Verslunartíðindi - 01.06.1931, Blaðsíða 9

Verslunartíðindi - 01.06.1931, Blaðsíða 9
VERSLUNARTÍÐINÐÍ 51 al verð fyrir 1. fl. saltað rjómabússmjör var hjá því fjelagi kr. 2.35 pr. kg. Kvartanir hafa komið bæði frá Englandi og Þýskalandi um smjörgæði, og var sjer- staklega tekið fram, að það geymdist ekki vel. Varð þetta til þess að smjörið fjell í verði í október. Annars stafa þessar miklu verðsveiflur aðallega af því að framleiðsla er mismikil og misjafnt, sem selst heima fyrir. Leiðir þetta til þess, að óvenju mikið kemur á markaðinn og ekki nægir fastir kaupendur, að verðið verður lægra en gert var ráð fyrir. Stjórn »Svenska Smörprovningarna« hafa lagt þá tillögu fram fyrir landbúnaðarráðu- neytið, að hert sje á eftirlitinu með smjör- útflutningum. Er þar lagt til, að það sje gert að skilyrði fyrir þvi að smjörbúin fái að nota rúnamerkið, að þau sjeu undir reglu- bundnu eftirliti. Er talið, að þetta sje þýð- ingarmikíð ákvæði, þar sem reynslan hafi sýnt, að þau rjómabú, sem ekki framleiða smjör daglega, eða þar sem framleiðslan er yfir höfuð ekki jöfn, veiti erfitt að hafa smjörgæðin stöðugt þau sömu. Ennfremur er lagt til, að rúnamerkt smjör sje aðeins sett í ný og góð kvartil. Misbrúkun hefir talsvert átt sjer stað með gömul kvartil og hefir það spilt stórum fyrir sölunni. Þá er einnig ákvæði um það, að þau rjómabú sem ekki nota ný kvartil eða koma sjer undan reglulegu eftirliti, skuli missa rjettinn til þess að nota »rúnamerkið«. Eggjaútflutningur frá Svíþjóð var 78,4 milj, stk. árið 1930 á móts við 89,2 milj. stk 1929. Innflutningur af þessari vöru var í þessi tvö ár 7,6 milj. stk. og 4,0 milj. stk. Skráningin á eggjum var þessi árið 1930: aur. pr. kg. Janúar.....................146,5 Febrúar....................131,5 Mars........................99,0 Apríl.......................90,0 Maí 92,5 aur. pr. kg. Júní . . . 87,0 Júlí . . . 90,8 Ágúst .... . . . 110,5 September. . . . . . 111,5 Október . . . . . . 155,2 Nóvemder . . . . . . 200,0 Desember . . . . . . 169,2 Meðaltalið hefur því orðið 124,5 aur. pr. kg. 1930 á móts við 153,1 eyr. 1920. Landbúnaðarnefndin hefir lagt fram til- lögu fyrir ráðuneytið viðvíkjandi alifugla- ræktun. Árið 1929 var eggjaframleiðslan talin ca. 37000 smál., að frádregnum þeim eggjum, er ætluð voru til útungunar og ó- nýtum eggjum, og nam þessi framleiðsla 57 milj. krónum. Slátraðir alifuglar voru 5000 smál., að verðmæti 7,5 milj. kr. Eggja- framleiðsla hefir heldur farið vaxandi og nam útflutnlngsmismunur á síðastliðnu ári og árinu á undan 8,5 milj. kr., og var þó heimaneytslan með meira móti. í áður- nefndum tillögum er bent á ýmsa galla á rekstrinun og að varan sje ekki nógu vönd- uð. Er nefndin að vísu þeirrar skoðunar, að með lögum mætti koma í veg fyrir að útflutt sjeu ljeleg egg, en álítur samt hyggi- legra að koma á skipulegri fræðslu um alifuglaræktina, til þess að koma framleið- endum í skilning um hvað þeim sjálfum er fyrir bestu. Leggur nefndin því til að settir sjeu ljensleiðbeinendur, og fái hver þeirra að launum frá ríkinu 2000 krónur. Enn- fremur vill nefndin láta stofna skóla, þar sem meðferð á alifuglum sje kend og sjeu þeir hafðir á þeim stöðum, sem vel eru fallnir til alifuglaræktunar, og eiga þeir skólar að vera í sambandi við landbún- aðarskólana. Þá vill nefndin einnig koma á námsskeiðum, er byrja sumarið 1932, og sje lagt til þeirra frá ríkinu 7900 krón- ur. Síðari árshelming 1931 vill nefndin að sett sje á fót námsskeið fyrir leiðbein- endur og til þess lagt 4200 krónur. Á það

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.