Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Blaðsíða 25
10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
„Við erum með kór-
eskan „street food“-
stað með smá „L.A.
fusion““, segir Atli
Snær, sem rekur stað-
inn Kore.
„Þessi matur hefur
alltaf heillað. Ég starf-
aði á Agern hjá Gunn-
ari Karli Gíslasyni í
New York og á nótt-
unni eftir vakt þar
þræddum við svona
staði í Kóreuhverfinu
og þar vaknaði þessi
hugmynd,“ segir Atli
Snær.
„Þetta eru afgerandi
brögð með L.A. tvisti,
t.d. setjum við þetta í
takó.“
Kórea
með
tvisti
Grænir
og svartir
fiskbitar
„Við erum með fisk og
franskar með nýrri nálgun,
undir japönskum áhrifum,
borinn fram í netakúlum,“
segir Hörður Jónasson, einn
eiganda Fusion Fish &
Chips.
„Einn vinsælasti rétturinn
heitir Fish & Chips tríó, en
þá fær maður mismunandi
deig utan um fiskinn. Einn
bitinn er grænn, litaður
með wasabi og annar er
svartur litaður með smokk-
fiskbleki.“
„Hugmyndin var að vera
með freyðivínsbar og
sjávarrétti. Við erum að-
allega með kalda sjávarrétti
sem við setjum saman á
platta,“ segir Dagbjört Haf-
liðadóttir, einn eigenda Lax.
„Við erum með freyði-
vínið á krana og viljum
koma með smá lúxus inn í
daglegt líf Íslendinga. Þetta
hefur verið draumur minn í
mörg ár þannig að ég hætti
í vinnunni sem lögfræðingur
í banka og opnaði þennan
stað,“ segir hún.
„Sjávarréttaplattinn er
langvinsælastur.“
Fiskur og
freyðivín
„Hugmyndin er að
vera með ljúffeng
vín, annars vegar frá
Búrgúndarhéraði í
Frakklandi og hins
vegar náttúruvínin,
sem eru ýmist frá
Frakklandi eða Ítal-
íu,“ segir Arnar
Bjarnason, sem
stendur vaktina hjá
Micro Roast Vínbar.
Hann segir það vera
kost að geta keypt
sér glas af eðalvíni
en ekki er nauðsyn-
legt að kaupa heila
flösku. Með víninu er
hægt að narta í osta
frá Búrinu en hægt
er að kaupa osta- og
salamibakka.
„Við seljum hér
líka íslenska bjóra á
dælu, eingöngu ís-
lenskan kraftbjór frá
íslenskum brugg-
urum. Svo seljum
við gott kaffi og
brauð frá Brauð og
co.,“ segir Arnar.
Eðalvín
í glösum
Humar-
lokan
slær í gegn
Rabbar Barinn heitir staður
sem var opnaður fyrst á
Hlemmi en er nú einnig kom-
inn á Granda. Starfsmaðurinn
Ólafur Kári Ragnarsson segir
þau elska mathallir og eru
þau því afar ánægð að hafa
opnað á Mathöll Granda.
„Við bjóðum upp á súpur
og samlokur en uppáhalds-
rétturinn er humar- og
beikonlokan. Hún selst eins
og heitar lummur. Við bjóð-
um líka upp á grænmeti í
lausasölu sem selst mjög vel
enda allt íslenskt beint frá
bónda,“ segir hann.
500 g lax, skorinn í þunna 1 cm teninga
2 saxaðir rauðir chilli
2 smátt saxaðir skallottulaukar
2 msk. repjuolía
1 saxað búnt af kóríander
4 límónur, börkur og safinn
1 mangó, skorinn í litla bita
salt og pipar
Hrærið öllu saman og látið fiskinn
„eldast“ í límónusafanum í a.m.k.
30 mínútur áður en borið er fram.
Laxa-ceviche
Humar- og
beikonloka
1 súrdeigsbolla frá Brauð og co
lúka klettasalat
3 sneiðar tómatar
2-3 sneiðar steikt beikon
nokkrir góðir bitar steiktur
humar
basilmajónes
Smyrjið hvorn helming með
basilmajónesi. Setjið hráefnin
ofan á og grillið í borðgrilli.