Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Page 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.06.2018, Page 35
10.6. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 BÓKSALA 30. MAÍ-5. JÚNÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson 2 StormfuglarEinar Kárason 3 Ævintýraeyjan TenerifeSnæfríður Ingadóttir 4 111Spessi 5 Independent PeopleHalldór Laxness 6 Tólf lífsreglurJordan Peterson 7 261 dagurKristborg Bóel 8 Marrið í stiganumEva Björg Ægisdóttir 9 KapítólaEmma D.E.N. Southworth 10 Lífsnautnin frjóaAnne B. Ragde 1 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson 2 Handbók fyrir ofurhetjur Annar hluti – rauða gríman Elias/Agnes Vahlund 3 Risasyrpa – sniðugar uppfinningar Walt Disney 4 Ísland á HMGunnar Helgason 5 VillinornLene Kaaberbøl 6 Þegar ég verð stór ætla ég að spila með íslenska landsliðinu Gemma Cary 7 Alein úti í snjónumHolly Webb 8 Hvolpasveitin – litabók 9 Stóra bókin um Hvolpasveitina Mary Tillworth 10 Herramenn – pakki 2 Allar bækur Barnabækur Ég hef verið að glugga í nokkrar bækur undanfarið. Ein þeirra er bókin skemmtilega eftir Kristínu Aðalsteins- dóttur, Inn- bær. Húsin og fólkið, en hún er full af myndum, fróðleik og sögum um gömlu húsin og fólkið í innbænum á Ak- ureyri. Önnur heit- ir Turning to one another, eftir Marg- aret J. Wheatley. Hún fjallar um hvernig einlægar samræður og það að tala um sín hjartans mál gefur okkur hugrekki til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og þar með heiminn. Loks langar mig að nefna áhugaverða bók sem ég er að lesa þessa dagana, Resili- ency. What we have learned, eftir Bonnie Benard. Hún fjallar um hve mikilvægt það er börnum og unglingum að fá stuðning við að þróa með sér seiglu og dugandi út- hald til að geta leyst ýmis verkefni í lífinu. Jákvæðar fyrirmyndir skipta þar miklu máli. ÉG ER AÐ LESA Kristín S. Bjarnadóttir Kristín er hjúkrunarfræðingur í Heimahlynningu á Akureyri. Fáir hafa kafað eins djúpt ímannssálina eða verið jafnóvægnir í greiningu sinni á henni og Fjodor Dostojevskí, segir Gunnar Þorri Pétursson, sem þýtt hefur Hina smánuðu og svívirtu. Sagan kom fyrst út í Rússlandi árið 1861 en birtist nýlega á íslensku. „Við erum öll smánuð og svívirt á lífsleiðinni, ekki einu sinni Frels- arinn komst hjá því, en þegar við er- um smánuð og svívirt kemur okkar innri maður í ljós, sem og for- vitnilegar tilfinningar á borð við gremju, kvalarlosta og sært stolt. Ég held að enginn höfundur hafi ver- ið jafn góður að lýsa særðu stolti og Dostojevskí,“ segir þýðandinn. Mikil áskorun Gunnar Þorri nám rússnesku og bókmenntafræði en Hinir smánuðu og svívirtu er fyrsta skáldsagan sem hann íslenskar. Ingibjörg heitin Haraldsdóttir hóf þýðingu sögunnar en varð snemma að hverfa frá verkinu vegna veik- inda. „Ingibjörg fól mér að taka við keflinu og það þótti mér mikill heiður,“ segir Gunnar Þorri. Hann vann þrjú ár að þýðingunni. „Það var ákveðin kúnst að vera trúr hennar þýðingarstíl en um leið ryðja Dostojevskí-þýðingum nýja braut. Stundum hefur verið talað um að hann sé margradda höfundur, ég reyni að vera trúr þeirri marg- röddun en raddsetja um leið fyrir tvo þýðendur.“ Gunnar Þorri segir verkefnið hafa verið mikla áskorun en gríðarlega skemmtilegt um leið. Að læra rúss- nesku sé að nokkru leyti eins og ganga í barndóm að nýju: „Maður lærir nýtt letur, lærir því að skrifa upp á nýtt og ég handskrifaði til dæmis bróðurpart fyrsta uppkasts- ins. Í næstu umferð pikkaði ég text- ann á ritvél sem faðir minn gaf mér og það var ekki fyrr en í lokaáfang- anum sem ég sló textann inn á tölvu. Þetta var mín leið til að fara frá 19. öldinni yfir í þá 20. og svo inn í 21. öldina.“ Bókin er skrifuð á tímamótum í lífi rithöfundarins. „Hann skýst ungur upp á stjörnuhimin rússneskra bók- mennta með Fátæku fólki, sögu sem er lítið þekkt í dag, en höndlaði ekki frægðina, lenti í miklum vandræðum og leiddist í neðanjarðarhópa sem lögðu á ráðin um byltingu. Þetta var 1848, þegar uppreisnaralda skók Evrópu, og fyrir þátttöku í leyni- legum hring var Dostojevskí fang- elsaður og sendur til Síberíu. Þar var hann í mörg ár og vegna þess að hann var fangi missti Dostojevskí öll sín borgaralegu réttindi, þar á meðal réttindi til að gefa út. Hann náði því ákveðnum botni en fékk um leið al- gjörlega nýja sýn á sjálfan sig, þjóð sína og skáldskapinn við það að sam- neyta glæpamönnum og alþýðu manna í Síberíu. Þessi saga er skrif- uð þegar hann spyrnir sér frá botn- inum, snýr aftur til Pétursborgar og hyggst reisa ritferil sinn úr ösku- stónni.“ Gunnar Þorri segir það auka enn á áhrifin að augljósir ævisögulegir drættir séu í sögunni. Aðalsöguhetj- an er ungur rithöfundur og minnir lífshlaup hans mjög á það sem höf- undurinn hafði reynt á eigin skinni. Óhaminn og villtur „Um þessar mundir hillir undir gull- öldina í rússneskri skáldsagnaritun. Lev Tolstoj er nýkominn fram á sjónarsviðið þegar Dostojevskí skrifar Hina smánuðu og svívirtu, Feður og synir eftir Ívan Túrgenjev fylgir fast á hæla hennar og á næstu árum skrifar Dostojevskí verkin sem tryggðu honum sæti við háborð heimsbókmenntanna: Glæp og refs- ingu, Fávitann, Djöflana og síðar Karamazov-bræðurna. Hinir smánuðu og svívirtu er eins og upptakturinn að þessum miklu verkum; þetta er fyrsta langa skáld- saga Dostojevskís og eitt af því sem gerir hana svo skemmtilega er hve óhaminn hann er og villtur; segja má að þarna fylgist maður með Dosto- jevskí verða að Dostojevskí!“ Gunnar Þorri segir að lokum, að ekkert jafnist á við rússnesku 19. aldar skáldsöguna. „Sögusviðið er stórt, persónugalleríið margbrotið, dramatíkin mikil og samtölin djúp. Hlutverk höfundarins er í senn að skemmta og varpa fram stórum, til- vistarlegum spurningum. Það er ekki síst þess vegna sem Dostojevskí á brýnt erindi við okkur enn í dag.“ Óhaminn og villtur Skáldsaga Fjodors Dostojevskís, Hinir smánuðu og svívirtu, er komin út í þýðingu Gunnars Þorra Péturssonar, sem segir tilvistarlegar og heimspeki- legar spurningar höfundar ekki síður eiga erindi við fólk í dag en á 19. öld. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Gunnar Þorri Pétursson: Stórar, tilvistarlegar spurningar Fjodors Dostojevskís eiga brýnt erindi við okkur enn í dag Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Alvöru bónstöð þar sem bíllinn er þrifinn að innan sem utan, allt eftir þínum þörfum. Frábær þjónusta – vönduð vinnubrögð. Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is Bónstöð opin virka daga frá 8-19, Alþrif verð frá 14.500,- (lítill fólksbíll) Bónstöð Pantið tíma í síma577 4700

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.