Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Side 29
tala flestir reiprennandi ensku. Þeir útskýrðu fyrir okkur eftir stutt spjall að við ættum eftir að skemmta okkur vel en að eyjan væri líklega ekki besti staðurinn til að upplifa hefðbundna menningu Filippseyja. Það er líklega rétt enda er mikill ferðamannabragur yfir öllu, en stundum er ágætt að njóta þess, eins og félagi minn komst að orði, „að hafa það næs á skýlunni“. Okkur þótti til að mynda ekki leiðinlegt að stökkva af klettum í sjóinn eða heilsa upp á gullfiskana í hjálmaköfun. Úrvalið af afþreyingu að degi til er nánast endalaust, hvort sem fólk sækist eftir afslöppun eða adrenal- íni. Á kvöldin sátum við svo á strönd- inni og nutum kvöldmatar í kringum elddansara, villiketti og tónlistar- menn sem voru misjafnlega sjálf- umglaðir. Filippseyskur matur get- ur verið æðislega góður, en það getur verið gott að vanda valið á veitingastöðum. Ef farið er út fyrir strandlengjuna má líka finna fram- andi menningarkima á borð við al- vöru hanaat sem við ákváðum að sleppa af ýmsum ástæðum. Ferðinni lauk á hápunkti þar sem við kófsveittir Íslendingar fórum í fínu fötin og mættum í fallega (en óloftræsta) kirkju til að horfa á vini okkar ganga í það heilaga. Eftir fal- lega athöfn að kaþólskum sið var brúðhjónunum fylgt út á strönd þar sem var boðið upp á kvöldmat og ógleymanleg veisluhöld langt fram á nótt. Það var erfitt að kveðja sólina og fara heim í slabbið, en nú veit maður hvar hún felur sig á veturna. Vendinum kastað til að ákvarða næstu brúði. Auðþekkjanlegur fararskjóturinn var merktur Fróninu. Elddansarar eru algeng sjón á Boracay. Neistarnir fljúga, í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Hvítbúin hjónin klædd í stíl við ströndina. 10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Stóll 38.000 Stóll 38.000 Borð 27.000 Borð 27.000 Sessa 4.500 SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 17:00 í Hörpu Forseti Filippseyja, Robert Du- terte, tilkynnti í apríl að Bo- racay yrði lokuð ferðamönnum í sex mánuði til að sporna gegn frekari umhverfisskaða. Du- terte gagnrýndi íbúa eyjunnar fyrir óðfýsi í uppbyggingu ferða- mennskunnar án tillits til inn- viða á borð við vatns- og skólp- hreinsistöðvar, en til dæmis höfðu einhverjir tekið upp á því að sturta skólpinu beint í sjóinn gegn regluverkinu. Umhverf- isráðuneyti hafði óskað eftir lokun til eins árs en ákvörðun var tekin um helming þess tíma. Þúsundir íbúa Boracay vinna við ferðamennsku og tengdar greinar og fannst mörgum gengið allt of langt. Aðrar radd- ir, flestar utan eyjunnar, lýsa yfir fögnuði yfir því að loksins verði aðhafst eitthvað í umhverfis- málum á eyjunni. Lokunin átti sér stað 26. apríl þegar hundruð vopnbúinna her- og lögreglumanna lentu á eyj- unni, í sýningarskyni frekar en af nauðsyn. Hermenn troða baðströnd við ferðamannalokun Boracay. AFP Lokað í paradís ÁGANGUR FERÐAÞJÓNUSTUNNAR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.