Fréttablaðið - 22.09.2018, Blaðsíða 36
Mikael Leó Aclipen er ungur og efni-legur bardaga-listamaður með háleit markmið um frama innan
bardagalistarinnar. Hann er skýr
og greindur strákur sem veit upp á
hár hvert hann stefnir. Það kemur
fljótlega upp í hugann að margur er
knár þótt hann sé smár þegar maður
sér hann framkvæma æfingarútínu
sínar. Hreyfingarnar eru fumlausar
og greinilega framkvæmdar af bæði
hárnákvæmni og af klókum huga.
„Ég byrjaði að æfa bardagalistir
þegar barnastarfið hjá Mjölni var
nýbyrjað og ég mætti þangað af því
að ég sá vídeó af mömmu minni í
kynningarmyndbandi hjá Mjölni. Þá
langaði mig mjög mikið að prófa, ég
var bara mjög lítill, kannski sjö eða
átta ára gamall,“ segir Mikael Leó um
hvað það var sem kveikti áhuga hans
á bardagalistum.
„Hún var í Víkingaþreki og ég gat
ekki verið með þar, en um leið og það
byrjaði glímunámskeið fyrir börn þá
mætti ég strax þangað og fannst það
mjög gaman. Síðan þá hef ég ekkert
hætt og mér finnst þetta ofboðslega
skemmtilegt,“ segir hann enn fremur
um fyrstu kynni sín af glímu og ann-
ars konar bardagalistum.
„Við vorum bara nokkrir strákar
fyrst og fáir á mínum aldri að stunda
þetta. Þess vegna hef ég vanist því
frá upphafi að vera í kringum eldri
stráka og glíma við stráka sem eru
bæði stærri og öflugri en ég. Með því
að gera það öðlaðist ég góða tækni,
fótavinnu og lærði að lesa í andstæð-
inginn og nota klókindi í því sem ég
er að gera. Reyna að gera eitthvað og
hafa hugsun á bak við það sem ég
er að gera. Það hjálpar þér ákveðið
langt að hafa náttúrulegan styrk, en
þú kemst ekki í fremstu röð nema þú
hafir góða tækni og hraða fótavinnu
eins og ég hef æft og er orðinn góður
í að mínu mati,“ segir hann þegar
hann er beðinn um að lýsa eigin
styrkleikum í íþróttinni.
„Við erum bara tveir eftir af þeim
sem byrjuðu á sínum tíma í þessu og
eru jafn gamlir og ég. Mér finnst það
allt í lagi þar sem ég tengi betur við
þá sem eru nokkrum árum eldri en
ég. Mér finnst alveg strákarnir í skól-
anum skemmtilegir og mér finnst
fínt í skólanum, en mínir bestu vinir
eru í Mjölni og nokkrum árum eldri
en ég. Þessi iðkun á þessari íþrótt
hefur því klárlega gefið mér mjög
mikið,“ segir Mikael sem var að hefja
nám í tíunda bekk í grunnskóla í
haust, en það er ekki að merkja að
hann sé einungis 15 ára gamall þegar
rætt er við hann, slík er skynsemin
og þroskinn.
„Þegar ég var ellefu ára gamall
byrjaði ég svo í unglingatímum og
Finnur sig best þegar
hann er að glíma
Draumur Mikael Leós er að ná miklum frama í bardagalist. FréttabLaðið/Ernir
Mikael Leó er einbeittur þegar hann æfir bardagalistir. FréttabLaðið/Ernir
Mikael Leó aclipen með verðlaunagripina sem hann fékk fyrir sigur í glímu gegn andstæðingi sínum á móti á Írlandi fyrr í þessum mánuði. FréttabLaðið/Ernir
þar er flokkað eftir getu. Fljótlega
fór ég að keppa upp fyrir mig eins
og ég sagði áðan. Við það að fara
upp um flokka og vera að æfa með
eldri og betri krökkum þá eignaðist
ég mjög góða vini þar. Mér finnst
krakkar á mínum aldri oft svolítið
óþroskaðir og ég tengi betur við þá
sem eldri eru. Það kemur alveg fyrir
að ég hitti krakka á mínum aldri sem
mér finnst skemmtilegir, en ég ver
mestum tíma með eldri krökkum,“
segir þessi öflugi strákur sem leggur
líkama og sál í æfingar sínar, enda á
hann sér háleita drauma í íþróttinni.
Hann hefur aldrei borðað nammi
eða drukkið gos og borðar mikinn
fisk og það sést vel á líkamsbyggingu
hans að hann leggur stund á heilbrigt
líferni.
Nýlega fór hann með föður sínum
í keppnisferð til Írlands þar sem
hann keppti í þyngdarflokki upp
fyrir sig í brasilísku jiu jitsu. Hann
glímdi þar við andstæðing sem var
höfðinu hærri en hann, en lét það
ekki á sig fá og fór með sigur af hólmi.
„Það var mjög gaman að fara út
og keppa við nýjan andstæðing. Það
var líka fínt að pabbi var að berjast
sjálfur og þá var hann ekki jafn
stressaður og hann og mamma verða
stundum. Hann náði að dreifa hug-
anum og var líka að hugsa um sinn
bardaga,“ segir Mikael um ferðina til
Írlands.
„Fyrst æfði ég bara jiu jitsu, sem er
bara glíman, um tíu ára aldur fór ég
svo að fikra mig nær MMA, bardaga-
íþróttinni, það er að kýla og sparka
í púða og læra svona grunnstöður í
þeirri íþrótt. Mér finnst skemmti-
legast þegar ég fæ að blanda saman
hlutum úr glímunni og MMA. Ég get
ekki beðið eftir því að verða nógu
gamall til þess að fá að keppa af
fullum krafti í MMA,“ segir bardaga-
listamaðurinn með glampa í augum
þegar blaðamaður sem er blautur
á bak við eyrun á þessu sviði spyr
hvernig tröppugangurinn hafi verið
hjá honum í bardagalistunum og
hvað það sé sem veiti honum mesta
ánægju á meðan hann stundar íþrótt
sína.
Þann tíma sem blaðamaður ver í
glæsilegum húsakynnum Mjölnis á
Flugvallarvegi í Öskjuhlíð sést glöggt
hversu vinsamleg stemming er á
meðal þeirra sem æfa þar þrátt fyrir
að menn séu komnir til þess að taka
hver á öðrum.
Strangar reglur gilda um hvernig
þeir sem æfa jiu jitsu og MMA nota
það sem þeim er kennt innan veggja
Mjölnis og er það skilyrði þess að
heimilt sé að æfa þar að bardaga-
listin sé einungis notuð í æfingum,
keppni eða í sjálfsvörn.
Eftir að viðtalinu lýkur spíg-
sporar Gunnar Nelson, fremsti
MMA bardagamaður Íslands, um
ganga Mjölnis, en Mikael Leó er þá
nýbúinn að nefna það í samtali við
blaðamann að hann sé einn þriggja
glímumanna sem hann lítur upp til.
Þeir kumpánar heilsast eins og
perluvinir, eins og raunar allflestir
sem spássera um gangana í þessu fal-
lega laugardagshádegi. Þetta virkar
eins og ein stór og þétt fjölskylda
sem er að hittast í vel heppnuðu fjöl-
skylduboði. Framtíðarsýn Mikaels
Leós hvað bardagalistina varðar er
skýr og markmiðin ljós í hans huga.
„Minn draumur er að komast jafn
langt og Gunnar, Conor [McGregor]
og Demetrious [Johnson]. Vonandi
tekst mér að feta í
fótspor þeirra. Ég
mun allvega gera
allt sem í mínu
valdi stendur til
þess að svo verði.
Næsta verkefni
mitt er hins vegar
Íslandsmeistara-
mótið í jiu jitsu
sem er fljótlega
og einbeitingin
er þar þessa
stundina. Svo fer
ég vonandi í fleiri
ferðir til útlanda
á næstunni,“ segir
Mikael dreyminn
um framtíðina og
vonandi rætist
framtíðarsýnin.
Mikael Leó Aclipen
er ungur og upp-
rennandi bardaga-
listamaður með
stóra drauma. Hann
hóf ungur að nema
listina og dreymir
um að komast á
sama stall og Gunn-
ar Nelson. Mikael
elskar að glíma og
færir miklar fórnir
til þess að ná frama
í íþróttagreininni.
ÞESSi iÐKUN
Á ÞESSARi
ÍÞRÓTT
HEFUR ÞVÍ
KLÁRLEGA
GEFiÐ MÉR
MJÖG MiKiÐ.
Hjörvar Ólafsson
hjorvaro@frettabladid.is
2 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
2
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:1
3
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
E
4
-D
4
4
0
2
0
E
4
-D
3
0
4
2
0
E
4
-D
1
C
8
2
0
E
4
-D
0
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
1
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K