Verslunartíðindi - 01.05.1927, Síða 6
52
YEkSLÚNAIiTÍÐINDÍ
Markaðsfrjettir.
Tíð hefir verið mjög hagstæð í maí-
mánuði og er nú allmikið komið af stað
af sólhurkuðum þessa árs fiski. Birgðir
af fyrra árs fiski munu nú vera sára litl-
ar eftir í landinu, en allmikið fyrirliggj-
andi af þeim í neyslulöndunum.
2. júní, voru fyrirliggjandi í Bilbao
1750 smál. af ísl. fiski og verðið talið
65/68 pes. pr. 50 kg. Á sama tíma er verð
á norskum fiski talið þar 70—75 pr. 50
kg., en þar mun vera átt við þessa árs
framleiðslu. Verðið fór sílækkandi frá
áramótum fram í miðjan maí, en talið
hafa hækkað lítið eitt seinni hluta mán-
aðarins. Talið er að innflutningur á ísl.
fiski til Bilbao hafi verið 2000 smál.
minni síðastl. ár en 1925.
í Barcelona eru birgðir af ísl. fiski tald-
ar 1400 smál. í maílok og verðið 52/58
pes. pr. 40 kg. fyrir gamlan fisk, en 65/68
fyrir nýjan. Verðlækkunin þar svipuð og
í Bilbao.
Ítalíumarkaðurinn má segja að hafi
verið sæmilegur; salan hefir gengið all-
greiðlega. Verð hefir raunar verið fall-
andi á fiski þar miðað við Lira, en þess
ber að gæta að gengi Lirans hefir hækk-
að mikið í vetur og vor.
Nokkuð af þessa árs fiskframleiðslu
mun nú selt og er verðið talið hjer 100—
106 kr. pr. skippund af stórfiski, en 75
kr. af Labrador Style. Er það von manna
að verðið lækki ekki úr þessu, enda má
telja það óeðlilega lágt, miðað við aðrar
matvörur.
Fiskafli hefir verið góður á vetrarver-
tíð víðast hvar, einkum er afli togaranna
betri en í fyrra. Hinn geysimikli afli
Norðmanna við Lofoten í vetur skaut út-
gerðarmönnum skelk í bringu, en svo hef-
ir afli brugðist við Finnmörkina í vor,
að í maílok er aflafengur Norðmanna
talinn 20 milj. stykkja minni en á sama
tíma í fyrra. Er ekki talið ólíklegt að
þetta mætti verða til þess að styrkja
.verðlag fiskjar hjer á landi.
Verð á lýsi hefur hækkað stórum í
vor. Mun því valda, að Finnmerkurveið-
in brást í vor og svo það, að Lofoten-
fiskurinn var óvenju lifrarlítill í vetur.
Er verð á meðalalýsi í Kaupmannahöfn
nú talið 100 danskar kr. pr. 100 kg. þang-
að komið, en besta iðnaðarlýsi alt að 70
kr, d. Verð á hrognum mun láta nærri
að hafi verið upp og ofan 30 ísl. kr. fyr-
ir fulla tunnu f. o. b. hjer.
Stórsíld sú, sem lá óseld, var nú loks
í vor send í umboðssölu til Svíaríkis með
15 króna fyrirframgreiðslu á tunnu. Enn
liggja í Kaupmannahöfn nokkur hundr-
uð tunnur af Austurlands millisíld frá
síðastl. sumri, sem búist er við að ekki
verði hægt að selja.
Um verð á næstu síldarframleiðslu er
ekkert hægt að segja enn.
Um kjötið er það að segja, að það mun
nú vera selt að mestu, en verðið var orð-
ið afarlágt, 50—60 norskar kr. pr. tunnu
komið til Noregs.
Frá Danmörku hafa borist fregnir um
það, að búist sje við eitthvað hærra verði
á hvítri vorull en í fyrra, en verðið er
ekki fastákveðið enn.
Æðardúnn er í svipuðu verði, 42 d. kr.
pr. kg. fyrir úrvalsvöru. Verð á selskinn-
um hefur hækkað mikið og jafnvel talið
að greitt hafi verið 25 d. kr. fyrir stykkið.
Markaðsverð á útlendri kornvöru fer
hækkandi og er Kaupmannahafnarskrán-
ing 31. maí á dönsku hveiti 31 eyrir,
rúgmjöli 23 aurar, hrísgrjónum 33 og
hafragrjónum 34 pr. kg.