Morgunblaðið - 04.06.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 04.06.2018, Síða 32
MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 155. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Lít á þetta sem uppsagnarbréf 2. Þýskir ferðamenn vöknuðu við ... 3. Kveiktu í heimilum og ... 4. Ísbjörn brýst inn á hótel »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónverkið Reykjavík GPS verður flutt á Listahátíð í Reykjavík í dag kl. 12 við Hallgrímskirkju. Verkið er eftir bræðurna Úlf og Halldór Eldjárn og semur Úlfur tónlistina en Halldór for- ritar. Verkinu er lýst sem óði til mið- borgarinnar í Reykjavík í fortíð, nútíð og framtíð og er tónlistin tengd við ákveðin GPS-hnit í miðbænum þann- ig að fólk heyrir hana breytast á rölti sínu um bæinn. „Tónverkið er eins og falið landslag, ósýnileg borg í borg- inni, sem bíður þess að vera könnuð,“ segir um verkið á vef hátíðarinnar en til að njóta tónverksins þarf snjall- síma, góð heyrnartól og skó. Frá og með deginum í dag er verkið opið og öllum aðgengilegt á rvkgps.com Bræðurnir hafa áður gert gagn- virkt tónverk ásamt Sigurði Oddssyni sem nefnist Strengjakvartettinn endalausi. Morgunblaðið/Eggert „Tónverkið er eins og falið landslag“  Bandaríski fiðluleikarinn Gaelynn Lea heldur tónleika í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. Lea hóf að leika á fiðlu fyrir 20 árum þegar hugvitssamur tónlistarkennari hjálpaði henni að til- einka sér tækni sem hentaði líkams- byggingu hennar, en Lea kemur fram í rafmagnshjólastól og heldur á fiðlunni eins og örsmáu sellói. Hún býr til lúpp- ur úr ryþmum og laglínum sem eiga sér sígildan uppruna og býr þannig til sinfóníska kakófóníu sem spannar vítt svið en er um leið innilega djúphugul, eins og segir á vef Listahátíðar í Reykjavík en tónleikarnir eru á dag- skrá hennar. Lea mun koma fram með gítarleikaranum Al Church. Heldur á fiðlunni eins og örsmáu sellói Á þriðjudag Hæg breytileg átt eða hafgola og skýjað með köflum. Hiti 10 til 17 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg átt, víða bjart með köflum og hiti 10 til 18 stig, svalast á Vestfjörðum. VEÐUR Spennan magnast í Pepsi- deild karla í knattspyrnu en 7. umferð deildarinnar hófst í gær með þremur leikjum. Stjarnan gerði góða ferð í Kópavoginn og hrósaði 1:0 sigri. KA-menn hrukku loks í gang og unnu öruggan 4:1 sigur á móti Víkingi og á Hásteinsvelli unnu Eyja- menn góðan 2:0 sigur gegn KR-ingum. Umferðinni lýkur í kvöld með þremur leikjum. »4-5 Spennan magnast í Pepsi-deild karla „Fólk fer ekki að örvænta þó að þessi leikur hafi tapast, það eru svona 3-4 vikur síðan flestir spiluðu og liðið var að koma saman að æfa og það á eftir að fínpússa,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, þegar hann var beðinn um að meta leik íslenska landsliðsins í leiknum við Norðmenn. »1 Fólk fer ekkert að örvænta „Við þurfum að vinna áfram og hver og einn leikmaður þarf að taka næsta skref í sumar og næsta haust svo að landsliðið verði enn betra. Ef við höldum rétt á spöðunum getum við farið að keppa um að komast á EM 2020,“ sagði Axel Stefánsson, þjálf- ari kvennalandsliðsins í handbolta, eftir lokaleikinn í undankeppni Evrópumótsins. »6 Stefnir á að vera með á EM 2020 ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Þetta er viðurkenning á lífsstarf- inu sem byrjaði á trillu norður á Ströndum þar sem ég er fæddur og uppalinn,“ segir Ágúst Guðmunds- son, vélstjóri í Vestmannaeyjum sem heiðraður var á sjómannadag- inn sem haldinn var í Eyjum í gær. „Fólki leist ekki vel á að ég væri að róa norður af Djúpavík á tré- trillu með afa mínum sem var gam- all hákarlaformaður á níræðis- aldri,“ segir Ágúst sem lenti í vandræðum, vegna sjósóknar, með að finna tíma til þess að fermast. „Ég var að róa fermingarvorið mitt og handleggsbrotnaði. Það þurfti að flytja mig sjóleiðina til Hólmavíkur og þaðan með Catal- ina-flugbáti til Reykjavíkur og ég missti af fermingunni,“ segir Ágúst og bætir við að presturinn hafi ekki komið í Trékyllisvík aftur fyrr en í lok ágúst þar sem eina leiðin til að komast norður á Strandir var sjó- leiðis með Skjaldbreiðinni til Hólmavíkur og þaðan með bát yfir á Strandirnar. 55 ára brúðkaupsafmæli „Ég stundaði sjóinn grimmt og var í landlegu þegar presturinn kom. Ég fermdist einn, mamma bar fram sparimat og svo fór ég á sjóinn sama dag,“ segir Ágúst sem réð sig um haustið sem kokkur á síldveiðibát. Ágústi bauðst skips- pláss í Eyjum 1962 sem hann þáði með semingi. Hann réð sig sem há- seta á Ófeig 3. hjá Grétari Skafta- syni. Ráðningunni fylgdi gisting á heimili Grétars að Vallargötu 4. Á Vallargötunni kynntist Ágúst heimasætunni Ásu Sigurjónsdóttur og með henni fagnaði hann 55 ára brúðkaupsafmæli síðastliðinn föstu- dag. „Mér finnst þetta alveg ótrúleg þolinmæði hjá mér,“ segir Ágúst og hlær. Ágúst fór í vélskólann í Vest- mannaeyjum haustið 1963 og reri sem slíkur á nokkrum skipum þar til árið 1972 að hann fór í útgerð með vini sínum og samstarfsfélaga Einari Ólafssyni. „Við keyptum Kap 2., 100 tonna stálbát, og gerðum hann út á al- hliða veiðar. Síðar skiptum við í annan Kap 2., 700 tonna neta- og nótabát.“ Árið 1987 hættu Einar og Ágúst útgerð og sjómennsku og fóru í fasteignaviðskipti þar til Einar lést árið 2014. Ágúst stofnaði þá nýtt félag en stefnir að því að setjast í helgan stein fljótlega. „Ég keypti mér íbúð við höfnina og þar ætla ég að sitja við glugg- ann í ruggustól með pípu án þess að í henni sé tóbak og fylgjast með bátunum koma og fara,“ segir Ágúst. Nýtti landlegu til að fermast  Ágúst byrjaði á sjó með afa sem var á níræðisaldri Ágúst Guðmundsson á að baki langan og farsælan feril. Hann var orðinn háseti á trillu fyrir fermingu með afa sínum sem þá var á níræðisaldri. Síðar starf- aði Ágúst sem háseti á Ófeigi 3 árið 1962 og sem háseti á Ófeigi 2 árið eftir. Hann stundaði vél- skólanám árið 1963. Árið 1964 var Ágúst vélstjóri á Gídeon og árið 1966 var hann vélstjóri á Gjafari. Næstu ár reri hann á bátum í eigin útgerð með Einari Ólafssyni. Árið 1972 var Ágúst vélstjóri á Kap 2. Hann hætti í útgerð og fastri sjómennsku árið 1987 en var við afleysingar á sjó öðru hvoru næstu árin þar á eftir. Auk Ágústs var Eyjólfur Pét- ursson skipstjóri heiðraður af skipstjórafélaginu Verðanda og Friðrik Alfreðsson heiðraður af Sjómannafélaginu Jötni. Á sjónum alla starfsævina SJÓMANNSFERILLINN Sjómaður Ágúst Guðmundsson. Heiðraður Ágúst Guðmundsson hefur sótt sjóinn frá því fyrir fermingu. Hann var heiðraður fyrir ævistarfið á Sjómannadaginn í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.