Morgunblaðið - 04.06.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 04.06.2018, Qupperneq 21
Raðauglýsingar Ýmislegt Hvað dreymdi þig í nótt? Hringdu í gjaldfrjálst númer Draumalínunnar og opnaðu fyrir öll skilningarvit. #DRAUMURINN Draumalínan 571 4940 Hrin gdu nú na ! Hringdu núna! Félagsstarf eldri borgara Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Ganga um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðb. kl. 12.30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 535 2700. Boðinn Bingó kl. 13. Gerðuberg Kl. 8.30-16, opin handavinnustofa, kl. 9-16 útskurður leiðb. í fríi, kl. 11.15-11.45 leikfimi Helgu Ben, kl. 13-14 línudans (sumar- frí) kl. 14.30-16.30 kóræfing (sumarfrí). Gullsmári Postulíns kl. 9, ganga kl. 10, handavinna/Bridge kl. 13. Félagsvist kl. 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-14. Bænastund kl. 9.30–10. Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30 Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, ganga kl. 10, handavinnu- hornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir vel- komnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411 2790. Seltjarnarnes Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Nú ætti dagskráin vegna júní og júlí að vera komin til allra 60 ár og eldri. Kynnið ykkur það sem í boði er. Dagskráin verður fjölbreytt: Tækninámskeið, partý, sumarferð, mikil hreyfing og ýmislegt fleira. Það eru ungmenni í gegnum Ungmennaráð og Selið sem stýra starfinu í sumar. Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Helgi- stund kl. 10.10 á sléttum vikum. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upp- lýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568 2586. Smáauglýsingar Bækur BÓKBAND Bókasafnarar athugið ! Eggert Ísólfsson bókbandsmeistari tekur að sér allar gerðir hand- bókbands. Upplýsingar í síma 8992121 eða eggert@steinegg.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018 Elsku amma mín, það var ynd- islegt að fá að halda í höndina þína þeg- ar þú kvaddir þetta jarðlíf. Það er mér efst í minni hvað þú vildir alltaf vera fín alla þína ævi. Ég á margar góðar minningar um þig og Tóta afa sem dó þann 15. maí fyrir 31 ári. Ég man hversu mikill missir það var fyrir þig, því þið áttuð eftir að gera svo margt saman. En þú, elsku amma, hélst þínu lífi áfram og varst höfuð fjölskyld- unnar til dauðadags. Þú vildir alltaf taka þátt í öllu sem fjöl- skyldan gerði saman og varst þú mikill stuðningur við alla fjöl- skyldumeðlimi og fylgdist þú vel með öllu þínu fólki. Fyrsta minning mín um þig var þegar þú sast við saumavél- ina á Ysta-Skála þar sem við átt- um heima og saumaðir á okkur föt. Þú varst svo fær í því að skapa hverja flíkina á fætur annarri. Í hvert skipti sem þú komst að heimsækja okkur varstu með bjútíboxið með þér þar sem þú geymdir perubrjóst- sykur og súkkulaði sem þú gafst okkur. Þið afi voruð yndisleg saman, þegar við komum í bæ- inn vorum við oft send í bakaríið í Gnoðarvoginum eftir vínar- brauði, snúðum og normal- brauði, afi laumaði að okkur 100 krónum til þess að kaupa okkur nammi. Þið afi sinntuð húsverk- unum saman, afi ryksugaði og þú skúraðir, pylsurnar og kart- öflumúsin mölluðu í potti og Ingi frændi horfði á boltann í sjón- varpinu. Þegar ég flutti í bæinn þegar ég var 11 ára gömul þá var gott að hafa ykkur til staðar í bænum því þið voruð helsti stuðningur okkar systkina á þessum tíma og fyrir það er ég afskaplega þakklát. Það er mér einnig ofarlega í minni þegar við fórum í Borgarfjörðinn í sum- arbústað, hversu vel afi þekkti öll fjöllin sem þar eru. Saman áttum við yndislegar stundir. það skipti engu hvernig viðraði, það var alltaf jafn gaman. Við sungum gjarnan saman á kvöld- in lagið „Kvöldið er fagurt“. Það var yndislegt að vera með allri fjölskyldunni í sumarbústað á sumrin, um það á ég margar fleiri minningar sem ég gæti sett saman í heila bók. Þegar við Valdi bjuggum í Mávahlíðinni og ég var búin að eignast Jóhönnu Maríu og Vig- dísi Fríðu og amma hætti að vinna þá fórum við gjarnan sam- an í Kringluna að skoða barna- Guðrún Kristín Sigurjónsdóttir ✝ Guðrún KristínSigurjónsdóttir fæddist 9. septem- ber 1920. Hún lést 5. maí. Útför Guðrúnar fór fram 23. maí. föt, amma vildi taka þátt í öllu og fannst gaman að fara í búðir og skoða, eft- ir verslunarferðir fórum við saman og fengum okkur að borða, þetta voru gæðastundir sem mér þykir ávallt vænt um. Á brúð- kaupsdaginn minn og Valda gaf amma mér heilræði og sagði: „Guðrún nafna mín, hjónaband er ekki alltaf dans á rósum, en ég gef þér heit: farið þið ávallt sátt að sofa.“ Ég hef virt þessi orð ömmu enda búin að vera gift Valda mínum síðan 3. september 1994. Hafa þessi orð hennar gert okkur og okkar hjónaband betra. Amma kunni að meta lífið og lifði því vel, hún var alltaf vel til- höfð, glöð og hamingjusöm með sitt fólk, amma elskaði sína af- komendur og fylgdist vel með síðustu árin, þó svo að heilsan væri ekki orðin góð þá kom hún í öll boð og viðburði hjá stórfjöl- skyldunni. Amma mín, þú ert mín fyrirmynd, ég elska þig og ég sakna þín. Ég veit að afi tek- ur vel á móti þér. Takk fyrir allt. Guðrún Kristín Ívarsdóttir. Elsku Dídí mín er látin í hárri elli. Hún var elsta systir Sig- urðar mannsins mín og bjuggu þau hjón þá í fjölskylduhúsinu að Njarðargötu 27. Hún var sú fyrsta í fjölskyldunni sem hann kynnti mig fyrir. Dídí mín hafði frábæran fata- smekk sem eftir var tekið. Lengi vel saumaði hún öll sín föt sjálf. Á fagurlega mótuðum fótum sínum notaði hún skó með háum pinnahælum fram á efri ár. Þegar Vogahverfið var að byggjast fluttu þau hjónin að Gnoðarvogi 28. Síðar flutti ég í Ljósheima og urðum við þá ná- grannar. Þórarinn maður Dídíar keyrði þá vörubíl á vegum Reykjavíkurhafnar og voru ófá- ar ferðirnar sem hann fór með okkur tengdamömmu með þvott inn í þvottalaugarnar í Laugar- dal, en þá var komið þar hús með heitu og köldu vatni og eikarstömpum fyrir suðuþvott. Þá hafði hvorug okkar þvotta- hús í íbúð sinni. Þórarinn lést innan við sjötugt og var okkur öllum harmdauði. Sumarið sem Dídi varð sjötug fórum við saman til Glasgow. Í tveggja manna herbergi var þá hjónarúm svo nálægðin var meiri. Varð okkur þá gjarnan skrafdrjúgt og veltumst í enda- lausum hlátrasköllum er við minntumst m.a. saumaklúbbs- kvölda með meiru. Eftir að maðurinn minn tók við nýopnuðum barnum í Leik- húskjallaranum aðstoðuðu þær systur Dídí og Jórunn Anna hann og mig síðar. Tryggari og vandaðri starfsmenn voru vand- fundnir. Ég vil þakka Dídí minni af al- hug fyrir árin saman og óska henni góðrar ferðar heim, þang- að sem við trúum að góður guð og gengnir vinir bjóði hana vel- komna í hópinn. Aðstandendum votta ég innilega samúð. Þau geta huggað sig við hve vel þau hugsuðu um hana og aðstoðuðu hana á allan hátt allt til enda- loka. Góða ferð heim, elsku Dídí mín. Þín einlæg mágkona, Svanhildur Árný Sigurjónsdóttir (Svana). Í fyrstu viku maímánaðar er krossmessa á vori, samkvæmt gömlu tímatali. Tíðin nú er rysjótt og gróður- inn þróttminni en oft áður er ný- ir laukar teygja sig mót birtunni og drekka döggina. Í sömu viku þess mánaðar lézt í hárri elli ein ágætasta vildiskona sinnar kynslóðar sem ég hef þekkt í áratugi. Dídí kom inn í þennan heim á Bringum í Mosfellssveit, þar sem móður- foreldrar hennar bjuggu þá. Nú, tæpri öld síðar eru einungis tóft- ir eftir sem þögnin ein grúfir yf- ir, en litlu austar syngur Helgu- foss í árgljúfrinu. Í Reykjavík ól hún allan sinn aldur og byrjaði snemma að vinna við umönnun, og fann sig vel í því. Í lok kreppuáranna var ekki auðvelt fyrir stórar fjölskyldur að koma börnum sínum til mennta. Mest- an hluta starfsaldurs vann Dídí við verslunarstörf við góðan orðstír, samhliða heimilinu, sem prýddu veggina útsaumi og hekli húsmóðurinnar. Um tví- tugsaldur giftist hún Tóta sín- um. Heimilisbragurinn mótaðist af fegurð og kærleika, snyrti- mennsku, gestrisni og glaðværð. Eftir kynni mín við son þeirra, Valdimar, var ég á tímabili tíður gestur í Gnoðarvoginum. Einn fallegan vordag árið 1986 horfði ég á enska boltann sem oftar með þeim feðgum, og tjáði Tóti mér hress að vanda að nú væri komið að starfslokum og ætlunin að njóta efri áranna. En skjótt bregður sól sumri, og að þremur dögum liðnum var hann allur. Eftir að Dídí flutti á hjúkr- unarheimili hittumst við æ sjaldnar. Er ég síðan sat við fót- skör hinnar jafnlyndu og ró- lyndu konu kvaðst hún sátt við farinn veg á langri æviönn og hélt andlegri reisn til lokadags. Lýk ég þessum fáu kveðjuorðum með vísu sem afabróðir minn, Ólafur, kastaði fram fyrir löngu síðan: Alltaf breytist aldarfar ekki eru tíðir samar, nú verða gömlu göturnar gengnar aldrei framar. Gunnar Valvesson. Kveðja frá Katta- vinafélagi Íslands Það er með mikl- um söknuði sem við hjá Kattavinafélag- inu kveðjum Helgu Guðmunds- dóttur, starfsmann okkar í Katt- holti. Helga hóf störf í Kattholti Helga Guðmundsdóttir ✝ Helga Guð-mundsdóttir fæddist 2. febrúar 1964. Hún lést 13. maí 2018. Útför Helgu fór fram 25. maí 2018. síðla árs 2011 og markaði þar sannarlega sín spor. Því fyrir utan að vera mikill dýra- vinur, sem óskila- kisurnar í Kattholti nutu ómælt góðs af, var hún hæfileika- ríkur listamaður og hannaði og vann mörg verk sem fé- lagið seldi til styrkt- ar starfseminni. Allt var það unn- ið af einstakri listfengi, smekk- vísi og vandvirkni og var hún ötullega studd af manni sínum Ævari í þeirri vinnu. Eiga þau bæði þakkir skildar fyrir góðan stuðning við athvarfið í gegnum árin. Helga reyndist ekki einungis samviskusamur og duglegur starfskraftur, heldur var hún líka vinkona, sem gaman og gefandi var að vera samvistum við, hvort sem var á vinnustað eða utan. Þótt veikindi Helgu reyndust alvarlegri en talið var í upphafi bjóst enginn við að hún mundi kveðja svo fljótt og snöggt. Við þökkum Helgu frábær kynni og söknum vinar í stað. Blessuð sé minning hennar. Með þessum fáu orðum viljum við votta Ævari, Andreu, Helgu Völu og öðrum ættingjum Helgu okkar dýpstu samúð. F.h. stjórnar og starfs- manna, Halldóra Björk Ragnarsdóttir formaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.