Morgunblaðið - 04.06.2018, Side 27
fái alltaf farsælan endi. „Samhliða
því að semja söguna fyrir þennan
eina leik eru við að skapa allan
heiminn þar sem hún gerist, með
það fyrir augum að leikurinn verði
aðeins sá fyrsti í seríu leikja sem
Garpur Enn eru nokkur ár eftir af þróun leiksins. Söguhetjan er djörf ung kona sem kann að slást.
Geiflur Með því að skanna andlit og svipbrigði leikaranna má gæða söguhetjur leiksins lífi.
byggja á sama grunni. Einn starfs-
maður hefur gagngert það hlutverk
að stýra heimssköpuninni, og
ákveða hvers konar skrímsli og
furðuverur lifa þar, og jafnvel hvort
og hvernig galdrar virka. Annar
starfsmaður vinnur síðan innan
þessarar umgjarðar til að gera
handritið að sjálfum leiknum.“
The Darken sýnir vel hversu þró-
að og kröftugt listform og frá-
sagnartæki tölvuleikir eru orðnir.
Að verkinu koma ekki bara forrit-
arar heldur þjálfaðir leikarar, þrí-
víddarlistafólk, sverðfimiþjálfarar,
búningahönnuðir, handritshöfundar
og meira að segja hárgreiðslufólk.
Friðrik segir tölvuleiki hafa tekið út
mikinn þroska á síðustu áratugum
og einföld afþreying og skotleikir
séu að víkja fyrir leikjum sem bjóða
upp á upplifun sem hrífur spilarann
með sér. „Það verður að muna hvað
tölvuleikir eru nýtilkomnir, og að
það tekur tíma fyrir alla nýja miðla
að þroskast og þróast; Pac-Man
kom út sama ár og önnur Stjörnu-
stríðs-myndin var frumsýnd í kvik-
myndahúsum. Er það raunar ekki
fyrr en núna fyrst að leikjaiðnaður-
inn er kominn það langt að við get-
um, með tiltölulega litlum tilkostn-
aði, notað tölvuleiki til að segja
djúpar sögur sem gerast í stórum
og flóknum heimum.“
Þræðir Hárgreiðslufólk er fengið til
að laga hárið til fyrir skönnun.
Ekta? Tölvuteikning af neðri hluta
trés sem skannað var á Íslandi.
Auk þess að beita mikilli útsjónarsemi við gerð The Darken hafa starfs-
menn Myrkurs þróað betri leikjaupplifun sem þeir vonast til að muni auð-
velda fólki að gleyma sér í ævintýrinu.
„Leikir af þessum toga, þar sem söguhetjan hefur áhrif á atburða-
rásina, eru oft útfærðir með þeim hætti að leikurinn stoppar með reglu-
legu millibili þegar spilarinn ákveður hvað hann gerir næst, t.d. hvernig
hann svarar í samtölum við persónurnar í leiknum,“ útskýrir Friðrik. „Það
sem við viljum gera er að láta ákvarðanatökuna eiga sér stað í rauntíma
og brjóta ekki upp framvindu sögunnar. Frekar en að nota nk. „samræðu-
tré“ sem spilarinn þarf að þræða sig í gegnum höfum við hannað leikinn
þannig að leikmaðurinn getur á einfaldan hátt gefið það í skyn hvernig
honum er innanbrjósts svo að leikurinn sér fyrir þá ákvörðun sem hann
vill taka. Hann þarf ekki að taka eina ákvörðun í einu, og velja að gera A,
B eða C, heldur vindur sögunni fram án þess að stoppa.“
Hnökralaus framvinda
NÁLGAST SAMTÖL OG ÁKVARÐANIR MEÐ ÖÐRUM HÆTTI
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018
Ekkert varð úr því að nýir með-
limir væru teknir inn í Sænsku
akademíuna (SA) fyrir sumarfrí
SA líkt og Göran Malmqvist,
framkvæmdastjóri SA, hafði boð-
að í síðasta mánuði. Frá þessu
greinir Sænska ríkisútvarpið.
Á seinasta fundi SA fyrir
sumarfrí, sem haldinn var sl.
fimmtudag, ákváðu þeir tíu með-
limir sem eftir eru að bíða með að
velja nýja meðlimi þar til síðar á
árinu.
„Það verður enginn valinn inn,
en við höldum áfram að ræða þá
sem koma til greina,“ segir And-
ers Olsson, starfandi ritari SA, í
samtali við sænsku fréttaveituna
TT og tekur fram að huga þurfi
vel að því að allt sé gert í sam-
ræmi við stofnsáttmála og reglur
SA.
Um miðjan síðasta mánuð lýsti
Malmqvist því yfir að nýir með-
limir yrðu valdir inn fyrir maílok.
Viku síðar sendu Sara Danius,
Peter Englund og Kjell Espmark
frá sér sameiginlega yfirlýsingu
þar sem þau sögðust reiðubúin að
snúa aftur til starfa hjá SA með
því skilyrði að Horace Engdahl
hætti störfum hjá SA, en Engdahl
lét um miðjan apríl hafa eftir sér
að Danius væri versti ritari og
talsmaður SA frá stofnun hennar
árið 1786.
Yfirlýsing þremenninganna
leiddi til heitra deilna um hvernig
bæri að túlka stofnsáttmála SA og
hvort þeir tíu meðlimir SA sem
eftir eru gætu valið inn nýja með-
limi án stuðnings þremenning-
anna. Stuttu síðar staðfesti Marg-
areta Thorgren, upplýsingafulltrúi
sænsku hirðarinnar, að SA bæri
að fara eftir núgildandi reglum,
en samkvæmt þeim „þarf atkvæði
12 meðlima til að velja inn nýja
meðlimi. Það eru engin áform
uppi um að breyta reglum SA
frekar“, segir Thorgren, en í maí-
byrjun breytti Karl XVI. Gústaf
Svíakonungur stofnsáttmála SA
með konunglegri tilskipun á þá
leið að meðlimirnir 18 sem skipa
SA væru ekki lengur skipaðir
ævilangt heldur gætu hætt hjá SA
að eigin ósk.
Lars Heikensten, stjórnandi
Nóbelsstofnunarinnar, hefur hvatt
meðlimi SA til að gæta fyllsta
trúnaðar og íhuga hvort störf
þeirra séu „Sænsku akademíunni
og Nóbelsverðlaununum til gleði“
eða hvort „betra væri að þau
stigju til hliðar“. Undir venjuleg-
um kringumstæðum fundar SA
ekki yfir sumartímann, en í ljósi
aðstæðna er fastlega búist við því
að sumarið verði nýtt til að vinna
að lausn á krísunni innan SA. Í
samtali við TT segist Olsson
munu vinna áfram að lausn máls-
ins á næstu vikum áður en hann
tekur sér sumarfrí.
Eins og fjallað hefur verið ítar-
lega um í Morgunblaðinu á síð-
ustu vikum má rekja það
ófremdarástand sem nú ríkir inn-
an SA, sem ár hvert veitir
Nóbelsverðlaunin, til ásakana
þess efnis að Jean-Claude Arn-
ault, eiginmaður Katarinu Frost-
enson (sem valin var inn í SA
1992 og sat þar til um miðjan
aprílmánuð), hafi í nokkra áratugi
áreitt fjölda kvenna kynferðislega,
ítrekað lekið nafni komandi
Nóbelsverðlaunahafa og átt óeðli-
leg fjárhagsleg tengsl við SA, sem
styrkti m.a. bókmenntaklúbbinn
Forum sem Arnault og Frosten-
son ráku um langt árabil. Ósætti
var innan SA um hvernig taka
ætti á málinu og í kjölfarið hættu
alls sex meðlimir, en áður höfðu
hætt tveir meðlimir vegna ann-
arra ástæðna.
silja@mbl.is
Engir nýir með-
limir fyrir sumarið
AFP
Forsvari Anders Olsson, starfandi
ritari Sænsku akademíunnar.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Sun 10/6 kl. 20:00 Lokas.
Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s
Allra síðustu sýningar!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s
Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s
Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 8/6 kl. 20:30 Lokas.
Tilnefnd til sex Grímuverðlauna. Allra síðustu sýningar.
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200