkskúnst
Hraunbæ 102b, Reykjavík
Föndra
Dalvegi 18, Kópavogi
Gallery Spuni
Engihjalla 8, Kópavogi
Handprjón
Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði
Garnbúð eddu
Strandgötu 19, Hafnarfirði
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
1. september 2018
Viðburðir
Hvað? Skiptifatamarkaður Rauða
krossins
Hvenær? 13.00
Hvar? Rauði krossinn, Efstaleiti 9
Rauði krossinn í Reykjavík efnir á
ný til skiptimarkaðar með barna-
föt í Gerðubergi. Komdu með
hreinar og heilar flíkur sem nýtast
þinni fjölskyldu ekki lengur og
skiptu fyrir föt í réttum stærðum!
Hvað? Bókamarkaður
Hvenær? 10.00
Hvar? Listasafn Reykjavíkur
Listaverkabækur til sölu á opn-
unartíma safnsins, helgina 1.-2.
september. Allar bækur á 500.
Hvað? Tvær sýningaropnanir
Hvenær? 17.00
Hvar? Kling & Bang
Páll Haukur, Dauði hlutarins og
Auður Ómarsdóttir, Stöngin – Inn.
Tónlist
Hvað? Tónleikar Ife Tolentino, Óskars
Guðjónssonar og
annarra
Hvenær? kl. 21.00
Hvar? Norræna
húsið
Brasilíski söngvar-
inn og gítarleikarinn
Ife Tolentino heldur tón-
leika í Norræna húsinu í
tilefni af því að nú eru 16 ár síðan
hann kom fyrst til Íslands. Miðar á
tix.is, kr. 2.500.
Whitney ..................................................... 17:40
Kona fer í stríð (eng sub) ............. 18:00
Svanurinn (eng sub) ........................ 18:00
Whitney .................................................... 20:00
Kvíðakast (Atak Paniki) ................... 20:00
Nýjar hendur (eng sub) ................. 20:00
Adrift .......................................................... 22:00
Andið eðlilega (eng sub) .............. 22:00
Kvíðakast (Atak Paniki) .................... 22:20
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
LAUGAVEGI 91
ÚTSÖLULOK
allt að 50% afsláttur af úsöluvörum
um helgina
Sönghópar í
Háteigskirkju.
1 . s e p T e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r56 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
0
1
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
B
7
-6
3
8
0
2
0
B
7
-6
2
4
4
2
0
B
7
-6
1
0
8
2
0
B
7
-5
F
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
3
1
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K