Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 12

Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 12
412 LÆKNAblaðið 2017/103 unarransókninni, sem unnin var í samvinnu við National Institute of Aging (NIA) í Bandaríkjunum og stóð sú rannsókn til ársins 2011.10 Í Öldrunarrannsókninni voru rannsakaðir tæplega 6000 einstaklingar sem voru á lífi á þeim tíma og tekið höfðu þátt í Reykjavíkurrannsókninni. Monica-rannsóknin var stöðluð gagna- skráning sem unnin var í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunina (WHO) á tímabilinu 1981 til 1994. Hún náði til allra tilfella af kransæðastíflu á landinu hjá einstaklingum milli 25 og 74 ára og var um leið áhættuþáttakönnun. Refine-rannsóknin var slembiúrtak 9480 einstaklinga á Reykjavíkursvæðinu sem voru fæddir 1935-1985 og var þátttökuhlutfall 73%.11 Rannsóknin var unnin á tímabilinu 2006-2012. Í öllum þessum rannsóknum voru þátttakendur skoðaðir og hefðbundir áhættuþættir mældir á staðl- aðan hátt. Blóðmælingar voru gerðar fastandi. Tafla 1 sýnir fjölda einstaklinga á aldursbilinu 50-69 ára úr of- angreindum rannsóknum en það aldursbil er notað þar sem flest- ir einstaklingar eru á því aldursbili og lægst vikmörk. Um er að ræða umfangsmikið safn upplýsinga rúmlega 21 þúsund karla og kvenna sem endurspeglar áhættuþætti og líffræðilegar mælingar heillar þjóðar. Þessar upplýsingar ásamt upplýsingum um hjarta- sjúkdóma og dauðsföll úr dánarmeinaskrá liggja til grundvallar gagnasafni Hjartaverndar sem er í raun einstakt á heimsvísu. Hér birtast uppfærðar faraldsfræðilegar upplýsingar um þróun áhættuþátta fram til ársins 2013. Í þeim tilvikum þar sem um áður birt gögn er að ræða er vísað til viðeigandi heimilda, annars er um ný og áður óbirt gögn að ræða. Hjartaáföll og dánartíðni af þeirra völdum Mikil lækkun hefur orðið á nýgengi kransæðasjúkdóma og dauðs- falla af þeirra völdum á Íslandi allt frá 1981.1 Mynd 1a sýnir aldurs- staðlað nýgengi kransæðasjúkdóma í aldurshópnum 25-74 ára fyr- ir tímabilið 1981-2009. Þar má sjá að nýgengi kransæðasjúkdóma lækkaði um 66,5% yfir tímabilið. Áberandi er lækkandi nýgengi á aldursbilinu 50-75 ára, bæði meðal karla og kvenna (mynd 1b) og skýrir það að nokkru leyti aukið langlífi þjóðarinnar þar sem hluti þessara áfalla verða síðar á ævinni en áður var. Mynd 1c sýnir breytingar í aldursstaðlaðri dánartíðni vegna kransæðasjúkdóma fyrir 75 ára aldur á tímabilinu 1981-2015. Fækkun dauðsfalla var um 80% fyrir tímabilið 1981-2006 og hefur haldið áfram í lok þessa tímabils þannig að lækkunin er orðin 86% fyrir 1981-2015 (85,7% meðal karla og 86,2% hjá konum) (mynd 1c). Horfur þeirra sem fá kransæðastíflu hafa batnað verulega á síðustu áratugum.3,4 Á mynd 2 er sýnd 28 daga lifun eftir fyrstu Tafla I. Fjöldi einstaklinga á aldrinum 50-69 ára, eftir tímabili og rannsókn. Tímabil 1967-'69 1970-'74 1974-'79 1979-'86 1985-'91 1993-'94 1997-'03 2004-'08 2008-'10 2011-'13 Miðgildisár tímabils 1968 1971 1977 1983 1988 1993 2000 2006 2009 2012 Samtals Reykjavíkurrannsóknin 1655 2421 3019 2304 1902 11301 Monica 1983 910 910 Monica 1988 912 912 Monica 1993 958 958 Ungir 1897 1897 Öldrunarrannsóknin (AGES) 238 238 REFINE - fyrri koma 1555 1811 137 3503 REFINE - seinni koma 348 1610 1958 Samtals 1655 2421 3019 3214 2814 958 1897 1793 2159 1747 21677 Mynd 1a. Aldursstaðlað nýgengi kransæðasjúkdóma samkvæmt aldurssamsetningu 2009. Mynd 1b. Nýgengi kransæðasjúkdóma í fimm ára aldurshópum 25-74 ára, árin 1981 og 2009. Y F I R L I T S G R E I N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.