Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.6. 2018
VETTVANGUR
Einhvern veginn held ég að það sé ekki botnlauststuð að vera kvæntur stjórnmálamanni. Þá er égekki bara að tala um allar fjarvistirnar, símtölin
á öllum tímum sólarhrings, fríin sem fokkast upp út af
einhverjum stormi í vatnsglasi og það allt, heldur meira
svona hvernig og hvort fólk í ólíkum stéttum tekur
vinnuna og menninguna sem henni fylgir með sér heim.
Maður á ekkert endilega á hættu að vera í stanslausum
tannsteinshreinsunum þótt maður sé giftur tannlækni
og ég hef heyrt að rafvirkjar séu lítið í að gera við
heima hjá sér. Ég hef samt sem áður ástæðu til að ætla
að
maður sé ekki jafnöruggur í sambúð með stjórnmála-
manni.
Og af hverju er ég að velta þessu fyrir mér? Jú, kon-
an mín var spurð að því í viðtali um síðustu helgi hvort
hún ætlaði ekki að fara í framboð. Þetta er reyndar
spurning sem hún hefur fengið skrilljón sinnum, en sem
betur fer held ég að hún geri sér ágætlega grein fyrir
því hvernig lögmálið um framboð og eftirspurn virkar í
stjórnmálum: Það er bara eftirspurn eftir fólki þangað
til það fer í framboð.
Þessi ágæta eiginkona mín hefur unnið við stjórnmál
í nokkur ár og mér finnst ég taka eftir ákveðinni breyt-
ingu á henni. Nú ætla ég ekki að alhæfa neitt en stund-
um finnst mér eins og ég sé staddur í miðjum þingloka-
samningum, það stefni allt í tóma vitleysu og einhvern
veginn eigi ég á hættu að sitja uppi með allskonar hluti
sem ég vissi ekki einu sinni að ég bæri ábyrgð á.
Sennilega er best að taka dæmi.
Einu sinni hringdi hún í mig og sagði að bíllinn væri
bilaður. Það væri ómögulegt að snúa lyklinum og það
væri alveg sama hvað hún gerði. Ég yrði bara að gjöra-
svovel að koma og sækja hana og skutla henni í vinn-
una.
Nokkrum mínútum síðar hringdi hún aftur og þá var
aðeins annar tónn í henni:
S: Ég kom bílnum í gang.
L: Hvernig?
S: Æ, bara... Það var smá vesen með lyklana.
L: Hvernig þá?
S: (Nokkuð löng þögn) Ég var með lyklana að hinum
bílnum.
L: Ha?
S: AF HVERJU ERU LYKLAKIPPURNAR
ALVEG EINS?
Þetta er nefnilega tækni stjórnmálamanna. Að snúa
vörn í sókn. Þetta var semsagt mér að kenna fyrir að
hafa ekki aðgreint lyklakippurnar betur.
Svo fengum við okkur annan bíl, rafmagnsbíl þar sem
maður þarf ekki einu sinni að snúa lykli. Þá hélt ég að
þessi vandamál væru úr sögunni.
Þegar við erum búin að eiga hann í nokkra daga kem-
ur símtal:
S: Bíllinn er eitthvað bilaður.
L: Hvernig þá?
S: Það er ekki hægt að setja í bakkgír og ekki hægt
að snúa stýrinu.
L. (Eftir nokkrar hugmyndir að lausnum) Ertu viss
um að hann sé í gangi?
S: (Löng þögn). HVERNIG Á MAÐUR AÐ VITA
ÞAÐ? ÞAÐ HEYRIST EKKERT Í ÞESSUM BÍL.
Þetta er annað ráð stjórnmálamanna. Ytri aðstæðum
var um að kenna.
Ekki misskilja mig. Stjórnmálamenn eru vænsta fólk.
Og þótt það sé áskorun að búa með konu sem er utan
við sig og með athyglisbrest á háu stigi, gerir það dag-
inn í það minnsta stundum dálítið meira spennandi. Ég
held svo bara í vonina um að verða aldrei maki stjórn-
málamanns.
Ekki mér að kenna
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Á meðan ég man
’Nú ætla ég ekki að alhæfa neitt en stundum finnst mér eins og ég séstaddur í miðjum þinglokasamningum, það stefni allt í tóma vitleysuog einhvern veginn eigi ég á hættu að sitja uppi með allskonar hluti sem égvissi ekki einu sinni að ég bæri ábyrgð á.
Póstboxin vinsæl
Æ fleiri kjósa að nálgast sendingar í
gegnum póstbox Póstsins en fjöldi
skráðra notenda hjá Póstinum sem
nota svokölluð póstbox er í fyrsta
sinn kominn yfir tuttugu þúsund.
Dópsala í líkamsrækt?
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, lagði fram frumvarp til laga
um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum. Meirihluti
velferðarnefndar Alþingis vill að kannað verði hvort unnt sé að svipta
líkamsræktarstöðvar starfsleyfi komi í ljós að sala frammistöðubætandi
efna og lyfja hafi farið fram innan veggja þeirra.
Tveir milljarðar í skilagjald
Alls voru greiddir rúmlega tveir milljarðar í
skilagjald á umbúðum drykkja í fyrra en
slíkum umbúðum, hvort sem þær eru úr
plasti, áli eða gleri, hefur fjölgað hratt síð-
ustu ár. Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri
Endurvinnslunnar, segir að aukin velmegun
og straumur ferðamanna eigi þátt í þessum
breytingum auk þess sem neysluvenjur geti
verið að breytast og fólk drekki nú frekar
úr minni einingum en þeim stærri.
Friðsæla Ísland
Ísland er enn friðsælasta ríki heims
samkvæmt Global Peace-vísitölunni
en Ísland hefur verið á toppi listans
allt frá upphafi mælinga árið 2008.
Morgunblaðið/Hari
VIKAN SEM LEIÐ
UMMÆLI VIKUNNAR
’„Mér finnst þetta alveg galinhugmynd. Þú getur allt einssagt að ef einhver sé að díla meðdóp inni á veitingastað þá eigi að
loka veitingastaðnum. Þú getur
ekki látið einn mann bera ábyrgð fyrir annan.“
Björn Leifsson, eigandi World Class, um frumvarp sem
gæti leitt til sviptingar starfsleyfis líkamsræktarstöðva.
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Veldu betri málningu
PALLAOLÍA
• Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur
• Margir fallegir litir*
* Litur á palli EJLINGE
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Hvað er í bíó? mbl.is/bio
Að nema brott líffæri
Frá og með 1. janúar 2019 er öllum sjálf-
ráða Íslendingum ætlað að við læknis-
meðferð megi nema brott líffæri eða lífræn
efni úr líkama einstaklings, þar sem hann
hefur hvorki lýst sig andvígan því, né sé
það talið brjóta í bága við vilja hans. Hins
vegar geta allir skráð sig andvíga á vef
landlæknis. Það var framsóknarþingfólkið
Silja Dögg Gunnarsdóttir og Willum Þór Þórsson sem lögðu fram frum-
varp þessa efnis sem var samþykkt á Alþingi í vikunni.