Læknablaðið - 01.10.2017, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2017/103 447
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
starfsemi. Þessum fjórum félögum yrði
ætlað að sinna öllu landinu. Sérgreinafé-
lögin og önnur félög yrðu svo rekin með
óbreyttu sniði.“
Sterkari félög og jafnari völd
Kristján segir að viðmælendur hafi verið
sammála um að hingað til hafi Lækna-
félag Reykjavíkur dálítið borið höfuð og
herðar yfir önnur aðildarfélög LÍ og því
getað haft mikil áhrif á starfsemina ef því
sýndist svo. „Aftur á móti hafa svæða-
félögin á landsbyggðinni verið lítið virk,
börn síns tíma, og þar sjái flestir ekki
tilgang í að halda starfseminni áfram í
óbreyttri mynd. Með því fyrirkomulagi
að læknar geti verið í mörgum félögum
„Með því að jafna vægið með nýjum aðildarfélögum
yrðu félögin sterkari, völdin jafnari og fjárhagsleg
geta meiri til að sinna hagsmunum allra lækna, sem
aftur styður enn betur við starfsemi LÍ,“
segir Kristján Vigfússon.
og valið hvert tíundin, félagsgjaldið, sé
greitt, er verið að tvístra kröftum og erfitt
að koma skilaboðum skýrt á framfæri,
tryggja framgang og fagmennsku. Þess
vegna vilji læknar færri félög þar sem
hagsmunir fara betur saman. Með því að
jafna vægið með nýjum aðildarfélögum
yrðu félögin sterkari, völdin jafnari og
fjárhagsleg geta meiri til að sinna hags-
munum allra lækna, sem aftur styður enn
betur við starfsemi LÍ,“ segir Kristján.
Eitt félag og eitt félagsgjald
Þá voru starfsemi og skipulag Læknafé-
lags Íslands borin saman við hin Norður-
löndin í úttektinni. „Þar var sambærilegt
fyrirkomulag í Svíþjóð, Danmörku og
Noregi að reyna að halda félagsmönnum
saman og vera með sterk og fá aðildarfé-
lög. Finnar eru eina landið með einstak-
lingsaðild allra lækna og eitt svæði.
Íslendingar hafa verið með níu svæði auk
annarra minni félaga inni í LÍ. „Með nýja
fyrirkomulaginu yrðu til dæmis skurð-
læknar að ákveða hvort þeir ætla að vera
í aðildarfélagi sjúkahúslækna eða sto-
fulækna (gamla LR). Þeir meta sjálfir hvar
hagsmunum þeirra er best borgið.“
Fjórir starfsmenn í stað eins
Kristján segir að könnunin hafi leitt í ljós
mikinn samhug um að standa áfram vörð
um kjaramál lækna því í krafti stærðar
og samtakamáttar náist meiri árangur.
Hvert félag myndi kjósa sér stjórn og
formann og setja vinnureglur og lög um
starfsemina sem myndu gilda fyrir allt
landið. „Hvert félag fengi líka hlutdeild í
aðildargjöldum LÍ (sem eru um 120 millj-
ónir á ári) og gæti innheimt að auki eigin
aðildargjöld ef vilji yrði fyrir því. Ef þau
fengju 12% af aðildargjöldum LÍ þá yrðu
það fjórar milljónir á ári á hvert félag sem
gæti dugað fyrir starfsmann í hverju félagi
í hálfu starfi. Hvert félag yrði þá með for-
mann á launum sem myndi bæði styrkja
viðkomandi félag og samstarfið við LÍ og
hefði auk þess tvo fulltrúa í stjórn LÍ. For-
maðurinn yrði kosinn í beinni kosningu.
Þá gætu fulltrúarnir mætt á læknaþingið
og unnið í baráttumálum hvers félags fyr-
ir sig,“ segir Kristján að endingu.
Kosið verður um breytingu á lögum
og skipuriti Læknafélags Íslands í október
næstkomandi.