Morgunblaðið - 04.06.2018, Side 26
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í Hlíðasmára vinnur hópur fólks
hörðum höndum að því að skapa
risastóran ævintýraheim og nota til
þess allranýjustu tækni í leikjagerð.
Gangi allt að óskum mun ævintýra-
leikurinn The Darken koma út í
kringum áramótin 2020-21 fyrir
bæði PC tölvur, PlayStation og
Xbox og verður vonandi fyrsti leik-
urinn af mörgum sem gerist í þess-
um sama heimi.
„The Darken er sögudrifinn
ævintýraleikur, og sögusviðið ekki
ósvipað því sem fólk þekkir úr t.d.
sjónvarpsþáttunum Game of
Thrones eða úr Hringadróttinssögu
Tolkiens,“ segir Friðrik Aðalsteinn
Friðriksson forritari og einn af
stofnendum Myrkurs, sem fram-
leiðir leikinn. „Spilarinn upplifir
stórbrotinn heim sem minnir helst
á kvikmynd, nema hvað hann getur
ráðið því hvernig sagan þróast.“
Tölvuleikurinn er af þeirri stærð-
argráðu að það kemur á óvart að
hjá Myrkur skuli aðeins ellefu
manns vinna í fullu starfi. Friðrik
segir að það sé aðeins vegna ný-
legra tækniframfara að hægt er að
smíða leik af þessari gerð án þess
að hafa marga tugi og jafnvel mörg
hundruð starfsmanna. „Fyrir bara
tveimur árum hefði verið óvinnandi
verk fyrir svona smáan hóp að gera
svona metnaðarfullan leik.“
Gætu skannað Almannagjá
Tæknin gerir leikjasmiðum
Myrkurs fært að stytta sér leið og
nota skanna og hreyfinema til að
búa til söguhetjur í leiknum sem
hreyfa sig á sannfærandi hátt og
líta út eins og alvöru fólk. Friðrik
og félagar geta meira að segja
skannað heilu skógana og dalina inn
í leikinn og þannig sparað sér
ómælda vinnu sem annars færi í að
hanna og teikna hvern hól og hvern
runna. Á döfinni er að skanna hluta
af Haukadalsskógi og í sumar munu
starfsmenn Myrkurs skanna lands-
lagið á völdum stöðum í Kanada og
með myndavélum og ljósum, og
tekur upp andlitshreyfingar og
svipbrigði af mikilli nákvæmni,“ út-
skýrir Friðrik. „Í júlí verðum við
búin að bæta við enn meiri búnaði
sem leyfir okkur að taka upp marga
leikara í einu og getum við þá tekið
upp heilar senur þar sem nokkrar
persónur úr leiknum eiga í sam-
skiptum eða takast á. Rödd, leik-
ræn túlkun og hver minnsta líkams-
hreyfing leikarans skilar sér á
tjaldið, eða öllu heldur á tölvuskjá-
ínn.“
Sagan getur
endað á ýmsa vegu
Spilarinn fer með hlutverk Ryn,
ungrar bardagakonu sem þjónar
konungsfjölskyldunni á svæðinu, en
þarf að taka stjórn á eigin örlögum
þegar heimalandi hennar er ógnað.
„Í leikjaheiminum flokkast The
Darken sem dökk fantasía. Höfund-
arnir hafa skapað einstakt sögusvið
og ráðast sögulok af þeim ákvörð-
unum sem spilarinn tekur,“ segir
Friðrik og lætur það fljóta með að
ekki verði hægt að lofa því að sagan
Geta stytt sér leið með skönnum
Starfsmenn Myrkurs nota háþróaða skanna til að færa hluti úr raunheimum inn í ævintýralegan
tölvuleik og geta þannig gert mjög stóran og raunverulegan heim með mun minni fyrirhöfn en ella
Morgunblaðið/Eggert
Galdrar Friðrik Aðalsteinn Friðriksson ásamt
Halldóri Snæ Kristjánssyni, framkvæmdastjóra
Myrkurs, í myndatökuveri fyrirtækisins.
í Evrópu. „Við byrjuðum á að skoða
leysigeislaskanna en það skilaði
ekki þeirri niðurstöðu sem við
vildum. Í dag nýtum við tækni sem
byggir alfarið á ljósmyndum og för-
um við þá leið að skanna inn til-
tekna hluta skógarins, s.s. nokkur
tré, nokkra steina, og undirlagið.
Með þessum gögnum getum við
smíðað þrívíddarmódel á tiltölulega
einfaldan og fljótlegan hátt,“ út-
skýrir Friðrik og bendir á að beita
megi sömu aðferð á dali og gljúfur.
„Við gætum t.d. haft Almannagjá í
leiknum með því að láta dróna
fljúga yfir svæðinu og skanna það
þannig inn.“
Sams konar tækni er notuð til að
skapa persónurnar í leiknum og er
Myrkur einn af sárafáum leikja-
framleiðendum sem fara þessa leið.
„Þau leikjafyrirtæki sem nota svip-
aða tækni fá sérhæfð stúdíó til að
skanna inn leikara, en það er kostn-
aðarsamt að greiða öðrum fyrir
þessa vinnu og smíðuðum við okkar
eigið myndver. Þar skönnum við
inn andlit, líkamsbyggingu, föt og
klæði og allskonar muni til að skapa
sannfærandi söguhetjur.“
Margir vilja vera
persóna í tölvuleik
Myrkur auglýsti nýlega eftir
fyrirsætum og leikurum og létu við-
brögðin ekki á sér standa. Er
greinilegt að marga langar að verða
að persónu í tölvuleik. „Á fyrsta
sólarhringnum bárust okkur meira
en hundrað umsóknir,“ upplýsir
Friðrik og tekur fram að við gerð
The Darken muni þurfa að skanna
inn mikinn fjölda andlita. „Hæfi-
leikaríkir leikarar geta leikið marg-
ar söguhetjur í leiknum og við bæt-
um einfaldlega ólíkum andlitum við
hverja persónu.“
Stúdió Myrkurs samanstendur af
fjölda skynjara og sérstökum bún-
ingum sem saman rekja hreyfingar
leikaranna og ná að fanga 120
ramma á sekúndu. „Sérstakur
hjálmur er festur á andlit leikarans
Smáatriði Með skönnun má gera
mjög fjölbreytt og nákvæmt um-
hverfi sem virkar sannfærandi.
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2018
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!