Morgunblaðið - 04.06.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.06.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2013 - 2017 Kerruöxlar & íhlutir ALLT TIL KERRUSMÍÐA Björn Bjarnason fjallar um þáákvörðun Steingríms Ara Ara- sonar, forstjóra Sjúkratrygginga Ís- lands, (SÍ) að sækja ekki um á ný eftir að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra ákvað að auglýsa stöðuna lausa til umsóknar. Björn rifjar upp af þessu tilefni: „Fyrir 10 árum varð töluverður hvellur þegar beitt var ákvæði í lögum um að auglýsa emb- ætti lögreglustjóra á Suðurnesjum samhliða miklum breytingum sem gerðar voru á embættinu. Voru höfð uppi stór orð um að- för að þeim sem þá sat í stöðu lögreglu- stjórans. Stjórnsýslu- breytingarnar voru þó eðlileg afleiðing breytinga á starfsemi á Keflavíkurflugvelli eftir brottför varn- arliðsins.“    Björn bendir áhvernig Stein- grímur forstjóri SÍ svarar spurningu um þá ákvörðun sína að sækja ekki um á ný: „Það sem skiptir máli er að vilji ráðherra er augljós. Það liggur fyrir að hann vill skipta um for- stjóra. Ég hef kallað eftir ákveðnum svörum og verið í samskiptum við ráðuneytið og í framhaldi þess er það mín niðurstaða að ég vil hætta.“    Björn hefur án efa rétt fyrir sérþegar hann segir að Svandís vilji ekki losna við forstjórann vegna þess að hann hafi unnið vel, heldur vegna þess „að ráðherrann vill minnka svig- rúm annarra en ríkisstarfsmanna til að lækna fólk“. Forstjórinn hefur gagnrýnt heilbrigðisráðherra fyrir að banna SÍ að semja við aðra en ríkið um liðskiptaaðgerðir þrátt fyrir að fagleg og fjárhagsleg rök mæli með slíku.    Fær heilbrigðisráðherra að rekaþessa stefnu sína áfram átölu- laust? Steingrímur Ari Arason Forstjórinn og heil- brigðisráðherrann STAKSTEINAR Svandís Svavarsdóttir Veður víða um heim 3.6., kl. 18.00 Reykjavík 9 skýjað Bolungarvík 11 alskýjað Akureyri 19 skýjað Nuuk 2 alskýjað Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 24 heiðskírt Kaupmannahöfn 25 heiðskírt Stokkhólmur 27 þrumuveður Helsinki 24 heiðskírt Lúxemborg 23 heiðskírt Brussel 23 léttskýjað Dublin 18 skýjað Glasgow 18 þoka London 23 skýjað París 24 heiðskírt Amsterdam 19 þoka Hamborg 21 skýjað Berlín 23 skýjað Vín 26 heiðskírt Moskva 23 heiðskírt Algarve 20 léttskýjað Madríd 21 þrumuveður Barcelona 19 skýjað Mallorca 21 léttskýjað Róm 27 heiðskírt Aþena 27 léttskýjað Winnipeg 13 skýjað Montreal 18 léttskýjað New York 16 rigning Chicago 21 heiðskírt Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:15 23:38 ÍSAFJÖRÐUR 2:26 24:37 SIGLUFJÖRÐUR 2:06 24:23 DJÚPIVOGUR 2:34 23:19 Rannsókn stendur yfir á brotlend- ingu flugvélar í Kinnarfjöllum, sunn- an Skálavatns, á föstudagskvöld. Samkvæmt upplýsingum frá Þorkeli Ágústssyni, rannsóknarstjóra hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, var vettvangur slyssins skoðaður að- faranótt laugardags. Ekki þykir tíma- bært að segja til um tildrög óhappsins eða hvenær rannsókn muni ljúka. „Næsta skref er að koma vélinni nið- ur af fjallinu. Það er í höndum eig- anda og verður væntanlega gert á næstu dögum,“ sagði Þorkell í samtali við Morgunblaðið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan tíu á föstudags- kvöld. Tveir einstaklingar voru í flug- vélinni sem brotlenti og voru þeir fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri. Þeir reyndust ekki slasaðir. Flugvélin virðist lítið skemmd, þrátt fyrir að nef hennar hafi lent í snjónum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra er slysið kallað „al- varlegt flugatvik“. „Rannsóknarlög- reglumenn ásamt rannsóknarnefnd Samgöngustofu sinntu vettvangsrann- sókn fram á nótt og voru þeir fluttir til baka með þyrlu Landhelgisgæslunnar um hálf tvö. Aðgerðastjórn Almanna- varnanefndar Eyjafjarðar hætti svo störfum um klukkutíma síðar,“ segir þar. hdm@mbl.is Næsta skref að flytja vélina á brott  Rannsókn stendur yfir á flugslysi í Kinnarfjöllum  Engan sakaði í slysinu Ljósmynd/Landhelgisgæslan Slys Engan sakaði í flugslysi í Kinnarfjöllum á föstudagskvöld. Rannsókn á tölvustuldi úr gagnaverum á Suðurnesjum stendur enn yfir. Ólafur Helgi Kjartansson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, segir málið afar flókið. Þegar hann er spurður að því hvers vegna rannsóknin taki svo langan tíma segir hann ástæð- urnar vera þær að erfitt sé að ná tali af fólki sem tengist málinu á einn eða annan hátt. ,,Það hefur gengið illa að ná í þá sem við þurfum að taka skýrslur af,“ svarar Ólafur. Hann segist ekki geta sagt meira um málið enn sem komið er enda vilji hann ekki hafa áhrif á rannsókn þess. ,,Ég get ekki tjáð mig meira um málið fyrr en við erum búin að fara yfir allar staðreyndir þess, skoða skýrslurnar og reyna að raða þessu öllu saman.“ Lögreglan sendi nýverið fyrir- spurn til Kína vegna málsins en hvers eðlis hún er getur Ólafur ekki sagt að svo stöddu. Engin svör hafa borist við fyrirspurninni. ragnhildur@mbl.is Ólafur Helgi Kjartansson Flókin rannsókn  Illa hefur gengið að taka skýrslur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.