Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Qupperneq 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018
Frá örófi alda hefur grein afólífutré verið tákn um frið.Svo var með forn-Grikkjum
og síðar Rómverjum. Með
kristninni verður framhald á og all-
ar götur fram á okkar dag hefur
ólífuviðargreinin birst í málara- og
höggmyndalist sem friðartákn.
Kóngar og keisarar, sem vildu láta
líta á sig sem friðflytjendur tóku
sér ólífuviðargrein í hönd þegar
þeir sátu fyrir hjá listamönnum,
sem höfðu það hlutverk að gera
minningu þeirra ódauðlega.
Varla þarf þó að minna á að mis-
jafn sauður er í mörgu fé eins og
dæmin sanna fyrr og síðar. Og eitt
átakanlegasta dæmið um misnotk-
un á friðartákninu er hernaður Er-
dogans, Tyrklandsforseta, í Afrin.
Heitið vísar til borgar og héraðs
sem er hluti af sjálfsstjórnarsvæði
Kúrda í norðanverðu Sýrlandi. Inn-
rás tyrkneska hersins í Afrin hófst
20. janúar síðastliðinn, með tilheyr-
andi morðum, limlestingum, nauðg-
unum og pyntingum auk þess sem
byggingar og minnismerki, sem
ekki eru í anda hinna drottnandi
ofbeldisherja, voru jöfnuð við jörðu.
Þegar seig á seinni hluta mars-
mánaðar var svo komið að tyrk-
neski herinn og
„frjálsi sýrlenski
herinn“ höfðu
náð Afrinborg og
fjölmennustu
byggðakjörn-
unum á svæðinu
á sitt vald. Sam-
stundis hófust
grimmilegar
þjóðernishreins-
anir. Fullyrt er
að mörg hundr-
uð þúsund
manns séu nú á vergangi á þessu
svæði og hafi margir leitað til
fjalla. Kúrdum, kristnum mönnum
og gyðingum er meinað að snúa
aftur til heimila sinna en í þeirra
stað hefur svokölluðum jihadistum,
hryðjuverkamönnum af sauðahúsi
ISIS, verið fenginn samastaður á
heimilum þeirra. Þetta eru félagar í
„frjálsa sýrlenska hernum“ sem
hrakist hafa undan stjórnarher As-
sads á síðustu vikum en fá nú verk-
efni sem böðlar Erdogans í þjóð-
ernishreinsunum hans í vestan-
verðum Kúrdahéruðunum, sem
liggja að Tyrklandi.
Í lok síðasta mánaðar var ég við-
staddur vitnaleiðslur þegar stríðs-
glæpadómstóllinn í París, sem
starfað hefur í anda Bertrands
Russells allar götur frá sjöunda
áratug síðustu aldar, rannsakaði
hvort fyrir því væru óyggjandi
sannanir að tyrknesk stjórnvöld
væru sek um stórfellda stríðsglæpi
og mannréttindabrot á hendur
Kúrdum. Niðurstaðan var afger-
andi og í þessa veru. Úrskurðurinn
var kunngerður í salarkynnum
Evrópuþingsins í Brussel en í
tengslum við þann atburð átti ég
viðræður við Kúrda frá Afrin sem
lýstu örvæntingu sinni vegna þess
sem þar væri nú að gerast: „Ef
heimurinn vaknar ekki og stöðvar
ofbeldið nú þegar, þá verður það of
seint,“ sagði þetta fólk, sem fylgist
með atburðarásinni frá degi til
dags.
Það sagði jihadistana hafi myrt
eða fangelsað alla þá sem barist
höfðu undir merkjum YPG, varnar-
sveita Kúrda í norðanverðu Sýr-
landi, jafnt konur sem karla. Konur
urðu sem kunnugt er þekktar fyrir
vasklega framgöngu í vörnum
Kúrda í stríðinu
við ISIS á síð-
ustu árum. Hin-
ir nýju herrar
hefðu nú gert
þeim að afhenda
herbúninga sína
og þær síðan
látnar klæðast
með svipuðum
hætti og gerist
hjá öfgafyllstu
trúarofstækis-
mönnum í Sádi-
Arabíu og í fjallahéruðum Afganist-
ans. „Og allt þetta lætur NATÓ
viðgangast!“
Það er rétt hjá þessu örvænting-
arfulla fólki frá Afrin að Tyrkland
er í NATÓ og það er líka rétt
ályktað að þar er flest gert, eða
látið viðgangast, í góðum göngu-
takti – allra.
En hlýtur það svo að vera? Þarf
ekki að heyrast meira en ámátlegt
hvísl um að Íslendingar séu ekki
alls kostar sáttir? Þarf ekki að tala
hátt og skýrt þegar við verðum
vitni að þjóðernishreinsunum,
fjöldamorðum, pyntingum og
mannréttindabrotum, svo viðbjóðs-
legum að þau flokkast sem glæpir
gegn mannkyni?
Á virkilega að láta nægja að
gráta yfir þessu seinna þegar við
lesum um svívirðuna í sögubókum
framtíðarinnar? Þá munu þessir at-
burðir fá þunga dóma og eflaust
líka þeir sem þögðu yfir ofbeldinu
– hernaðaraðgerð sem í tyrkneska
stjórnarráðinu gengur undir vinnu-
heitinu „Ólífuviðargreinin“.
Ólífuviðargreinin
’Kóngar og keisarar,sem vildu láta líta ásig sem friðflytjendurtóku sér ólífuviðargrein í
hönd þegar þeir sátu fyrir
hjá listamönnum, sem
höfðu það hlutverk að
gera minningu þeirra
ódauðlega.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
AFP
Sjónvarpsmaðurinn og leikarinn
Felix Bergsson miðlaði í vikunni
skoðunum sínum um tónlistar-
myndband tónlistarmannsins Child-
ish Gambinu, This Is America, sem
hefur farið sem
eldur um sinu net-
heima síðan það
kom út í maí. „At-
hygli mín var vakin
á þessu mynd-
bandi og ég get bara eiginlega ekki
hætt að horfa. Segið svo að popp-
tónlist, nútímadans og pólitík eigi
ekki saman! Þetta er hreint og klárt
snilldarverk og það er eiginlega hægt
að lesa endalaust í þetta listaverk.
Dansinn - hvað þýðir hann? Með-
ferð skotvopna - hvaða þýðingu hef-
ur það? Ofbeldið - hvaða þýðingu
hefur það? Hvítan í augum svarta
mannsins - hvaða meining er þar á
ferðinni? Maðurinn á hestinum -
börnin með símana - bílarnir - kór-
inn... - hvað þýðir þetta alltsaman?!
ótrúlegt stöff,“ segir Felix á Face-
book-síðu sinni.
Veðrið hefur
ekki verið með
besta móti það
sem af er að
sumri, en staðfest-
ingu á því fékk leikkonan Saga
Garðarsdóttir úr óvæntri átt.
„Amma mín er ekki veðurat-
hugunarstöð en hún er 93 ára og
hún segir að þetta sé annað leið-
inlegasta sumar sem hún hefur lif-
að,“ birti Saga á Twitter.
„Síðasti Velferðarráðsfundurinn
hjá Reykjavíkur-
borg í ár.
Ekki mun ég
sakna þessa fólks.
Það er hvert
öðru ófríðara.
Og þessi í
skrýtnu strigaskónum þarna hinu-
megin, ég skil hann ekki,“ skrifar
Börkur Gunnarsson, varaborg-
arfulltrúi og rithöfundur, á Facebo-
ok-síðu sína.
AF NETINU
Helga Mogensen
Kristin Sigfríður Garðarsdóttir
Vagg og velta
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
SCREEN- OG RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil en þú vilt geta séð út
Láttu sólina ekki trufla þig
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is