Fréttablaðið - 08.09.2018, Síða 80
Katrín Alda Rafns-dóttir hefur náð inn á tískuvikuna í London, London Fas-hion Week, sem hefst 13. september nk. og
fer fram í Summerset House. Katrín
er hönnuðurinn á bak við íslenska
skómerkið KALDA og segir hún
áfangann hafa mikla þýðingu fyrir
merkið.
„Það er mjög skemmtilegt að vera
samþykkt af British Fashion Council
inn á tískuvikuna og mikil viður-
kenning fyrir KALDA. Þetta er bara
akkúrat tímapunkturinn fyrir okkur
núna, við erum búin að taka tíma í
að byggja innviðina vel upp og erum
því tilbúin að stækka hratt,“ segir
Katrín. KALDA verður því með sýn-
ingu í beinni dagskrá tískuvikunnar
ásamt öðrum virtum hönnuðum,
en svo er mikið af minni merkjum
sem sýna „off venue“ og er þar mikill
munur á. Þessi viðurkenning er stór
liður í því að gera KALDA að alþjóð-
legu merki, sem Katrín stefnir að.
KALDA hlaut nýverið styrk frá
AVS, Rannsóknarsjóði í sjávar útvegi,
við markaðssetningu erlendis og
verður styrkurinn meðal annars
nýttur í sýninguna.
„Það eru um 30 manns sem koma
að sýningunni og þetta er mjög
kostnaðarsamt ferli svo það er
ómetan legt að hafa þennan stuðn-
ing. Við erum að nota laxaroð frá
Sjávarleðri í skóna okkar sem hefur
vakið mikla eftirtekt erlendis.“
Í anda áttunda áratugarins
KALDA verður hluti af „Discovery
Lab“ og verður með tveggja klukku-
stunda opnun. „Þar sem við erum
með skófatnað þá er ekki gengið
á pöllum heldur verðum við með
sýningarrými sem við erum núna að
vinna að. Það er ótrúlega mikið sem
þarf að huga að í svona ferli. Þetta er
fyrsta sýningin sem við erum að gera
og það verður gaman að geta sýnt
fólki heilsteyptan KALDA-heim en
ekki bara skó og myndir af þeim.“
Rýmið hannar Katrín í samvinnu
við „set designer“ Hella Keck og Nat-
asha Wray stíliserar. Auk þeirra eru
margir sem koma að verkefninu og
segist Katrín hafa vandað valið vel.
„Við erum að hanna rýmið svolítið í
anda áttunda áratugarins. Við ætlum
að skapa stofustemningu þar sem
fyrirsætur sitja á mublum og verður
þar sterkur David Lynch bragur á,
með allt svart inni í herberginu en
ákveðin svæði upplýst.“
Katrín lærði „fashion manage-
ment“ eða stjórnun í tísku í London
College of Fashion. Námið er við-
skiptahliðin á tískubransanum og
var hún lærlingur hjá ýmsum hönn-
uðum og tímaritum á borð við Dazed
& Confused. „Það var ótrúlega gott
að læra í London og einmitt einnig
vegna tengslanetsins. Þessi heimur
byggir mikið á tengslaneti,“ segir hún.
Katrín hefur meira og minna verið
á flakki síðustu tvö ár, eða frá því að
hún hannaði fyrstu skólínu sína, og
flakkað á milli Íslands, New York,
London og Parísar. „Ég er búin að
vera á mjög miklu flakki síðastliðin
tvö ár, við sýnum fjórar línur á ári í
London, New York og París og svo er
verksmiðjan mín í Portúgal þann-
ig að ferlið krefst mikilla ferðalaga.
En ég er að færa vinnustofuna mína
til London núna, það liggur beinast
við. Þetta er orðið of stórt til að vera
með þetta bara ein í ferðatöskum. Ég
þarf líka að fara að ráða inn teymi,
þar sem ég næ ekki að sinna þessu
ein lengur.“
KALDA inn í frægar verslanir
KALDA-skór eru seldir í Yeoman á
Skólavörðustíg og fara í verslanir
Geysis í nóvember. Þá eru KALDA-
skórnir komnir inn í frægar verslanir
á borð við Harvey Nichols og Browns
í London en samtals eru verslanirnar
sem selja skóna átta talsins.
Að mati Katrínar er talsverður
munur á skókaupum íslenskra
kvenna og kvenna úti í heimi og segir
hún að ástæðan sé líklega veðrið.
Erlendis séu skókaup jafnvel tilfinn-
ingalegri þar sem skór séu ákveðin
persónuleg afhjúpun.
„Mér finnst mjög gaman að velta
fyrir mér sambandinu sem konur
hafa við skó og ég hugsa mikið um
tilfinninguna sem fylgir hverju pari
fyrir kúnnann þegar ég er að hanna.
Konur vita allar um þessa tilfinn-
ingu, að fara í háa hæla eða strigaskó
breytir því hvernig við göngum inn í
daginn og í hvaða skapi við erum. Ég
held að ekkert annað í fataskápnum
okkur sé eins mótandi, og það er
einmitt það skemmtilegasta við
skó.“
KALDA er hægt að staðsetja í
milliflokk hvað verðið varðar og vill
Katrín halda því áfram. „Mig langar
að halda verðinu aðgengilegu án
þess að fórna neinu í gæðum. Það
er mikilvægt fyrir mig að konur geti
eignast KALDA par án þess að fara á
hausinn,“ segir hún og hlær. „Þetta
eru millidýrir skór og það var ákveð-
ið pláss á markaðnum fyrir slíka teg-
und af skóm. Miðað við hvað hefur
gengið vel á okkar stutta líftíma þá
hljótum við að vera að gera eitthvað
rétt.“ gunnthorunn@frettabladid.is
Katrín Alda er mjög ánægð með viðurkenninguna sem KALDA hefur fengið sem verður líklega til þess að fleiri dyr opnast. Skórnir frá merkinu hafa slegið í gegn. FréttAbLAðið/Anton brinK
London
kallar á
KALDA
Íslenska skómerkið KALDA hefur náð inn á
tískuvikuna í London í fastri dagskrá. Þetta
er stórt skref fyrir merkið, segir stofnandinn
og hönnuðurinn Katrín Alda Rafnsdóttir.
KALDA-skór eru
nú einnig fáan-
legir í frægum
verslunum
á borð við
Harvey nichols
og browns i
London.
ÞAð eR miKilvægt fyRiR
mig Að KonuR geti eign-
Ast KAlDA-pAR án Þess
Að fARA á hAusinn.
8 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
8
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:2
9
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
C
4
-7
4
A
8
2
0
C
4
-7
3
6
C
2
0
C
4
-7
2
3
0
2
0
C
4
-7
0
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
7
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K