Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 27
LÆKNAblaðið 2017/103 427 R A N N S Ó K N Tafla VIII. Innbyrðis hlutföll (%) meiriháttar beinþynningarbrota í Hjartaverndarhópnum. Tegund brots Konur Karlar Framhandleggur fjærendi 47,8 37,6 Upphandleggur nærendi 12,5 13,8 Hryggur 17,6 21,8 Mjöðm 22,0 26,7 Tafla VII. Tíu ára meðallíkur (%) eftir aldri og kyni á einhverju meiriháttar bein- þynningarbroti á Íslandi (fjærendi framhandleggs, nærendi upphandleggs, hryggur og mjöðm). Aldur Konur Karlar 50 8,0 2,4 60 11,3 3,8 70 15,8 6,2 80 24,3 11,0 sem fengist höfðu úr stórum framskyggnum fjölþjóðlegum hóp- rannsóknum. Þessir þættir eru, auk mældrar beinþéttni í mjöðm, aldur, kyn, líkamsþyngd og hæð, saga um fyrri beinbrot eftir að fullorðinsaldri var náð, saga um mjaðmarbrot foreldra og nokkur önnur atriði. Saman gefur þetta líklega áhættu á beinbroti næstu 10 árin. FRAX Ísland var opnað á veraldarvefnum árið 2013 þar sem Hjartavernd lagði til áðurnefndar nýgengistölur fyrir öll meiriháttar beinþynningarbrot. Ísland varð þannig númer 54 í röðinni til að opna slíkan áhættureikni og gera hann aðgengi- legan öllum á veraldarvefnum (https://www.sheffield.ac.uk/ FRAX/?lang=ic ).2 Tafla VIII sýnir innbyrðis hlutföll helstu beinþynningarbrot- anna í Hjartaverndarrannsókninni. Hlutföllin héldust svipuð hvort sem um var að ræða fyrsta eða seinni brot. Hlutföllin voru hinsvegar mismunandi eftir aldri. Þessi rann- sókn Hjartaverndar sem nær til allra þessara brota er því ítarlegri en flestar aðrar og gefur möguleika á að nýta hlutföllin milli brotanna ef eingöngu mjaðmarbrotatíðnin er þekkt. Þetta gefur því möguleika á að reikna brotaáhættuna samkvæmt FRAX fyrir meiriháttabrot út frá FRAX fyrir mjaðmarbrot meðal þjóða sem ekki hafa upplýsingar um nýgengi hinna brotanna.2 Oftast fer þó há tíðni mjaðmarbrota saman við háa tíðni framhandleggs- og hryggsúlubrota.15 Niðurlag Beinbrot meðal miðaldra og sérstaklega meðal eldri einstak- linga er algengt vandamál á Íslandi eins og meðal annarra vest- rænna þjóða. Meiriháttar beinþynningarbrotin valda viðkomandi einstaklingum þjáningum og þjóðfélaginu miklum búsifjum. Stærsti hluti þeirra verður við lítinn áverka. Rannsóknir Hjarta- verndar varpa ljósi á faraldsfræði þessara brota hérlendis sem ætti að nýtast við heildarmat á þessum vanda og hvernig unnt sé að lágmarka hann. Þrátt fyrir að aldursstöðluð tíðni meiriháttar brot- anna hafi hætt að vaxa um aldamótin, má búast við að vaxandi öldrun þjóðarinnar komi til með að auka þennan vanda enn frekar á næstu árum. Áhættureiknirinn FRAX Ísland (https://www. sheffield.ac.uk/FRAX/?lang=ic ) sem þróaður var af Hjartavernd í samvinnu við prófessor John A. Kanis, háskólanum í Sheffield, Englandi og fleiri aðila, ætti að nýtast vel við áhættumat, forvarnir og meðferð einstaklinga. Þakkir Sérstakar þakkir til þátttakenda í Hóprannsókn Hjartaverndar og Springer Science and Business Media fyrir leyfi til birtingar á mynd- um 1-4.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.