Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 25

Verslunartíðindi - 01.09.1934, Blaðsíða 25
VERSLUNARTÍÐINDI 81 ýmsra nágrannaþjóða okkar sje fullnægt af tiltölulega færra fólki en hjer gerist á ís- landi. Síðara atriðið veit aftur á móti að því að sýna magn utanríkisverslunar þess- ara sömu nágranna okkar, og er þar með bent á eitt atriði, sem mikinn þátt á í, að ákveða þær raunverulegu verslunarþarfir og þar með hið rétta hlutfall verslunar- stjetta þjóðanna. 1 töflu þeirri, sem hjer fer á eftir, er gerð grein fyrir þessu hvorutveggja: Magn upcmríkisverslunarinnar á íbva (í Rm.), og verslunarstjettin í l/< af allri þjóðinni. ' Ar 1930 1931 1932 % ísland . . . . 1063 691 466 8.3 Danmörk . . . . . 987 790 480 10.8 St. Bretland . 678 491 324 13.9 Noregur . . . . 690 491 330 11.1 Svíþjóð . . . . 570 441 265 8.3 Finnland . . . 304 210 140 3.3 Þýskaland . . 359 253 160 11.7 Frakkland . . 370 281 191 10.4 Spánn . . .. 164 73 58 5.0 Ítalía . 160 117 78 6.4 l’ortúgal-. . . . 95 65 51 6.1 Bandaríkin . . 231 150 96 10.2 Til stuttrar skýringar tölum þessum skal það tekið fram, að hlutfallsfjöldi verslun- arstjetta ofangreindra þjóða er miðaður við árið 1925. Er slíkt gert til að fá ná- kvæmari samanburð, því ekki er í bili kost- ur á yngri tölum um sumar þær þjóðir, sem hjer eru tilgreindar. Þá má í sambandi við þetta vekja athygli á því, að árið 1930 er tilsvarandi hlutfallstala Islands orðin 7.5%. Sje það nú athugað, hvað taflan hjer að framan upplýsir, og þá fyrst síðasti dálkurinn, þá kemur í ljós, að af þeim 11 þjóðum, sem til samanburðar eru teknar, hafa 7 tiltölulega jafn fjölmenna eða fjöl- mennari verslunarstjett en Island. Ef nokkuð á nú að leggja upp úr þessum sam- anburði, og ef ekki á að gera ráð fyrir, að öll stjettaskifting þessara samanburða- þjcða sje röng og í mesta máta óheppi- leg, þá er í þessu atriði ekki hægt að draga aðra ályktun af töflunni en þá, að versl- unarstjettin íslenska sje síst of fjölmenn, að því fari fjarri, að hún sje byrði á „fram- leiðslustjettunum", eins og reynt hefir ver- ið að telja fólki trú um. En sjeu hinir dálkar töflunnar nú at- hugaðir, þá virðast þeir ekki aðeins stað- festa ofangreinda tilgátu, heldur blátt á- fram benda í þá átt, að íslenska verslun- arstjettin ætti að vera tiltölulega fjölmenn- ari en verslunarstjettir þeirra landa, sem tilfærðar voru til samanburðar. Sú stað- reynd, að utanríkisverslun íslandsð á íbúa reiknuð, er árið 1930 að verðmagni mest, og árin 1931 og 1932 næst mest allra þeirra landa, er í töflunni getur, bendir ó- tvírætt í þá átt, að við munum að minsta kosti ekki komast af með færra fólk til- tölulega til að annast utanríkisverslunina, en þessir nágrannar okkar. Þetta atriði rjettlætti jafnvel, að íslenska verslunar- stjettin væri hlutfallsléga eitthvað fjöl- mennari. — Nú kann að verða bent á, að hjer sje ekkert tillit tekið til dreifingar- þarfarinnar inná við, svo að þessi saman- burður sje harla fánýtur. En þá er því til að svara, að. neyslustig og heildar-kaup- geta þjóðarinnar ræður mestu um dreif- ingarþÖrfina, þótt að sjálfsögðu komi margt fleira til greina. Þetta hvoru- tveggja, neyslustig og heildarkaupgeta, eru að sönnu næsta óútreiknanlegar stærð- ir. En þó mun samt óhætt að fullyrða það mikið í þessum efnum, að heildarafkoma almennings á Islandi sje síst verri en al- mennings í þeim löndum, sem hjer voru tekin til samanburðar. Með þessu, sem hjer hefir verið sagt, er enginn dómur kveðinn upp um það, hvort

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.