Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2017/103 439
Það er ef til vill að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um mögu-
legar skipulagsbreytingar hjá Læknafélagi Íslands, breytingar
sem kynntar verða á næsta aðalfundi félagsins og aðalfundarfull-
trúar síðan greiða atkvæði um. Arna Guðmundsdóttir, formaður
Læknafélags Reykjavíkur og Þorbjörn Jónsson, formaður Lækna-
félags Íslands, hafa skrifað um þessar breytingartillögur í síðustu
tölublöðum Læknablaðsins og rakið það ferli sem átt hefur sér
stað undanfarna mánuði. Þetta eru talsverðar breytingar, ákveðin
uppstokkun á gamalgrónu félagi og því ekki óeðlilegt að margir
aðilar fjalli þar um.
Undirritaður er formaður Læknafélags Vesturlands, sem er eitt
af svæðafélögum LÍ sem hafa undanfarin ár verið hornsteinarnir
í skipulagi félagsins. Ég sat einnig í nefnd þeirri sem Arna Guð-
mundsdóttir stýrði og dró upp fyrirhugaðar breytingatillögur.
Af svæðafélögum LÍ hefur LR, Læknafélag Reykjavíkur, borið
höfuð og herðar yfir hin svæðafélögin, enda mestur fjöldi lækna
þar innanborðs en félagið hefur, auk almennrar félagsstarfsemi,
einnig haft hlutverk sem eins konar samingsaðili gagnvart rík-
isvaldinu um launakjör sjálfstætt starfandi lækna, að vissu leyti
í umboði annarra svæðafélaga. Næststærsta félagið hefur svo
verið Læknafélag Akureyrar og hin félögin minni. Starfsemi
allra þessara svæðafélaga hefur verið afar lítil síðustu áratugi,
leyfi ég mér að segja, og sums staðar engin. Jafnvel félagsfundir
í Læknafélagi Reykjavíkur hafa verið fremur illa sóttir; það er
helst ef einhver deilumál koma upp sem mæting hefur verið
ákjósanleg. Þær breytingar hafa svo orðið síðustu mánuði að
félagsmenn nokkurra sérgreinafélaga hafi viljað flytja atkvæði
frá LR yfir í sérgreinafélagið. Staða LR hefur því veikst nokkuð
upp á síðkastið. Formenn sumra svæðafélaga hafa lagt til að við-
komandi félag verði lagt niður. Í mínu félagi, Læknafélagi Vestur-
lands, hafa verið haldnir einn til tveir fundir á ári og um 10 - 12
læknar komið á fundina. Fáir læknar búa á svæðinu. Breytt skip-
an læknisþjónustunnar kemur einnig inn í þessi mál. Meira er
um verktakastarfsemi innan heilsugæslunnar og þeir læknar sem
koma til starfa á heilsugæslustöðvum úti á landi tilheyra kannski
öðru svæðafélagi eða sérgreinafélagi eins og félagi heimilislækna.
Þeir hafa því ekki nein félagsleg tengsl inn á viðkomandi svæði.
Breytt skipan heilsugæsluumdæma speglar heldur ekki þessa
gömlu skiptingu í svæðafélög. Á upptökusvæði Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands starfa nú læknar sem í raun tilheyra þremur
svæðafélögum og sumir mögulega einu sérgreinafélagi, til dæmis
Skurðlæknafélagi Íslands. Í raun má því segja að skipting félags-
ins sé úrelt.
Eins og komið hefur fram þá vann Kristján Vigfússon að-
júnkt við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík tillögurnar um
breytta skipan læknasamtakanna. Honum til hjálpar var þriggja
manna nefnd undir forystu Örnu Guðmundsdóttur, eins og áður
segir, en með henni voru Tryggvi Helgason, barnalæknir auk
undirritaðs. Starfsmenn Læknafélagsins og ýmsir forystumenn
LÍ lögðu einnig gjörva hönd á plóg. Skoðuð var uppbygging
norrænu læknasamtakanna og reynt að finna kosti og galla hvers
skipulags fyrir sig. Eftir mikla yfirlegu var ákveðið að leggja
einkum til grundvallar skipulag dönsku læknasamtakanna,
sem segja má að byggi á ákveðinni blöndu af fulltrúalýðræði og
beinni einstaklingsaðild.
Tillaga að breyttu skipulagi LÍ
Samkvæmt tillögum um breytta skipan læknasamtakanna hafa
félagsmenn áhrif í gegnum sitt aðildarfélag með því að kjósa
fulltrúa á aðalfund og fá félögin aðalfundarfulltrúa í hlutfalli við
fjölda félagsmanna viðkomandi félags. Aðildarfélögin yrðu fjögur
og hvert þeirra fengi tvo menn í stjórn LÍ, óháð fjölda félags-
manna. Formaður Lí er kosinn í beinni rafrænni kosningu.
Í stjórn LÍ sætu því 9 læknar, með formanni, líkt og nú er.
Þessar tillögur að breyttu skipulagi eru að mínum dómi
unnar af fagmennsku. Stjórn LÍ mun á næstunni kynna þessar
breytingatillögur fyrir læknum. Á aðalfundi Læknafélags Íslands
sem haldinn verður dagana 19. og 20. október næstkomandi mun
verða fjallað ítarlega um framkomna tillögu stjórnar LÍ um breytt
skipulag læknasamtakanna og þær lagabreytingar sem gera þarf
í kjölfarið.
Þorbjörn Jónsson formaður
Orri Þór Ormarsson varaformaður
Björn Gunnarsson gjaldkeri
Magdalena Ásgeirsdóttir ritari
Agnar H. Andrésson
Arna Guðmundsdóttir
Hjalti Már Þórisson
Jóhanna Ósk Jensdóttir
Þórarinn Ingólfsson
Stjórn LÍ
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Enn um skipulagsbreytingar
hjá Læknafélagi Íslands
Björn Gunnarsson
svæfingalæknir á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Akranesi
bjorn.gunnarsson@hve.is
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins.
Meðferð við bráðum
þvagsýrugigtarköstum
Fyrirbyggjandi meðferð
gegn þvagsýrugigtarkasti í upphafi
meðferðar með þvagsýrulosandi lyfjum
Lyf gegn þvagsýrugigt
Colrefuz (Colchicin) – 500 míkrógramma töflur / 100 stykkja pakkningar
A
ct
a
v
is
/
6
1
9
0
2
1