Morgunblaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.06.2018, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018 ✝ Filippía Guð-rún Krist- insdóttir fæddist í Hrísey 19. júní 1951. Hún lést á dvalarheimilinu Lögmannshlíð 28. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru Elín Árna- dóttir, f. 13.9. 1926, d. 1.3. 2017, og Kristinn Frí- mann Jakobsson, f. 1.11. 1921, d. 22.2. 1994. Systkini Guð- rúnar eru: Jakob, f. 1945, d. 2010, Árni, f. 1946, Steinunn, f. 1949, d. 2016, Þórdís, f. 1954, Kristinn, f. 1957, Svan- ur, f. 1961, og Örn, f. 1964. Guðrún giftist Gunnari Kristdórssyni, f. 23.1. 1950. Þau skildu 1987. Börn þeirra eru: 1) Elín Dögg, f. 22.10. 1974, dóttir hennar er Kristín Lind Arnþórsdóttir, f. 10.12. 2005, sambýlismaður Elínar er Valmar Väljaots, f. 22.4. 1967. 2) Kristdór Þór, f. 2.8. 1979, eiginkona hans er Ásgerður Halldórsdóttir, f. 23.9. 1984, börn þeirra eru Bóel Birna, f. 19.5. 2007, Karen Tara, f. 7.6. 2009, Sóley Sara, f. 25.11. 2013, og Gunnar Aron, f. 8.3. 2016. Guðrún ólst upp í Hrísey. Hún lauk fullnaðarprófi frá barnaskóla Hríseyjar árið 1964, þar á eftir stundaði hún nám á Núpi í Dýrafirði og lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum á Núpi árið 1968. Eftir það vann hún um tíma sem matreiðslukona í Hreðavatnsskála í Hrútafirði. Þaðan lá leiðin til Am- eríku á vit ævin- týranna þar sem hún var au pair í eitt ár. Eftir að hún kom heim starfaði hún meðal annars í matvörubúðinni í Grænumýri, en lauk svo sjúkraliðanámi frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri haustið 1974. Að námi loknu vann Guðrún á sjúkrahúsinu á Akureyri og síðar í kjörbúð KEA í Sunnu- hlíð, með hléum þar sem hún var heimavinnandi með ung börn sín. Guðrún fluttist í Kristnesþorp eftir að þau Gunnar skildu árið 1987. Þá starfaði hún á Kristnesspítala allt til þess tíma að hún þurfti að hætta vinnu sökum vöðva- sjúkdóms. Á þeim tíma sem hún vann þar fluttist hún aft- ur til Akureyrar og bjó í Smárahlíð frá 1997 til ársins 2005, þegar hún flutti í Mela- teig. Hinn 2. ágúst 2014 flutti hún á dvalarheimilið Lög- mannshlíð og bjó þar til ævi- loka. Útför Guðrúnar verður gerð frá Glerárkirkju í dag, 4. júní 2018, og hefst athöfnin klukk- an 10.30. Elsku mamma. Loksins ertu frjáls til að hlaupa um og njóta. Veikur líkaminn hefur verið skilinn eftir í hvíld. Þú varst alltaf með allt á hreinu og skipulagt, meira að segja undir það síðasta. Þú ákvaðst að það væri kominn tími til að kveðja og fljótlega varstu farin. Í gegnum tíðina hefur þú allt- af gert þér far um að gleðjast yfir litlu hlutunum, vera æðru- laus, þrautseig og með for- gangsröðina á hreinu. Þú settir okkur börnin þín alltaf í fyrsta sætið og hugsaðir um sjálfa þig seinna. Við ætlum að reyna að gera eins og þú sagðir; vera glöð og brosa, dvelja ekki of lengi í sorginni, hugsa um og muna all- ar góðu stundirnar og halda veislu! Elín Dögg, Kristdór og fjölskyldur. Filippía Guðrún Kristinsdóttir ✝ Kristín Hall-dóra Kristjáns- dóttir fæddist 8. janúar 1922 á Grísatungu í Borgarfirði. Hún lést á Hrafnistu Hafnarfirði 24. maí 2018. Foreldrar Krist- ínar Halldóru voru Kristján Guð- mundsson bóndi á Fáskrúðarbakka, f. 16. nóv- ember 1892, d. 1. febrúar 1961, og Veronika Narfadóttir húsfrú á Fáskrúðarbakka, f. 1. janúar 1899, d. 30. apríl 1985. Kristín Halldóra var elst 10 systkina en tvö eru enn á lífi, Gunnar, f. 4. desember 1936, og Jóhann, f. 29. apríl 1943. Önnur systkini sem eru látin: Guð- mundur, f. 5. júní 1924, d. 4. febr- úar 2015, Narfi Sigurður, f. 8. apríl 1926, d. 8. júlí 2012, Þur- íður, f. 19. maí 1929, d. 5. októ- 1944, d. 8. júlí 2017, eiginkona Sigurbjörg Kristjánsdóttir. 2) Kristján, f. 4. maí 1947, eigin- kona Kristín Brynjólfsdóttir. 3) Ásmundur, f. 21. desember 1948, eiginkona Halldóra Hermanns- dóttir. 4) Jón Ingvar, f. 25. júlí 1958, eiginkona Halldóra Grön- dal. Afkomendur Kristínar Hall- dóru eru 45. Sambýlismaður Kristínar Halldóru var Þórður Sigurðsson, f. 2. september 1920, d. 6. nóvem- ber 2006. Kristín Halldóra ólst upp á Grísatungu í Borgarfirði og Akurholti á Snæfellsnesi. Fyrir tvítugt fór hún suður til Reykja- víkur og vann fyrir sér sem saumakona. Fljótlega kynntist hún Jónasi Sigurði sem var þá nýkominn heim frá námi í Dan- mörku og stofnuðu þau saman gróðrarstöðina Sólvang í Foss- vogi. Þau ráku gróðrarstöðina til ársins 1968. Þá keyptu þau blómabúðina Dögg og störfuðu þau bæði hjónin við hana. Kristín Halldóra hélt áfram rekstrinum í nokkur ár eftir að Jónas lést. Útför Kristínar Halldóru verður frá Fossvogskirkju í dag, 4. júní 2018, og hefst klukkan 15. ber 2016, Guð- bjartur, f. 26. febrúar 1932, d. 18. mars 1992, Oddný, f. 2. feb. 1935, d. 2. apr- íl 2009, Sigurvin, f. 4. des. 1936, d. 22. júní 2007, Sigríður Jó- hanna, f. 11. desem- ber 1939, d. 2. febr- úar 1943. Árið 1942 giftist Kristín Halldóra Jónasi Sigurði Jónssyni, skrúð- garðyrkjumeistara og versl- unarmanni, f. 9. júlí 1917, d. 30. maí 1987. Foreldrar Jónasar voru Jón Jónasson bóndi, f. 11. september 1893, d. 8. nóvember 1918, og Ingveldur Jónsdóttir húsfrú, f. 3. september 1894, d. 14. nóvember 1918, frá Vestra- Miðfelli í Hvalfirði. Bæði létust úr spænsku veikinni með viku millibili. Börn Kristínar Halldóru og Jónasar eru: 1) Magnús, f. 15. júlí Elsku amma. Þú varst einstök fyrirmynd. Svo lífsglöð, dugleg og sjálf- stæð. Einstök handverkskona varstu og lagðir mikla ást og metnað í verk þín en af mikilli hógværð. Alltaf var gott að koma til þín og skynja alla þá orku og lífskraft sem geislaði af þér. Þú sást lífið í lausnum og lést ekkert stoppa þig í því sem þú ætlaðir þér. Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. Syngdu mig inn í svefninn ljúfi blær. Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær. Draumgyðja ljúfa, ljá mér vinarhönd, og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. (Jón frá Ljárskógum) Elsku amma, takk fyrir allt. Kristín Halldóra. Kristín Halldóra Kristjánsdóttir ✝ Ásgeir Gíslasonfæddist í Reykjavík 22. febr- úar 1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 12. maí 2018. Foreldrar hans voru Gísli Sigurðs- son, f. 1. apríl 1896 á Yrpuhóli í Villinga- holtshreppi, d. 24. ágúst 1978, og Katr- ín Kolbeinsdóttir, f. 18. ágúst 1897 í Hlíð í Grafningi, d. 6. maí 1982. Syst- kini hans voru Ásdís, f. 1928, d. 1931, Alexía Margrét, f. 1932, d. 2017, Kolbeinn, f. 1935, og Páll, f. 1935, d. 2011. Ásgeir kvæntist árið 1979 Arnfríði Mathiesen sem var fædd í Hafnarfirði 12. júlí 1931. Hún lést árið 1996. Foreldrar Arn- fríðar voru Svava Guðrún Mathiesen húsmóðir og Guð- mundur Sigurðsson, vélstjóri. Arnfríður átti fimm börn með fyrri eiginmanni sín- um Jóni Halldórssyni sem lést árið 1978. Ásgeir lauk barnaskólaprófi frá Austurbæjarskóla og prófi í trésmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík. Ásgeir starfaði á tré- smíðaverkstæðinu Rauðará, starfrækti eigið trésmíðaverk- stæði í félagi með öðrum smiðum, en starfaði lengst af á trésmíða- verkstæði Reykjavíkurborgar. Úför hans fer fram frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 4. júní 2018, klukkan 15. Ásgeir móðurbróðir minn hef- ur nú kvatt þennan heim eftir 87 ár. Ég man fyrst eftir Ásgeiri þegar ég var í heimsókn hjá ömmu og afa í Miðtúninu. Ásgeir kom oft í heimsókn í hádeginu, borðaði hádegismat, hlustaði á fréttir og sneri svo aftur til vinnu. Ásgeir var rólegur maður og aldr- ei man ég eftir að hann hafi hækk- að röddina af nokkru tilefni. Ás- geir byrjaði ungur að smíða, tók m.a. þátt í að byggja sumarhús við Álftavatn sumarið 1945. Þetta hús stendur enn og hefur verið notað af fjölskyldunni í yfir 70 ár. Ás- geir kom oft að Álftavatni á sumr- in og var m.a. faglegur ráðgjafi þegar foreldrar mínir byggðu sitt hús um 1970. Ásgeir gekk í Iðnskólann í Reykjavík, sem þá var við Tjörn- ina, og lauk prófi í trésmíði. Hann starfrækti verkstæði ásamt öðr- um trésmiðum, en réð sig svo á trésmíðaverkstæði Reykjavíkur- borgar, þar sem hann vann lengstan hluta starfsævinnar. Verkefni Ásgeirs voru gjarnan viðhalds- eða endurbyggingar- verkefni. Sem dæmi má nefna endurbyggingu Viðeyjarstofu og húsa sem flutt voru í Árbæjar- safn. Ásgeir starfaði einnig við byggingaeftirlit þegar verið var að reisa seinni áfanga Laxárdals- virkjunar. Ásgeir kvæntist Arnfríði Mathiesen árið 1979 og bjuggu þau lengst af í Hafnarfirði. Áttu þau mörg góð ár saman, en Arn- fríður féll frá um aldur fram árið 1996. Arnfríður var ekkja, en einu barna hennar, Sigurði, sem var á sama aldri og ég, hafði ég kynnst í gegnum öflugt félagslíf ung- menna á stöðinni í Hafnarfirði á áttunda áratugnum. Eftir að Ásgeir hætti störfum hóf hann aftur að koma austur að Álftavatni og tók virkan þátt í endurbótum á húsinu frá 1945 með bræðrum sínum Páli og Kol- beini. Voru m.a. innréttuð nútíma þægindi sem ekki var gert ráð fyrir í upphafi, pallur var endur- nýjaður, geymsla smíðuð og hlið endurnýjað. Ásgeir flutti á Hrafnistu í Hafnarfirði vorið 2008. Honum líkaði dvölin vel og tók virkan þátt í félagsstarfinu. Hann seldi harð- fisk í nokkur ár til íbúa á Hrafn- istu og reyndar líka til gesta. Á Hrafnistu byrjaði Ásgeir að mála myndir og eru mörg góð listaverk til eftir hann. Það var alltaf gam- an að heimsækja Ásgeir og hann spurði frétta af fjölskyldunni og hvernig hefði verið fyrir austan. Ásgeir var ótrúlega minnugur og þó líkaminn hafi verið farinn að gefa eftir voru hugsun og minni fullkomin fram á hinsta dag. Megi minning Ásgeirs lifa. Haukur Þór Haraldsson. Ásgeir Gíslason Með Sveinbirni Dagfinnssyni er genginn einn besti vinur pabba og fjöl- skyldunnar. Þeir gengu saman veginn til manns, traustir félagar í glöðum vinahópi. Þegar Sveinbjörn heimsótti okkur vestur í Söðulsholt varð all- ur annar bragur á hlutunum. Hann fór í fótbolta með okkur Hlyni, skutlaði sér eins og topp- markmaður, sem hann var. Spurði okkur eldri bræðurna tíðinda úr búrekstrinum eins og við stjórn- uðum honum sjálfir. Fylgdist af áhuga með þroska yngri systkin- anna. Járnaði hest einn og óstudd- ur, það hafði ég aldrei séð. Við gerðum það alltaf með látum, bundum snörvul á verstu klárana. Ég hafði alltaf kviðið járningum, þangað til Sveinbjörn kenndi okk- ur lagið. Lipur og léttur gekk hann að klárnum og talaði við hann, brá fjöl undir fót, hrossið var „sem lamb“. Þetta var eitt- hvað nýtt. Sveinbjörn Dagfinnsson ✝ SveinbjörnDagfinnsson fæddist 16. júlí 1927. Hann lést 16. maí 2018. Sveinbjörn var jarðsunginn 1. júní 2018. Seinna þegar ég komst á fullorðinsár vorum við sund- félagar, ekkert nema brosið og gleðin að hittast. Spurt tíðinda og hvatt til allra góðra verka. Þegar ég starfaði hjá Reykjavíkurborg um tíma var hann vakinn og sofinn yfir velferð mála, lagði mér oft gott til. Það var skemmti- leg tilviljun og þó ef til vill ekki, að þegar ég fékk mitt núverandi starf var fyrsti maður til að hringja í mig og óska mér til hamingju Sveinbjörn Dagfinnsson. Og ég var staddur á hlaðinu í Söðulsholti í heimsókn þar vestra. Það þótti honum gaman. Þegar Sveinbjörn kvaddi Dollý sína í apríl var sem lífsviljinn færi þverrandi. Hlýr svipur var að dofna. Samúðarkveðjur fylgja frá mömmu og systkinum mínum til fjölskyldu Sveinbjarnar. Kæri Sveinbjörn, hvíl þú í friði. Þórólfur Árnason. Látinn er góður kunningi, Sveinbjörn Dagfinnsson, fv. ráðu- neytisstjóri og náttúrunnandi við Þingvallavatn sem víðar. Við áttum oft gott spjalla um umhverfið við vatnið fagra, nátt- úru landsins og fleira. Það var skemmtilegt og fróð- legt að heyra Sveinbjörn lýsa hin- um ýmsu sérkennum í marg- brotnu og tignarlegu landslagi Íslands sem hann hafði upplifað ríkulega í ferðum sínum víða um land. Hann var jafnframt næmur að koma auga á margbreytileg lit- brigði í gróðri landsins við hinar ýmsu aðstæður, eftir tíðarfari, árstíðum og fleira. Fuglalífið var honum hugleikið við Þingvallavatn sem víðar. Hann unni mjög umhverfinu við Þingvallavatn, mannlífinu sem öðru, en þar átti hann sinn unaðs- reit í ára tugi ásamt fjölskyldunni. Það er sjónarsviptir að Svein- birni af svæðinu. Með virðingu og þökk kveð ég góðan kunningja við vatnið fagur- bláa. Megi Guð vernda Sveinbjörn og minningu hans. Við fjallavötnin fagurblá er friður, tign og ró. Í flötinn mæna fjöllin há með fannir, klappir, skóg. Þar líða álftir langt í geim með ljúfum söngva klið, og lindir ótal ljóða glatt í ljósrar næturfrið. (Hulda.) Samúðarkveðjur til fjölskyld- unnar og vina. Ómar G. Jónsson frá Nesjavöllum. Sigríður Björns- dóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, María Finnsdóttir og nú Ingibjörg Árnadóttir eru allar látnar, þessar höfðings- konur er stýrðu Hjúkrunarfélagi Íslands í fjöldamörg ár. Ég skynj- aði það fljótt þegar ég kom þar ný inn, og talsvert yngri, að það voru stórveldi í hverju herbergi. Ingi- björg var ritstjóri og hún og Sig- ríður sáu í raun alfarið um blaðið. Þær öfluðu auglýsinga og lásu prófarkir, þar var Sigríður á heimavelli en þegar kom að efnis- öflun, viðtölum, myndatöku, um- broti og prentun var það Ingi- björg. Þegar litið er til baka er ótrúlegt að tímarit hjúkrunar- fræðinga skuli hafa komið óslitið út síðan árið 1925. „Við eigum að skrifa það allar,“ sögðu brautryðj- endurnir í fyrsta tölublaðinu. Ingi- björg vitnaði oft í þessa setningu þegar henni fannst stéttin vera pennalöt. Ingibjörg fylgdist vel með og var dugleg að taka fyrir ákveðna málaflokka er snertu starfið og samfélagið allt, vel studd af sinni ritstjórn. Fjórða tölublað Hjúkr- unar, en það hét tímaritið, árið 1982 fjallar um mál sem í dag er gríðarlega mikilvægt, öldrun. Þar tekur Ingibjörg fyrir í sínu rit- stjórnarspjalli hvar við erum stödd, hvert skuli stefnt og hvað hafi verið gert. Í blaðinu er einnig grein eftir Þorbjörgu Friðriks- dóttur hjúkrunarkennara er ber heitið „Að komast af við ellina“. Þar vitnar Þorbjörg í kenningar sálfræðingsins Goldarb frá árinu 1961 sem segir að til að komast vel af við ellina þurfi góða heilsu og til að svo sé verði þrír þættir að koma til: Hafa góða fjárhagslega af- Ingibjörg Árnadóttir ✝ Ingibjörg Árna-dóttir fæddist 26. september 1935. Hún lést 6. maí 2018. Útför Ingibjargar fór fram 15. maí 2018. komu, góða menntun og örugga félagslega stöðu. Já, Ingibjörg var með puttann á púlsinum, er þetta ekki jafngilt í dag. Samstarf nor- rænna hjúkrunar- fræðinga hefur ávallt verið okkur hér á Ís- landi mikilvægt. Á ritstjórnarárum Ingi- bjargar voru ekki bara stjórnarfundir félaganna heldur stórt þing með hundruðum félagsmanna. Fimmta hvert ár kom í hlut Hjúkrunarfélags Ís- lands að skipuleggja þá viðburði sem stjórn samtakanna ákvað. Ingibjörg var oft í fararbroddi við slíka skipulagningu, og aldrei man ég eftir að leitað hafi verið út fyrir félagið. Gekk ótrúlega vel, og líka skemmtiferðirnar sem boðið var upp á. Eitt sinn fór Ingibjörg með hóp á Snæfellsnesið fór létt með að vera leiðsögumaður þar. Ingi- björg var ritstjóri tímarits hjúkr- unarfræðinga í tæp tuttugu ár, á tímum mikilla breytinga og ólgu, það var því í mörgu að snúast. Eft- ir að ritstjórastörfum lauk starfaði hún m.a sem hjúkrunarforstjóri á heilsugæslustöð í Ólafsvík. Það var aldrei lognmolla kring- um Ingibjörgu og hláturinn henn- ar var smitandi. Hún var fagur- keri fram í fingurgóma og mikið fannst mér gaman að eiga við hana gott spjall á jólafundi öld- ungadeildarinnar okkar. Ég kveð Ingibjörgu með orðum Herdísar Andrésdóttur langömmusystur minnar. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. Sendi börnum hennar og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðjur. Blessuð veri minning Ingibjargar Árnadóttur. Sigþrúður Ingimundardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.