Morgunblaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 4
ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 20184 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 . heimsferdir.is Beint flug til Trieste 23 kg taska og 10 kg handfarangur innifalið í verði Börnin fljúga frítt með Heimsferðum í júní til Króatíu og Ítalíu Brottfarir: 8., 18. og 29. júní SVIÐSLJÓS Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Líklegt er að línur meirihluta og minnihluta verði orðnar skýrar í flestum stærri sveitarfélögum lands- ins um miðja viku. Meirihlutar voru myndaðir á tveimur stöðum í gær. Í Kópavogi, næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins, eru enn ekki hafnar formlegar stjórnarmyndunar- viðræður. Ástæðan eru skiptar skoð- anir meðal sjálfstæðismanna um hvort hefja eigi viðræður við Fram- sóknarflokk eða halda áfram sam- starfi við Bjarta framtíð sem bauð nú fram með Viðreisn. Í Reykjavík tóku oddvitar Sam- fylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna sér frí yfir helgina í viðræðum um meirihlutasamstarf. Fundað verður að nýju í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti klukkan níu í dag. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, odd- viti Viðreisnar, sagði í samtali við mbl.is í gær að ekkert hefði verið rætt um það hver yrði næsti borgar- stjóri Reykjavíkur. Nýr meirihluti í Borgarbyggð Meirihluti var myndaður í Borg- arbyggð í gær eftir að Sjálfstæðis- flokkur, Samfylking og Vinstri græn náðu saman. Ráðgert er að málefna- samningur milli flokkanna verði und- irritaður í upphafi vikunnar verði ekki gerðar alvarlegar athugasemdir við hann. Sjálfstæðisflokkur, Sam- fylking og Vinstri græn hafa fimm fulltrúa af níu í sveitarstjórn Borg- arbyggðar. Gengið er út frá því að Gunnlaugur Júlíusson, núverandi sveitarstjóri, verði áfram. Einnig var myndaður nýr meirihluti á Akranesi eins og greint er frá hér á síðunni. Málefnasamningur Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í Mosfellsbæ verður lagður fyrir stofnanir flokk- anna til samþykktar eða synjunar síðdegis í dag. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðis- manna, býst ekki við því að nokkur ágreiningur verði um samninginn hjá sínu fólki, flokkarnir hafi um árabil átt gott samstarf. Auglýst í Fjarðabyggð Myndun meirihluta Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra í Fjarða- byggð er á lokastigi að sögn Eydísar Ásbjörnsdóttur, oddvita Fjarðalist- ans. Ráðgert er að málefnasamning- ur liggi fyrir í vikunni, en flokkarnir hafa sammælst um að staða bæjar- stjóra verði auglýst til umsóknar. Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur eiga í formlegum við- ræðum um myndun meirihluta á Ísa- firði. Flokkarnir gerðu hlé á fundahöldum yfir helgina, en ráðgert er að niðurstaða fáist í vikunni. Framsóknarmenn gerðu kröfu um að bæjarstjóri yrði ópólitískur. Góður gangur er í viðræðunum að sögn Marzellíusar Sveinbjörnssonar, odd- vita Framsóknarflokksins. Hann segir að áherslur flokkanna í kosn- ingabaráttunni hafi enda verið líkar. Viðræður að nýju í Grindavík Sjálfstæðisflokkur og óháðir og Framsóknarflokkur funduðu á Fljótsdalshéraði um helgina og hafa viðræðurnar gengið vel, að sögn Stef- áns Boga Sveinssonar, oddvita fram- sóknarmanna. Líklegt er að botn fá- ist í þær um miðja viku. Áður höfðu sjálfstæðismenn og Héraðslisti reynt að mynda meirihluta, en þær viðræð- ur sigldu í strand. Að sögn Stefáns Boga hefur annað ekki komið fram í viðræðunum en að Björn Ingimars- son, ópólitískur bæjarstjóri, sitji áfram. Ekkert hefur þó verið endan- lega ákveðið í þeim efnum. Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur tóku upp viðræður í Grindavík í síðustu viku eftir að Framsókn gekk út úr viðræðum við Rödd unga fólksins, Miðflokkinn og Samfylkinguna. Hlé var gert á fund- um yfir helgina. Hjálmar Hallgríms- son, oddviti sjálfstæðismanna, vonast til þess að niðurstaða verði ljós á morgun. „Ég sé ekkert í þessu sem hindrar að við náum saman,“ segir hann. Eitt ágreiningsmálanna eru bæjarstjóramál í Grindavík, en sjálf- stæðismenn vilja halda í núverandi bæjarstjóra, Fannar Jónasson, sem ráðinn var í janúar 2017. Fram- sóknarmenn vilja aftur á móti aug- lýsa stöðu bæjarstjóra fyrir hvert kjörtímabil. Jákvæð gagnvart Kristjáni Þór Líklegt er að Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri í Norður- þingi, verði það áfram. Sjálfstæðis- menn gerðu kröfu um það í viðræðum sínum við Samfylkingu og VG og hafa sveitarstjórnarfulltrúar síðarnefndu flokkanna verið jákvæðir gagnvart hugmyndinni. Góður gangur er í við- ræðunum að sögn Silju Jóhannes- dóttur, oddvita Samfylkingar, og ráð- gert er að niðurstaða samtalsins liggi fyrir um miðja viku. Aðspurð segir hún að engin stór ágreiningsmál séu til staðar í viðræðunum. Skammt komið í Rangárþingi Sjálfstæðismenn og J-listi ræða myndun meirihluta í nýstofnuðu sveitarfélagi Sandgerðis og Garðs. Áður höfðu sjálfstæðismenn rætt við H-lista. Ráðgert er að niðurstaða við- ræðnanna liggi fyrir um miðja viku. Flokkarnir eru sammála um að bæjarstjóri verði ópólitískur. Sjálfstæðismenn og L-listi óháðra í Rangárþingi eystra eiga í viðræðum um myndun meirihluta, en samtalið er mjög skammt á veg komið. Sjálfstæðismenn kærðu á laugar- daginn niðurstöðu sveitarstjórnar- kosninganna í Vestmannaeyjum, en þar hafa H-listinn og Eyjalistinn myndað meirihluta. Tekur kæran til fjögurra utankjörfundaratkvæða sem yfirkjörstjórn úrskurðaði ógild og myndbirtingar á samfélagsmiðl- um af atkvæði einstaklings. Telur Sjálfstæðisflokkurinn að atkvæðin fimm kunni að geta breytt úrslitum kosninganna.  Sjálfstæðismenn og Framsókn ræða víða saman  Skoðanaskipti í Kópavogi Ljósmynd/Skessuhorn/MM Undirritun Nýr meirihluti á Akranesi. F.v. Bára Daðadóttir og Gerður J. Jóhannsdóttir, Samfylkingu, og Ragnar Sæmundsson, Framsókn. Sitjandi: Valgarður Lyngdal Jónsson, Samfylkingu, og Elsa Lára Arnardóttir, Framsókn. Línur í sveitarstjórnum verða ljósar um miðja viku Samfylking og Framsóknarflokkur og frjálsir náðu í gær saman um myndun meirihluta í bæjarstjórn á Akranesi. Var málefnasamningur undirritaður í kjölfar fundarhalda flokkanna hvors um sig í gærkvöldi. Samfylking fékk þrjá fulltrúa kjörna og Framsókn tvo í níu manna bæj- arstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn missti hreinan meirihluta sinn frá því í kosningunum 2014 og fékk fjóra fulltrúa kjörna. Greiða niður skuldirnar Valgarður Lyngdal Jónsson, odd- viti Samfylkingarinnar, segir að Sævar Freyr Þráinsson verði áfram bæjarstjóri. Samhljómur var um þetta hjá flokkunum tveimur. „Ég held það sé einróma ánægja með hann sem bæjarstjóra. Þar er- um við með mann sem er mjög reyndur og sjóað- ur í atvinnulífinu. Það er mikill styrkur fyrir bæjarfélagið að hafa slíkan mann sem bæjarstjóra,“ segir hann. Spurður um helstu mál flokk- anna, svarar Val- garður að stefnt sé að því að greiða niður skuldir bæjarins svo hægt verði að bjóða íbúum frekari þjónustu. „Bæði við og Framsóknarflokkur- inn lögðum áherslu á fjölskylduvænt samfélag og velferðarmálin í kosn- ingabaráttunni. Þar liggur áherslan í málefnasamningnum,“ segir Val- garður. „Við ætlum að halda áfram að styrkja rekstur bæjarins og ná skuldastöðunni niður. Við viljum halda áfram þeirri vinnu sem lögð hefur verið í það síðustu tvö kjör- tímabil. Í stað þess að eyða pen- ingum í fjármagnskostnað, þá viljum við ná skuldastöðunni niður og nýta skattfé íbúa til að bæta þjónustu við þá,“ segir hann. Atvinnumál í brennidepli Aðspurður segir hann að útsvars- hækkun sé ekki á dagskrá. „Við er- um ekki að fara að auka álögur á bæjarbúa. Það er alveg á hreinu.“ Þá nefnir Valgarður að atvinnu- málin séu ofarlega í huga hins nýja meirihluta. „Við leggjum mikla áherslu á atvinnumálin. Við höfum ákveðnar áætlanir um að vinna markvisst að þeim og taka þau föst- um tökum,“ segir hann. jbe@mbl.is Nýr meirihluti myndaður á Akranesi í gærkvöldi  Fjölskyldu-, velferðar- og atvinnumál verða í forgrunni Valgarður Lyngdal Jónsson „Það er hlutverk mitt sem oddvita að sætta sjónar- mið. Ég mun leggja mikið upp úr því að það ná- ist sátt um næstu skref, hver svo sem þau kunna að vera, en það verð- ur erfitt að ná sátt um áfram- haldandi samstarf við BF-Viðreisn,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- stjóri Kópavogs og oddviti Sjálf- stæðisflokks, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Theódóra S. Þorsteinsdóttir, for- maður bæjarráðs Kópavogs og odd- viti BF-Viðreisnar, sagði í þættinum Sprengisandi í gær að hún liti svo á að hún hefði fengið uppsagnarbréf frá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi. Líklegast færi flokkurinn í meiri- hlutasamstarf með Framsókn. Bæjarfulltrúarnir stigu fram Bæjarfulltrúarnir Margrét Frið- riksdóttir, Karen Halldórsdóttir og Guðmundur Gísli Geirdal sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi. Í yfirlýs- ingunni segjast þau bera fullt traust til Ármanns. Algjör eining sé í bæj- arstjórnarhópnum um að Ármann hafi óskorað umboð til meirihluta- viðræðna í Kópavogi. Þó er tekið fram að það sé rétt sem komið hafi fram í fréttum, að þau hafi efasemdir um samstarf við BF-Viðreisn. Með samstarfi flokk- anna tveggja hafi forsendur breyst að þeirra mati og á undanförnum dögum hafi samskiptin á kjörtíma- bilinu því verið endurmetin. Telur sátt vera að myndast Spurður út í ummæli Theódóru sagðist Ármann telja eðlilegast að bæjarfulltrúarnir svöruðu fyrir sig. „Mér fannst samstarfið við Theó- dóru og Bjarta framtíð vera gott á síðasta kjörtímabili. Það voru marg- ir góðir hlutir sem komust í höfn. Hvað okkur varðar þá ríkti mikið traust á milli þessara tveggja odd- vita,“ sagði Ármann. Spurður hvort búið væri að lægja öldurnar í Kópavogi sagði Ármann að ljóslega væri sátt að myndast. „Þegar þú ert með flokk með þetta marga bæjarfulltrúa er ljóst að sjón- armiðin geta orðið mörg og ég þarf að taka tillit til þeirra sem oddviti.“ Telur sátt vera að myndast Ármann Kr. Ólafsson  Sjálfstæðisflokkur ræddi málin í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.