Fréttablaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 42
Hvernig kom það til að Gutt-ormur var fenginn frá litla Íslandi til að meðhöndla
fótboltamann í einu besta liði
heims?
„Ég rak eigin naprapat-stofu
á Spáni í 22 ár og á þeim tíma
náði ég að hjálpa fjölda fólks.
Þannig jókst orðspor mitt jafnt
og þétt, meðal annars innan
knattspyrnuheimsins, og því er
stundum hringt í mig þegar í óefni
er komið með meiðsl og verki
fótboltamanna,“ segir Guttormur,
sem einnig hefur meðhöndlað
leikmenn úr Liverpool og Real
Madrid, svo fátt eitt sé nefnt.
Vegna trúnaðareiðs má
Guttormur ekki gefa upp nafn
fótboltastjörnu Barcelona en
blaðamaður getur staðfest að leik-
maðurinn er í aðalliði Barcelona
og landsliðsmaður í einu af bestu
landsliðum heims.
Hvernig er að vinna með
atvinnuíþróttamenn í fremstu röð?
„Þessir einstaklingar eiga vita-
skuld allt undir að líkami þeirra
virki sem allra best og því er
mjög gefandi að vinna með þeim.
Maður getur verið viss um að þeir
fylgi ráðum manns og svíkist ekk-
ert um,“ segir Guttormur og hlær.
Hvernig stendur á því að stór-
stjörnur fótboltans leita í þína
meðhöndlun?
„Sem naprapat (e. doctor of
naprapathy) býr maður yfir góðri
þekkingu á stoð- og taugakerfi
líkamans. Heili okkar stjórnar því
í raun hvar við erum veik eða sterk
fyrir. Mín meðhöndlun snýst því
ekki bara um að ná þeim verkja-
lausum heldur einnig að finna og
styrkja veikleika (miðtaugakerfi
og vöðva) og þar með fyrirbyggja
framtíðarmeiðsli. Ef við líkjum
líkamanum við dekk getum við
sagt að ég sé að jafnvægisstilla
dekkin svo að þau slitni síður og
aksturseiginleikar verði betri,“
útskýrir Guttormur.
Í hverju fólst meðhöndlunin á
leikmanni Barcelona?
„Það fyrsta sem við gerðum var
að greina viðkomandi og í hans
tilfelli sá ég minni virkni í vinstra
heilahveli. Þegar greining lá fyrir
byrjuðum við að vinna með
hnykkingar, nudd, styrktar- og
jafnvægisæfingar; allt í samræmi
við miðtaugakerfið,“ upplýsir
Guttormur.
Meðhöndlarðu þá sem koma til
þín í Orkuhúsið á svipaðan hátt?
„Já, eins og ég sagði er aðalat-
riðið að greining á miðtaugakerf-
inu sé rétt. Síðan vinnum við í að
styrkja veik svæði með æfingum,
hnykkingum, nuddi og fleiru. Það
er mikilvægt að vinna í samræmi
við „stjórnstöðina“ (miðtauga-
kerfið), því ef við gerum það ekki
mun líkaminn halda áfram að
framkalla sömu stoðkerfisvillur,
sama hversu oft við hnykkjum,
togum og teygjum.“
Hvernig gengur að samræma
vinnu á Spáni og að vera nú
búsettur á Íslandi?
„Það var auðvitað miklu ein-
faldara að standa í þessu þegar
ég var búsettur á Spáni. Þegar
maður tekur að sér svona verkefni
er ætlast til að maður klári það.
Barcelona-verkefnið gekk vel.
Ég flaug út sex helgar í röð, en ef
svona verkefni dragast á langinn
er það fljótt að segja til sín að vera
búsettur á Íslandi.“
Hvaða heilræði átt þú handa
íþróttamönnum sem vilja vera í
toppformi og ná sem lengst í sinni
íþrótt?
„Mikilvægast af öllu er að þekkja
veikleika sína og halda þeim
sterkum. Maður verður í raun aldr-
ei sterkari eða betri en taugakerfið
leyfir. Taugakerfið stýrir því meðal
annars hvernig við notum stoð-
kerfi okkar og ef taugakerfið setur
til dæmis meiri spennu í hægri
bakvöðva mun það með tíð og
tíma valda skekkjum í stoðkerfinu
sem eykur líkur á meiðslum. Að
sjálfsögðu mun það svo hafa áhrif
á getu okkar sem íþróttamenn,“
segir Guttormur.
Varð albata á 8 vikum
Alexander Helgi Sigurðarson,
miðjumaðurinn knái úr Breiða-
bliki, var á samningi hjá hollenska
félaginu AZ Alkmaar þegar hann
reif liðband í hné árið 2016.
„Það var til þess að ég þurfti
heim að hverfa og það var auð-
vitað erfitt,“ segir Alexander sem
eftir bata á hnénu sneri aftur til
Breiðabliks en meiddist þá á nára
í fyrstu vikunni hjá Blikum.
„Ég glímdi við nárameiðslin
í hálft þriðja ár, gekk á milli
sjúkraþjálfara og lækna án þess
að nokkur fyndi hvað amaði að og
fór í skurðaðgerð en án árangurs.
Svo var það dag einn að ég sá
blaðaviðtal við Guttorm naprapat
og ákvað að prófa að fara til hans í
meðhöndlun. Það reyndist gæfu-
spor því Guttormur styrkti það
sem þurfti að styrkja, fann veik-
leika mína, lét mig gera æfingar
og lagaði stellingar hjá mér, og við
það lagaðist ég. Nú er ég orðinn
jafngóður og áður, ef ekki betri,
og það sem hrjáði mig er einfald-
lega gleymt,“ segir Alexander og
þykir árangurinn hjá Guttormi
magnaður.
„Ég hefði ekki trúað því fyrir-
fram að lækning á nárameiðsl-
unum fælist í nýjum hreyfingum
og öðruvísi beitingu líkamans.
Ég hafði verið svo lengi frá og
var farinn að trúa því að ekkert
yrði hægt að gera. Svo tók ekki
nema átta vikur að verða albata á
ný,“ segir Alexander sem er aftur
farinn að spila með Breiðabliki
og skoraði meira að segja mark
í fyrsta leiknum, en Alexander
spilaði einnig með U17- og U19-
landsliðum Íslands.
„Guttormur bjargaði mér og
lagaði svo ég gæti enn og aftur
spilað fótbolta. Svo einfalt er það.
Ég hvet því allt íþróttafólk til að
leita sér bata með naprapat-með-
ferðum Guttorms og veit að enn
fleiri knattspyrnumenn eru nú að
nýta sér þessa árangursríku tækni
með frábærum árangri.“
Hnykkir, nuddar og teygir
Meðhöndlun naprapats felst
meðal annars í hnykkingum, með-
höndlun á band- og stoðvefjum,
og sérsniðnum æfingum við hvers
kyns stoðkerfisvandamálum.
„Bein þýðing á orðinu napra-
pat er „að leiðrétta orsökina“,“
útskýrir Guttormur, en starfs-
heitið naprapati tilheyrir sænska
heilbrigðiskerfinu og hefur starfs-
greinin verið löggild í Svíþjóð
síðan 1994.
„Þriðji hver Svíi hefur leitað
til naprapats með stoðkerfis-
vandamál sín og það hefur gert
naprapata að vinsælustu stoð-
kerfismeðhöndlurum Svíþjóðar.
Niðurstöður rannsókna í sam-
vinnu við Karolinska-sjúkrahúsið
í Stokkhólmi sýndu að napra-
pat-meðferðir á stoðkerfinu séu
með þeim bestu sem völ er á. Þá
má einnig benda á niðurstöður
rannsóknar sem birtist í Clinical
Journal of Pain, einu virtasta
læknatímariti heims, undir yfir-
skriftinni „Naprapathic manual
therapy or evidence-based care
for back and neck pain“,“ segir
Guttormur.
Með stofur á Spáni og
Íslandi
Guttormur útskrifaðist sem
naprapat árið 1996. Eftir útskrift
opnaði hann naprapat-stofuna
Natt Center í Madrid sem hann
starfrækir enn. Árið 2016 flutti
Guttormur til Íslands og opnaði
naprapat-stofu í Orkuhúsinu á
Suðurlandsbraut.
„Þar meðhöndla ég ekki bara þá
sem eiga við meiðsli eða verki að
stríða, heldur einnig þá sem vilja
fyrirbyggja stoðkerfisvandamál og
hámarka vellíðan. Naprapat býr
yfir mikilli þekkingu og tækni til
að tryggja að líkaminn virki sem
allra best.“
Stofa Guttorms er í Orkuhús-
inu, Suðurlandsbraut 34. Sími
625 0011. Frekari upplýsingar á
naprapat.is og á Facebook undir
Naprapat-Orkuhúsinu. Netfang er
info@naprapat.is.
Guttormur flutti heim til Íslands á ný árið 2016. Hann rekur enn naprapat-stofu sína í Madrid og nú einnig nýja stofu í Orkuhúsinu. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Alexander Sigurðarson í Breiðabliki hafði gefið upp alla von um bata þegar
hann leitaði til Guttorms þar sem hann varð albata á átta vikum. MYND/EYÞÓR
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveg@frettabladid.is s. 512 5351 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349
Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 512 5347 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512
5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@
frettabladid.is, s. 512 5442, Atli Bergmann, atli@
frettabladid.is, s. 512 5457, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429,
Ef við líkjum lík-
amanum við dekk
getum við sagt að ég sé að
jafnvægisstilla dekkin svo
að þau slitni síður og
aksturseiginleikarnir
verði betri.
Guttormur Brynjólfsson
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . S E p T E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
4
-F
6
D
0
2
0
E
4
-F
5
9
4
2
0
E
4
-F
4
5
8
2
0
E
4
-F
3
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K