Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 7

Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 7
VERSLUNARTÍÐINDI 63 Innflutningshöft og gjaldeyrishömlur. Eitt af þeim frumvörpum, sem ríkis- stjórnin leggur nú fyrir alþingi, nefnist: ,,frumvarp til laga urn gjaldeyrisversl- un o. fl.“. I greinargerð er þess getið, að frumvarpinu sje ætlað að koma í stað laga nr. 1 frá 1920, um heimild handa landstjórninni til að takmarka eða banna innflutning á óþörfum varningi, laga nr. 48 frá 1924, um gengisskráningu og gjaldeyrisverslun, nema að því er snert- ir ákvæði þeirra laga um gengisskrán- ingu, og ennfremur bráðabirgðalaga um gjaldeyrisleyfi, innflutning o. fl. frá 8. mars 1934. En í heild er frumvarpið til- raun til að leggja enn strangari hömlur á innflutninginn og utanríkisverslunina, en hingað til hefir verið. Frumvarpið er svohljóðandi: 1. gr. Landsbanki íslands og Útvegs- banki íslands h.f. hafa einkarjett til þess að versla með erlendan gjaldeyri, þang- að til öðruvísi kann að verða ákveðið af fjármálaráðherra með reglugerð. Bönk- unum skal skylt að hlíta þeim reglum um gjaldeyrisverslunina, sem fjármálaráð- herra setur. Með reglugerð er heimilt að setja þau ákvæði, er þurfa þykir til þess að tryggja, að íslenskar afurðir, sem fluttar eru til útlanda, verði greiddar með erlendum gjaldeyri og að hann renni til bankanna. 2. gr. Með reglugerð er heimilt að á- kveða, að engar vörur megi flytja til landsins og að engan erlendan gjaldeyri megi láta af henni, nema með leyfi gjald- eyris- og innflutningsnefndar, sbr. 4. gr. 3. gr. Gjaldeyris- og innflutningsnefnd skal skipuð fimm mönnum, sem fjármála- ráðherra skipar. Skal einn þeirra skip- aður samkvæmt tilnefningu bankastjóra Landsbanka Islands, einn samkvæmt til- nefningu bankastjóra Útvegsbanka ís- lands h.f. og þrír af fjármálaráðherra án tilnefningar, og sé einn þeirra formaður og framkvæmdarstjóri nefndarinnar. Ef nefndarmaður forfallast um lengri tíma, skipar fjármálaráðherra varamann um stundarsakir eftir sömu reglum og aðal- menn eru skipaðir. 4. gr. Fjármálaráðherra setur nefnd- inni reglur um það, á hvern hátt hún skuli haga störfum sínum. Heimilt er að veita nefndinni með reglugerð vald til þess að setja þau skilyrði fyrir leyfisveitingum, sem ástæða þykir til. 5. gr. Lögreglustjórar, hver í sínu um- dæmi, og tollstjórinn í Reykjavík skulu láta gjaldeyris- og innflutningsnefnd í tje nákvæma skýrslu um magn, tegund og söluverð útfluttrar vöru jafnskjótt sem skip það, er vörurnar flytur, leggur frá landi. Ennfremur skulu þeir eigi síðar en 5. hvers mánaðar láta nefndinni í tje skýrslu um innflutning í næsta mánuði á undan; skal skýrslan vera í því formi, er nefndin ákveður í samráði við hag- stofustjóra. 6. gr. Brot á lögum þessum eða reglu- gerðum þeim og auglýsingum, er settar kunna að verða samkvæmt þeim, varða sektum alt að kr. 50000.00, nema þyngri refsing liggi við. Sömu hegningu varðar það, ef leyfishafi brýtur þau ákvæði, er gjaldeyris- og innflutningsnefnd kann að hafa sett sem skilyrði fyrir leyfisveiting- um. Ennfremur er upptækur sá ágóði, er fæst við brot á lögum þessum, reglugerð- um og auglýsingum eða skilyrðum gjald- eyris- og innflutningsnefndar fyrir leyfis- veitingum. 7. gr. Með mál út af brotum á lögum þessum, reglugerðum þeim og auglýsing- um, er settar kunna að verða samkvæmt þeim, skal farið sem almenn lögreglumál.

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.