Fréttablaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 94
Po
ul
H
en
ni
ng
se
n:
„P
H
-5
/3
“.
St
an
dl
am
pi
m
eð
st
ön
g
og
fe
st
in
ga
r ú
r
pa
tin
er
uð
u,
b
rú
nu
ðu
m
es
si
ng
i,
m
eð
sk
er
m
i ú
r r
au
ðu
/b
ro
ns
uð
u
zi
nk
i.
H
am
ar
sh
ög
g:
1
70
.0
00
D
KK
.
Sundkrogsgade 30
2150 Nordhavn, Kbh.
Tel +45 8818 1111
Søren Frichs Vej 34 D
8230 Åbyhøj, Aarhus
Tel +45 8818 1100 S
já
n
án
ar
á
br
uu
n-
ra
sm
us
se
n.
dk
Hittið sérfræðinga Bruun Rasmussen
Verið velkomin í Norræna húsið, Sæmundargötu 11, 101 Reykjavík
Þriðjudaginn 2. október kl. 17-20
Þar munu reynslumiklir sérfræðingar okkar meta listaverk af öllu tagi,
með sérstakri áherslu á nútímalist, „design“, fornmuni, silfurmuni,
skartgripi, armbandsúr, bækur, mynt og frímerki.
Matið er án endurgjalds og án skuldbindinga – með hugsanlega
sölu á uppboði í huga.
Dagana 3. – 4. október er boðið upp á heimsóknir í heimahús, eftir því sem tími leyfir
Nánari upplýsingar veita Össur Kristinsson, 5554991 og 6984991,
Peter Beck +45 8818 1186 / e-mail pb@bruun-rasmussen.dk
Torben Ringtved +45 8818 1225 / tr@bruun-rasmussen.dk
Fáið mat á
verðmætin ykkar
Í skemmtigarðinum í Grafarvogi hafa hjónin Guðríður Gyða Halldórsdóttir og Vilberg Guðmundsson lagt heimili sínu. Silfurgrárri og risastórri glæsilegri, amer
ískri ferðasvítu sem þau búa í til
skiptis á Íslandi og á Spáni.
Guðríður Gyða, eða Gyða eins og
hún vill láta kalla sig, er afar fróð um
ilmkjarnaolíur og virkni þeirra. Bók
Gyðu, Ilmkjarnaolíur – lyfjaskápur
náttúrunnar er nýkomin út. Þar er
að finna ýmsan fróðleik um sögu og
virkni ilmkjarnaolía og uppskriftir
að blöndum til heilsubótar og vel
líðunar.
Gyða er að baka lagtertu fyrir
vinkonu sína í vel útbúnu eldhúsi
húsbílsins þegar blaðamann ber að
garði og ilmurinn fyllir bílinn. Það
er notalegt um að litast. Stofurýmið
er fremst, þar eru tveir stórir hvítir
leðursófar, stofuborð og sjónvarp.
Þá eldhúsið, þar geta fjórir setið við
eldhúsborðið. Á gangi sem liggur að
svefnherbergisrými þeirra hjóna er
baðherbergi með klósetti og sturtu.
Bílinn keyptu þau í Bandaríkj
unum fyrir nærri fjórum árum.
„Við áttum heima í Vesturbergi í
Breiðholti. Í blokkaríbúð í eldgam
alli blokk frá 1973,“ segir Gyða frá.
„Við Vilberg höfðum lagt töluverða
vinnu í að innrétta íbúðina að innan
og gera hana að okkar. En svo kom
að viðhaldi á blokkinni að utan.
„Við áttum góðan afgang eftir að við keyptum bílinn. Lífið er bara dásamlegt,“ segir Gyða. FréttabLaðið/anton brink
Kölluð
amma
norn
Ilmkjarnafræðingur-
inn og nuddarinn
Gyða Halldórsdóttir
býr ásamt eigin-
manni sínum, Vil-
berg Guðmundssyni,
í glæsilegum húsbíl
og nýtur lífsins bæði
á Íslandi og á Spáni.
Það þurfti að klæða hana að utan,
skipta um sextíu glugga og svo þegar
það var búið þá var strax komið að
næsta viðhaldsverkefni. Þá þurfti að
taka þakið í gegn. Þetta var áfall eftir
áfall. Þegar búið var að taka þakið
þá hugsuðum við: Eigum við að vera
í þessu allt okkar líf? Alltaf að borga
eitthvað og tæma sjóðinn?“ segir
Gyða.
„Útgjöldin voru orðin alveg rosa
leg og við áttum von á meiru,“ segir
Vilberg. „Okkur langaði alltaf til að
eiga húsbíl með. Ferðast um Evrópu.
En maður á von á meiru og meiru.
Við fórum til Ameríku og keyptum
þennan og höfum búið í honum
síðan.“
„Við erum að minnsta kosti fjóra
mánuði hér á landi og svo yfir
vetrartímann dveljum við á Costa
Blanca á Spáni,“ segir Gyða og segir
að þar sé risastórt og líflegt samfélag
fólks sem býr í húsbílum. „Þetta er
eins og lítill bær, þar eru sex hund
ruð bíla stæði, malbikaðar götur og
hringtorg. Þar höfum við eignast
marga góða vini,“ segir Vilberg frá.
„Þetta eru ellismellir eins og við,
fólk sem vill njóta efri áranna,“ segir
Gyða.
Og hvernig flytja þau þessa stærð-
arinnar rútu á milli landa?
„Í fyrstu ferðinni okkar til Spánar
fórum við með Norrænu. Það
var erfitt, skelfilegur veltingur og
vesen,“ segir Vilberg. „Það er mikið
sniðugra að fara frá Þorlákshöfn
með Mykinesi. Beint til Rotterdam,
við fljúgum svo og pikkum upp
bílinn.“
Þegar þau eru á Íslandi keyra þau
oft um landið. „Við höfum farið á
bílnum um Vestfirði, Norðurland
og við vorum í Ásbyrgi í sumar. Það
var dásamlegt. Við skreppum alltaf
í nokkra túra um landið,“ segir hún.
Bíllinn hefur nokkrum sinnum
reynst kvikmyndagerðarfólki í
verkefnum gott skjól. „Við höfum
leigt bílinn nokkrum sinnum í kvik
myndaverkefni. Bíllinn þótti góð
aðstaða fyrir útlendinga sem þurftu
gott athvarf,“ segir Vilberg.
Gyða hefur starfað sem heilsu
nuddari til fjölmargra ára og bætti
svo seinna við sig þekkingu um
ilmkjarnaolíur. Nýútkomin bók
byggir á lokaverkefni hennar í þeim
fræðum.
„Kennarar mínir voru dr. Erwin
Haringer og Margret Deimleitner,
bæði kennarar og fyrirlesarar frá
Þýskalandi sem komu til Íslands og
kenna litlum hóp ljósmæðra, nudd
ara og hjúkrunarfræðinga. Erwin
er prófessor við Lækna háskólann
í München,“ segir Gyða og segir
niður stöður rannsókna hans á
virkni ilmkjarnaolía hafa verið
birtar í þekktum læknatímaritum á
borð við Lancet.
Olíur til lækninga og heilsubótar
hafa verið notaðar í árþúsundir og
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
ÚtGjöldin voru orðin
alveG rosaleG oG við
áttum von á meiru.
okkur lanGaði alltaf
til að eiGa HÚsbíl.
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
E
4
-C
F
5
0
2
0
E
4
-C
E
1
4
2
0
E
4
-C
C
D
8
2
0
E
4
-C
B
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K