Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Qupperneq 21
kannski ekki að njóta hennar alveg þegar mað-
ur sér hana í fyrsta sinn því ég var svo mikið að
hugsa um praktíska hluti,“ segir María Thelma
og brosir.
Hvernig er að leika á móti svona stórstjörnu
eins og Mads?
„Hann mætir manni á jafningjagrundvelli og
er mjög danskur og jarðbundinn. Hann er rosa-
lega skemmtilegur, skilningsríkur og það var
mjög gott að vinna með honum. Hann er enn
með leikarahjartað og er ekki að missa sig í
hroka. Við sóttum mjög mikið í hvort annað
hvað varðar handritið og eyddum miklum tíma
í að undirbúa okkur og til að missa ekki sjónar á
því sem við vorum að gera. Á sama tíma voru
aðstæðurnar svo erfiðar að maður þurfti að
vera seigur til að komast í gegnum þetta, en
þetta var góð reynsla. Það hefði verið auðvelt
að missa sig í pirring, og þá meina ég ekki út í
hvort annað heldur vegna erfiðra aðstæðna
sem við vorum í. Okkur var alltaf kalt og það
var alltaf blautt. Alltaf rok. Maður var alltaf
með snjó í andlitinu. Þannig að þetta var rosa
töff á þennan hátt og ég held að kuldinn geti
dregið það versta fram í manni. Þetta voru ekki
lúxustökur! Á einum tímapunkti sagði Mads:
„Þetta er erfiðasta verkefni sem ég hef tekið
þátt í“. Og ég sagði: „Þetta er fyrsta verkefni
sem ég hef tekið þátt í!““ segir hún og skelli-
hlær.
„Þannig að þetta er viðmiðið mitt núna. Ég
var í útitökum í gær fyrir auglýsingaherferð og
það var alveg kalt en ekkert miðað við Arctic!
Viðmiðið er svo hátt, nú get ég hvað sem er.
Þetta var ótrúlega krefjandi og mikilvægt að
standa með sjálfum sér í gegnum allt ferlið.“
Hvað er minnisstæðast úr tökunum?
„Það var svo hvasst eitt sinn að hurðin á
bílnum fauk upp og beyglaðist öll. Við Mads,
sem sat í aftursætinu, reyndum bæði að loka en
hurðin var orðin skökk og hjarirnar gáfu sig en
við náðum loks að loka einhvern veginn,“ segir
hún.
„Svo var voru fullt af fallegum og fyndnum
augnablikum. Það var ótrúlegt hvað við gátum
fundið samleið og vorum akkeri hvort annars í
þessum aðstæðum. Ég man eftir einu ógleym-
anlegu augnabliki. Það var einn daginn algjört
logn og allt þakið í snjó. Við vorum að borða há-
degismat þar sem við sátum á risastórum snjó-
skafli. Ég var í risastórri úlpu, snjóbuxum og
stígvélum. Og Mads sat þarna með mér og allt
frábæra tökuliðið og það glitraði á snjóinn og
það var svo ótrúlega fallegt. Þetta var svona
augnablik þegar maður hugsar að maður vildi
ekki vera neins staðar annars staðar.“
Leikhúsið er hættulegra
Hvernig var það að vera á rauða dreglinum í
Cannes?
„Það var ótrúlegt að vera þarna, svo súrreal-
ískt. Ég var svo stolt af öllum þeim sem komu
að myndinni. Það sem stóð upp úr hjá mér var
að sjá allt íslenska tökuliðið þarna, á Cannes,
stærstu og flottustu listahátíð í heimi. Við Ís-
lendingar erum komnir þangað, mjög langa
leið. Við eigum svo harðgert og flott fólk í þess-
um bransa. Allir manns draumar og öll manns
markmið eiga alveg séns.“
María Thelma segir að hugsanlega geti kvik-
myndahlutverkið opnað dyr að öðrum stórum
hlutverkum. „Maður veit aldrei. Það eru
breyttir tímar hér á landi, í gamla daga var
bara hægt að fá hlutverk í leikhúsunum en
núna er svo mikil gróska í kvikmyndum og
sjónvarpsseríum. Ég er eiginlega búin að vera
meira í sjónvarpi en í leikhúsinu.“
Hvort er skemmtilegra?
„Það er hættulegra að vera í leikhúsi, maður
þarf að negla þetta í hvert skipti. Og gera það
mörg kvöld í röð. En í bíómyndum og sjónvarp-
inu er þetta nánari leikur.“
Þú endar kannski í bíómynd með Brad Pitt?
„Það er ekkert verið að ráðast á garðinn þar
sem hann er lægstur,“ segir hún og skellihlær.
„Annars er það svo fyndið, að um leið og ég
plana eitthvað langt fram í tímann er eins og að
lífið loki á það og beini mér í einhverja allt aðra
og betri átt.“
Hún segir að líklega sé næst á döfinni að fara
á fleiri kvikmyndahátíðir með Arctic. „Við viss-
um ekki að myndin ætti að fara á Cannes, við
sóttum um og svo biðum við eftir svari. Ég var í
Kambódíu þegar ég frétti það og þurfti grín-
laust að drífa mig heim. Ég var að hlusta á
beina útsendingu í símanum mínum þegar til-
kynnt var hvaða myndir kæmust inn. Ég var
þarna ógeðslega sveitt og öll út í moskítóbiti og
var að hlusta á þetta inni í einhverjum kofa. Svo
heyrði ég að þeir nefndu Arctic og það var mik-
ið fagnaðarefni.“
Í sumar hyggst María Thelma dvelja í Lond-
on um skeið að ræða við umboðsmenn sem vilja
hitta hana í kjölfarið á leik hennar í Arctic.
„Ég veit ekki hvað kemur út úr því en ég
verð þarna í nokkrar vikur. Í haust tekur svo
við undirbúningur og æfingaferli fyrir einleik-
inn.“
Að taka meira pláss
María Thelma er reynslunni ríkari eftir Arctic
og segist hafa lært heilmikið.
„Mér leið stundum eins og það væri stutt í
það að gefast upp en það skiptir svo miklu máli
að halda áfram og ekki afsaka vinnuna sína, á
einn eða annan hátt. Þrautseigjan er mikilvæg.
Það getur enginn vegið og metið vinnuna þína
nema þú sjálfur. Maður á ekki að taka minna
pláss en maður þarf; taktu bara meira pláss.
Stattu með þér. Það er nefnilega algengt hjá
ungum leikkonum að afsaka sig og bakka út í
staðinn fyrir að fagna sér og sinni vinnu því það
er enginn að fara að vinna vinnuna fyrir þig.
Þetta var svo erfitt og gott ferli að ég ætla bara
að fagna því.“
Mads Mikkelsen, María Thelma og hinn brasilíski leikstjóri kvikmyndarinnar Arctic, Joe Penna, stilla sér upp í myndatöku í Cannes í síðasta mánuði.
’Hér á Íslandi getur maðurfarið í Íslendingabók og þjóð-skrá og skoðað allt sitt ættartré.En í Asíu, þegar maður fæðist
inn í lægstu stéttirnar, ertu ekkert
skráður og það er svolítið eins og
þú sért ekki til. Það er svo súr-
realískt að hugsa til þess að hinn
helmingurinn af mér er þaðan.
Á þessari gömlu fjölskyldumynd má sjá Maríu
Thelmu í fangi föður síns, Smára Þrastar Sig-
urðssonar, og systur hennar, Apríl Hörpu, í
fangi móðurinnar, Völu Rúnar Tuankrathok.
María Thelma segir það hafa verið súrrealískt að upplifa það að fara til Cannes. Hún segist fyrst og
fremst vera stolt af öllu því frábæra fólki sem kom að kvikmyndinni Arctic. Í sumar fer hún til Lond-
on að tala við umboðsmenn sem vilja hitta hana eftir að hafa séð hana leika í Arctic.
10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21