Morgunblaðið - 04.06.2018, Page 10

Morgunblaðið - 04.06.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018 Ég sleit krossbönd og fór í fimm liðþófaaðgerðir. Samt hljóp ég hálft maraþon í sumar verkjalaust. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Yfir fimm hundruð íþróttaskópör söfnuðust í góðgerðar- og fjölskylduhlaupinu „Skór til Afríku“ sem haldið var af SOS Barnaþorpunum á Íslandi í samstarfi við miðla Ár- vakurs á laugardaginn. Þátttökugjaldið var eitt vel með farið íþróttaskópar og verða skórnir sendir til barna og unglinga í Nígeríu. „Okkur þótti það tilvalið því Ísland og Nígería eru saman í riðli á HM í fótbolta í júní og það eru fjögur SOS Barnaþorp í Nígeríu. Það eru 320 einstaklingar í 46 fjöl- skyldum í þessum þorpum en miklu fleiri njóta aðstoðar okkar í gegnum sérstaka fjölskyldueflingu samtakanna. Þessir skór munu því koma að góðum notum,“ er haft eftir Hans Steinari Bjarnasyni, upplýsingafulltrúa SOS Barnaþorpanna á Íslandi, á vef þeirra. Hindrunarhlaupið var þriggja og hálfs kílómetra leið í kringum Rauðavatn. Hundruð barna og fullorðinna tóku þátt og ýmist hlupu eða gengu. Forsetafrúin, Eliza Reid, var ásamt börnum sínum í fyrsta ráshópi og komu þau fyrst í mark, en Eliza er einn af velgjörðarsendiherrum SOS Barnaþorpanna á Ís- landi. SOS Barnaþorpin eru stærstu einkareknu barna- hjálparsamtök heims. Yfir 500 íþróttaskópör til barna í Nígeríu Reynslan af kostnaðargreiningu heil- brigðisþjónustu hins opinbera er almennt góð. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn þing- mannsins Hönnu Katrínar Friðriksson á Alþingi um aðferðir við kostnaðar- greiningar, hvaða þjónustuþættir hafi verið greindir og hver reynslan hafi verið af notkun greiningar. Í svari Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra kemur fram að nýtt fjármögnunarkerfi fyrir heilsugæslu- stöðvar á höfuð- borgarsvæðinu tók gildi í ársbyrjun 2017. Landspítali og Sjúkratryggingar Íslands hafi gert samning um fram- leiðslutengda fjármögnun Landspítala. Samningurinn byggist á DRG-flokkun- arkerfi en Landspítalinn hafi frá árinu 2003 notað það til að halda utan um klíníska framleiðslu og kostnað í starf- seminni. Ennfremur segir að í gildi sé ramma- samningur milli Sjúkratrygginga Ís- lands og hjúkrunarheimila um rekstur og þjónustu þeirra sem taki til þjón- ustu í hjúkrunar- og dvalarrýmum á hjúkrunarheimila án fastra fjárveit- inga. Greiðslur til heimilanna taki mið af RAI-hjúkrunarþyngdarstuðli en á sínum tíma hafi verið gerð kostnaðar- greining á rekstri hjúkrunarheimila og taki daggjaldið mið af henni. Í svari ráðherra segir að upplýsing- ar um kostnað við einstök verk, rekstrarkostnað starfseininga og hjúkrunarheimila séu sóttar í gagna- grunn stofnana. Þjónusta heilsugæslu- stöðva á höfuðborgarsvæðinu hafi ver- ið kostnaðargreind á grundvelli gagna frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins. Hjá Landspítala hafi framleiðslu- kostnaður verið greindur með DRG- flokkunarkerfi og reiknað verð fyrir hvert verk. Reiknað daggjald hjúkrun- arheimila taki mið af upplýsingum um rekstrarkostnað hjúkrunarheimila og hjúkrunarþyngd íbúa samkvæmt RAI- mati. Í undirbúningi sé að nota samskonar líkan og á höfuðborgarsvæðinu við dreifingu fjárveitinga til heilbrigðis- stofnana á landsbyggðinni. Laga þurfi þó líkanið að aðstæðum. Reynslan er almennt góð  Kostnaðargreiningar heilbrigðisþjón- ustu hafa gefið góða raun hér á landi Hanna Katrín Friðriksson Hátíðarhöld vegna sjómannadags- ins fóru vel fram á Húsavík um helgina. Að þessu sinni var ákveðið að heiðra Björgunarsveitina Garð- ar og Vilhjálm Pálsson, sem lengi hefur komið að björgunarmálum á Húsavík og nágrenni, fyrir þeirra mikilvæga starf í þágu samfélags- ins, ekki síst sjómanna. Aðalsteinn Árni Baldursson, for- maður Framsýnar stéttarfélags, flutti ávarp til heiðurs Vilhjálmi og Björgunarsveitinni Garðari en auk hans kom Heiðar Valur Hafliðason, varaformaður Sjómannadeildar Framsýnar, að heiðruninni. Þá má geta þess að Framsýn færði Slysa- varnadeild kvenna 100 þúsund krónur að gjöf við þetta tækifæri. Heiðrunin fór fram í kaffihlað- borði sem Slysavarnadeild kvenna stóð fyrir og var vel mætt. Heiðraður á Húsavík  Hátíðarhöld vegna sjómannadagsins Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Heiðraður Vilhjálmur og Védís Bjarnadóttir, eiginkona hans. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Úrval af sumarnámskeiðum fyrir börn og ungmenni er mikið og á heimasíðum flestra sveitarfélaga má sjá yfirlit yfir það sem í boði er. Reykjavíkurborg heldur úti frí- stundavefnum fristund.is. Þar er að finna upplýsingar um öll félög, samtök og fyrirtæki sem skráð hafa þjónustu sína á vefinn og bjóða upp á félags- og tómstunda- starf fyrir börn og ungmenni í Reykjavík og nágrannasveitar- félögunum. Yfir 250 tilboð eru á vefnum um námskeið, smiðjur, íþróttir og annað tómstundastarf. Misjafnt er fyrir hvaða aldurshópa nám- skeiðin eru, hversu lengi þau standa og hvort og þá hvaða kostnaður fylgir þátttöku. Ekki frístundakort á sumrin Verð á tómstundaúrræðum er nánast jafn fjölbreytt og þau úr- ræði sem í boði eru og getur verið kostnaðarsamt fyrir foreldra að greiða fyrir afþreyingu og gæslu fyrir börnin á sumrin. Hjá Reykjavíkurborg og í Kópavogi er ekki hægt að nota frístundakort í sumartómstundir. Sigrún Svein- björnsdóttir, hjá skóla- og frí- stundasviði, segir að hugmyndin á bak við frístundakort sé að hvetja börn til þess stunda tómstunda- iðju yfir lengri tíma og því sé sett það skilyrði að tómstund standi yfir í 10 vikur að lágmarki. Bókasöfn og Kött Grá Pjé Bókasöfnin í Reykjavík bjóða upp á ókeypis smiðjur og afþrey- ingu þar sem meðal annars er hægt að fá aðstoð við að skrifa sögu, setja upp leikrit, fræðast um mannfræði „á krakkamáli“ og fræðast um rapp og tónlist hjá Kött Grá Pjé. Í Kópavogi er hægt að fara á reiðnámskeið og taka þátt í götu- leikhúsi. Ísfirskum börnum bjóð- ast m.a. íþrótta- og leikjanám- skeið auk siglingakennslu og í Reykjanesbæ er hægt að læra á fiðlu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sumar Börn í Hrísey leika sér í blíð- unni. Gott úrval námskeiða er í boði. Fiðla, rapp og mann- fræði fyrir krakka  Mikið úrval af sumarnámskeiðum Dægradvöl Þetta er ókeypis: » Mannfræði á krakkamáli » Leikjanámskeið Hjálpræðis- hersins » Brúðubíllinn Lengri námskeið sem greiða þarf fyrir: » Fjölgreinaskólinn í tvær vik- ur með hádegismat kr. 25.000 » Kramhúsið ein vika kr. 28.800 » Taflfélag Reykjavíkur hálfur dagur í viku kr. 8.500 heill dag- ur kr. 13.500 » Siglinganámskeið 3 daga í viku í 11 vikur, 30.000 kr. » Íþrótta- og leikjanámskeið HSV á Ísafirði 1 vika 6.000 kr, 3 vikur kr. 15.000 » Útilífsnámskeið hjá skátum 1 vika 15.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.