Fréttablaðið - 08.09.2018, Síða 16
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Ef kjósendur
láta hesta-
hvíslara plata
sig og kjósa
án nokkurrar
yfirlegu getur
það haft vo-
veifleg áhrif á
líf okkar frá
degi til dags.
Ég var á leiðinni út í sjoppu að kaupa mér dagblað þegar ég rakst á auglýsingaplakat sem hékk á ljósa-staur. „Við megum aldrei gleyma“ er heiti dans-
sýningar Enska listdansflokksins sem sýnd er í hverfis-
leikhúsinu mínu hér í London. Sýningin fjallar um
þjáningar hermanna og óbreyttra borgara í fyrri heims-
styrjöldinni en Bretar minnast þess nú með ýmsum
hætti að hundrað ár eru liðin frá lokum stríðsátakanna
sem kostuðu sautján milljónir manna lífið – tíu milljónir
hermanna og sjö milljónir óbreyttra borgara sem létust
vegna átaka, hungursneyðar og sjúkdóma.
„Lest we forget“ eða „við megum aldrei gleyma“ eru
einkunnarorð sem höfð hafa verið um hin ýmsu voða-
verk í mannkynssögunni. Varnaðarorðin komust í
almenna notkun í Bretlandi að fyrri heimsstyrjöldinni
lokinni – stríðinu sem átti að binda enda á öll stríð. Í dag
eru þau ekki síður notuð sem móralskt ákall til áminn-
ingar um Helförina og óhæfuverk nasista í seinni heims-
styrjöldinni. Þegar ég gekk inn í sjoppuna blasti hins
vegar við mér á forsíðum blaðanna hve máttlítil fögur
fyrirheit geta verið.
Gorbatsjov og Clancy
Í vikunni nafngreindu bresk lögregluyfirvöld tvo rúss-
neska ríkisborgara sem sakaðir eru um að bera ábyrgð á
taugaeiturárás í mars síðastliðnum gegn Sergei Skrípal
og dóttur hans, Júlíu Skrípal. Theresa May, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagðist hafa fyrir því sannanir að
mennirnir væru njósnarar og að rússnesk stjórnvöld
hefðu fyrirskipað árásina. Hét hún því að „beita öllum
úrræðum til að tryggja öryggi þegna sinna“. Segja heim-
ildarmenn að breska leyniþjónustan undirbúi meðal
annars nethernað á hendur Rússum. Fjöldi þekktra
tilvitnana um mátt minnisins sýnir hve útbreidd sú trú
er að leiðin að betrun sé að gleyma ekki misgjörðum
okkar og göllum og læra af reynslunni. „Þeir sem kjósa
að gleyma fortíðinni eru dæmdir til að endurtaka hana.“
„Sagan endurtekur sig kannski ekki en hún rímar.“
En er máttur minnisins svo mikill að hann geti komið
í veg fyrir sjálfskapaðar hörmungar?
Árið 2014 var því fagnað að aldarfjórðungur var liðinn
frá falli Berlínarmúrsins. Skugga bar á hátíðarhöldin er
þau stóðu sem hæst þegar Mikhaíl Gorbatsjov, fyrr-
verandi leiðtogi Sovétríkjanna, sagði á málþingi í Berlín
að veröldin væri á barmi nýs kalds stríðs. „Sumir segja
að það sé nú þegar hafið,“ bætti hann við. Gorbatsjov
reyndist sannspár. Að lesa bresk dagblöð þessa dagana
er eins og að lesa kaldastríðsspennutrylli eftir meistara
njósnaskáldsagnanna, Tom Clancy. Hið nýja kalda stríð
sem nú geisar er þó ekki eina forsíðufréttin í Bretlandi
sem rennir stoðum undir máttleysi minnisins.
Bresk kaldhæðni
„Ég er sannfærð um að Helförin geti gerst aftur,“ sagði
Miep Gies, ein þeirra sem aðstoðuðu fjölskyldu Önnu
Frank við að fela sig fyrir nasistum í Amsterdam í síðari
heimsstyrjöldinni. „Hún er nú þegar búin að gerast aftur:
Kambódía, Rúanda, Bosnía.“ Það hriktir í stoðum breska
Verkamannaflokksins vegna ásakana um að gyðingahat-
ur fái að þrífast innan hans. Gyðingum innan flokksins
hefur fundist að sér vegið síðustu mánuði. Í lok sumars
sauð rækilega upp úr þegar breska dagblaðið Daily Mail
birti myndband af Jeremy Corbyn, leiðtoga flokksins,
þar sem hann gagnrýndi „breska síonista“ fyrir að skilja
ekki breska kaldhæðni þrátt fyrir að hafa alist upp í
landinu. „Gyðingar hafa búið í Bretlandi frá árinu 1656,“
sagði Jonathan Sacks, fyrrverandi rabbíni, í sjónvarps-
viðtali um síðustu helgi. „Í fyrsta sinn í þessi 326 ár spyr
stór hluti gyðinga sig eftirfarandi spurningar: Er okkur
óhætt að ala börnin okkar upp í þessu landi?“
Lærdómur sögunnar
Ekki liðu nema rétt rúm tuttugu ár á milli fyrri heims-
styrjaldarinnar og þeirrar seinni. Tuttugu og fimm ár liðu
frá falli Berlínarmúrsins uns hilla tók undir annað kalt
stríð. Voðaverk endurtaka sig í hringrás tímans þegar
sagan rímar; ekki vegna þess að við gleymum – heldur
þrátt fyrir að við munum. Svo virðist sem það eina sem
við getum lært af sögunni sé að við lærum ekkert af
sögunni.
Máttleysi minnisins
Opinn félagsfundur
um kjaramál
og undirbúning kröfugerðar
Félagsfundur Eflingar-stéttarfélags
Félagsfundur Eflingar-stéttarfélags verður haldinn
fimmtudaginn 13. september kl. 20:00.
Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Eflingar, 4. hæð,
Guðrúnartúni 1.
Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:
1. Kjaramál og undirbúningur kröfugerðar
2. Önnur mál
Félagar fjölmennið.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags
Enn einu sinni er allt á suðupunkti í Hvíta húsinu eftir röð atburða í síðustu viku. Fyrst bárust fregnir af væntanlegri bók Water-gate-blaðamannsins Bobs Woodward um forsetann Trump og síðan birtist grein eftir ónefndan háttsettan embættismann í Hvíta
húsinu í stórblaðinu The New York Times.
Rétt eins og bók Michaels Wolff, Fire and Fury, gerði
fyrr á árinu sýna þeir útdrættir úr bók Woodwards sem
ratað hafa í fjölmiðla forsetann í vægast sagt furðulegu
ljósi. Bréfið sem birtist í The New York Times rímar svo
ágætlega við bækurnar tvær.
Í bréfinu segir huldumaðurinn að einhugur sé um
það í Hvíta húsinu að forsetinn sé óhæfur til að gegna
embættinu. Innan ríkisstjórnarinnar starfi hópur fólks
sem stundi þögult andóf gegn forsetanum, hundsi eða
leiði hjá sér verstu tilskipanir hans og reyni að tak-
marka það tjón sem hann getur valdið. Hópinn segir
hann þreyja þorrann þar til forsetinn neyðist loks til að
segja af sér eða verður felldur í vantraustskosningu.
Í bók Woodwards koma fram svipaðar bollalegg-
ingar. Ráðgjafi hans í efnahagsmálum, Goldman Sachs-
bankamaðurinn Gary Cohn, stundaði það víst að láta
skjöl hverfa af skrifborði forsetans. Trump á einnig að
hafa viljað standa fyrir stórkostlegum árásum á Sýrland.
Embættismennirnir gripu hins vegar í taumana og
aðgerðirnar urðu að endingu mun vægari.
Stefið er alltaf það sama. Forsetinn er að því er virðist
snarruglaður og gersamlega óhæfur til starfans. Her
fagfólks er því í fullri vinnu við að draga úr þeim skaða
sem hann veldur.
Hvað Trump varðar er þó ekki laust við að kjósendur
hafi fengið það sem þeir eiga skilið. Hann sýndi engin
merki um það í kosningabaráttunni að hann myndi
ráða við verkefnið. Því þarf þessi glundroði kannski
ekki að koma á óvart.
Bretland í kjölfar Brexit er svo önnur sorgarsaga. Nú
rúmum tveimur árum eftir kosninguna erum við engu
nær um hvernig Brexit mun líta út. Lýðskrumurunum
og tækifærissinnunum sem voru í forsvari Brexit hefur
gersamlega mistekist að vinna úr stöðunni. Skyldi
engan undra. Þeir hugsuðu einungis um eigin hag, lugu
að kjósendum og mátu stöðuna þannig að þeir myndu
hvort sem er aldrei vinna Brexit-kosninguna. Svo fór
hins vegar og fordæmalaus óstöðugleiki ríkir í breskum
stjórnmálum.
Þessi tvö mál bera vott um að sú mýta er ekki sönn að
stjórnmál og kosningar skipti engu máli. Ef kjósendur
láta hestahvíslara plata sig og kjósa án nokkurrar yfirlegu
getur það haft voveifleg áhrif á líf okkar frá degi til dags.
Vonandi mun Brexit og Trump duga sem lexía í
þessum efnum. Við Íslendingar ættum að minnsta kosti
að leggja við hlustir nú þegar í alvöru virðist sem til sé
að verða hér hreyfing um útgöngu Íslands úr Evrópu-
samstarfinu.
Dýrkeyptar
lexíur
8 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r16 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
C
4
-2
5
A
8
2
0
C
4
-2
4
6
C
2
0
C
4
-2
3
3
0
2
0
C
4
-2
1
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K