Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 20

Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 20
76 VERSLUNARTÍÐINDI hækkun þessa styrks. Er þess að vænta, að umsókn þessi mæti sanngjörnumskiln- ingi. Alþingismenn geta með góðri sam- visku ljeð þessu máli lið, er það er vitað, að skólinn er notaður af fólki úr öllum stjettum okkar fámenna þjóðfjelags. Þannig upplýsir skýrsla skólans, að árið 1933—’34 hafa synir eða dætur 60 kaup- sýslumanna, 32 útgerðar- eða sjómanna, 20 iðnaðarmanna, 17 embættismanna eða starfsmanna þess opinbera, 16 bænda, 11 verkamanna, 5 bílstjóra o. s. frv., sótt skólann. — Þá þarf það ekki að hindra styrkhækkun til skólans, að hann sje ein- ungis sóttur af fólki úr Reykjavík. Af þeim 47 nemendum, sem tóku fullnaðar- próf vorið 1934, voru 17 utan af landi. — Þetta hvorutveggja sýnir, meðal margs annars, að það er fullkomið rjettlætismál, að styrkurinn til skólans verði hækkaður verulega. Hvað geta íslendingar keypt af Spánverjum. Niðurlag. I tólfta flokki er talinn rúmlega % af öllum útflutningi Spánverja. Stærstu deildir þessa flokks eru sem hjer segir: milj. gullpeseta 1. Nýir ávextir ................... fyrir 204.1 2. Þurkaðir ávextir ................. — 68.1 3. Vín og' ái’engi................... — 48.6 4. Aðrir drykkir..................... — 1.7 5. Viðarolía ........................ — 64.1 6. Grænmeti.......................... — 54.4 7. Þurkað grænmeti .................. — 1.5 8. Korn og mjöl ..................... — 11.3 9. Nýlenduvara ...................... — 9.9 10. Allskonar niðursuða................ — 40.1 11. Fiskui', nýr og linsaltaður........ — 4.0 12. Kjöt .............................. — 2.6 Af nýju ávöxtunum eru glóaldin lang- mest virði, þar sem þau eru seld fyrir 172.5 milj. gullpeseta. Af öðrum ávöxt- um má nefna vínber fyrir 16,8 milj., gulaldin fyrir 4 milj., eiraldin fyrir 2.5 milj., kirsuber fyrir 2.4 milj., tröllepli fyrir 2.0 milj., epli fyrir 0.4 og ferskj- ur fyrir 0.5 milj. gullpeseta. Mú búast við að nú verði lagt nokkurt kapp á að bæta fyrir sölu ávaxta, ef það er hægt í verslunarsamningum, því ráðherra sá, sem fer með verslun, er frá Valencia hjeraðinu og hefir verið framarlega í flokki ávaxtabænda í kröfum um r.iett- arbætur þeim til handa. Fyrir okkur íslendinga eru þó margir erfiðleikar á að kaupa ávexti hjer. Svo sem kunnugt er, er ávaxtaútflutningurinn hjeðan með þeirri skipan, að meðan hann stendur yfir, sem er frá nóvember til mars, koma skip, sem fara hjá tóm, og eru á leið til Norður-Evrópu, við í Valencia. Eru flutningar síðan boðnir niður á hverjum degi, með því fyrirkomulagi, sem venjulega er á uppboðum. (Jtflytj- endum til styrktar og til að koma á sem mestri samkepni, eru hafnargjöld á- kveðin miklu lægri fyrir þessi skip en fyrir önnur skip, og bjóða þau farm- gjöld niður hvert fyrir öðru, til að fá þó eitthvað frekar en sigla alveg tóm. Er skipin koma til Bretlands, þar sem að- almarkaðurinn er, er haldið uppboð á förmunum og ræður framboð og eftir- spurn hvað fæst fyrir vöruna. Hefir meðalverð á glóaldinum þeim, sem út hafa verið flutt, verið 5 gullpesetar eða 7 íslenskar krónur, með núverandi gengi, fyrir hver 100 kg. Er auðvitað innifalin þar í kostnaður við kassa og pökkun, og flutningur til skips. Þetta skipulag gerir það að verkum, að glóaldin eru allajafna mikið ódýrari

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.