Morgunblaðið - 16.06.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 16.06.2018, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 Moskva „Það fer 2:0 fyrir Ís- land en ég læt ekki uppi hverjir skora. Þetta verður svipað og í Frakklandi; Ís- land fer í átta liða úrslitin en tapar þar fyrir Rússum.“ Hvernig fer leikur Íslands og Argentínu í Moskvu í dag? Rúnar Gunnarsson Reykjavík „Ég vona að við tökum þetta en ég held samt að þetta verði jafntefli. Ég segi að leikurinn fari 1-1 og Gylfi Þór Sigurðsson verður með markið.“ Skúli Guðmundsson Moskva „Ég spái því að leik- urinn fari 2:1 fyrir Ísland og Gylfi Þór og Jón Daði geri mörkin. Ég er ekki komin til Moskvu til að sjá landsliðið tapa!“ Kolbrún Þrá Þórarinsdóttir Reykjavík „Við vinnum. Þetta verður 3-0 fyrir Ísland. Gylfi skorar fyrsta markið, svo Birkir Már og Raggi Sig. með skalla, ekki spurning.“ Ómar Þór Heiðarsson, 11 ára Moskva „Strákarnir hafa gefið mér fulla ástæðu til þess að vera bjartsýnn. Ég held að leikurinn fari 1:1 og spái því að Ragnar Sigurðsson skori en Higuain fyrir Argentínu.“ Einar Örn Hallgrímsson Reykjavík „Ég held að Ís- land vinni. Við hittum af- greiðslukonu sem sagði okk- ur að frændi hennar væri númer 7. Við munum hvetja hann og liðið áfram.“ Caryn Hanan frá Seattle Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Tólfan mætir með læti eins og allt- af. Við verðum þarna upp undir þrjátíu úr harðasta kjarna Tólf- unnar sem sitjum eftir heima og höldum uppi stemningunni,“ segir Ingþór J. Ey- þórsson, einn liðsmanna Tólf- unnar, stuðnings- mannasveitar ís- lenska lands- liðsins í knatt- spyrnu. Ingþór og fé- lagar hans fá það hlutverk að keyra upp stemninguna í Hljómskálagarðinum í dag. Þar verður leikur Íslands gegn Argentínu á HM sýndur á risaskjá og búast má við því að þús- undir stuðningsmanna mæti á stað- inn. Þegar Morgunblaðið ræddi við Ingþór í gærdag var hann einmitt staddur í Hljómskálagarðinum að velja réttu staðina fyrir stuðnings- sveitina. Hann sagði að skjárinn væri hátt uppi og því ættu allir að sjá vel á hann. „Við í Tólfunni mæt- um um klukkan ellefu þegar svæðið verður opnað. Þarna verða tromm- ur og andlitsmálning, alveg eins og á leikdegi í Laugardalnum. Fólk ætti að mæta tímanlega og finna sér góð sæti. Þarna verður veit- ingasala. Ég lofa góðri stemningu og vona að almenningur taki þátt í því með okkur. Þótt það sé spáð smásúld þá viljum við blússandi stemningu og alvörulæti.“ Breskt kvikmyndatökulið fylgir Tólfunni eftir en það er að gera heimildarmynd um íslenska lands- liðið og stuðningsmenn þess. Ingþór viðurkennir fúslega að hann myndi gjarnan vilja vera á vellinum í Moskvu í dag en er ákveðinn í að gera það besta úr að- stæðum heima. „Ég ákvað að taka þetta heima. Ég fer á Þjóðadeildina í staðinn. Það verður einhver að halda uppi heiðrinum hér.“ Hvernig fer leikurinn? „Ég held að við tökum þetta, 2-1. Gylfi setur eitt mark og Raggi Sig. skorar sigurmarkið eftir fyrirgjöf Arons. Aguero potar inn einu sára- bótarmarki.“ Morgunblaðið/Eggert Áfram Ísland! Stuðningsmenn íslenska landsliðsins gengu um götur Moskvu í gær vel merktir og veifandi fána. „Viljum alvörulæti“  Þrjátíu liðsmenn Tólfunnar keyra upp stemninguna í Hljómskálagarðinum í dag  Fólk mæti snemma á staðinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Hljómskálagarðurinn Undirbúningur stóð yfir í gær fyrir leikinn í dag.Ingþór J. Eyþórsson Risa Risaleikur á risaskjám » Leikur Íslands og Argentínu verður víða sýndur á risaskjám undir berum himni. » Auk Hljómskálagarðsins verður leikurinn sýndur á Ing- ólfstorgi, á Rútstúni í Kópa- vogi, Garðatorgi í Garðabæ og Thorsplani í Hafnarfirði. » Þá verður hægt að horfa á leikinn á matarmarkaðinum Boxinu í Skeifunni og Melavell- inum við Sundlaug Vestur- bæjar. Eins í Listagilinu á Akur- eyri og á Stakkagerðistúni í Vestmannaeyjum. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Argentínumaðurinn Robert Hugo Blanco hittir Heimi Hallgrímsson reglulega í tannlæknastólnum. Ro- bert, sem hefur verið búsettur á Ís- landi síðan 1977, segist vara sig á því hvað hann segi við Heimi um leik Íslands og Argentínu sem fer fram í dag. „Ég verð að passa mig hvað ég segi í tannlæknastólnum, Heimir er með bor og svona,“ segir Robert hlæjandi. Það þýðir þó ekk- ert að segja Robert með hvaða liði hann skuli halda. „Ég veit hvað ég vil; jafntefli Íslands og Argentínu.“ Aðspurður hvort hann spái í raun jafntefli liðanna tveggja segir Ro- bert: „Maður óskar þess og trúir bara á kraftaverk.“ Þrátt fyrir að Robert vilji sjá jafntefli í leiknum er hann mikill aðdáandi íslenska landsliðsins: „Hafandi í huga frá hve litlu landi þeir koma og hve langt þeir hafa samt náð í þessari vinsælustu íþrótt heims. Í mínum huga eru landsliðsmennirnir nú þegar hetjur og það sem kemur til viðbótar er hreinn bónus.“ Robert er kvæntur Sólrúnu Berg- þórsdóttur en þau hafa verið gift í 39 ár. Hjónin eru búsett í Vest- mannaeyjum, rétt eins og Heimir Hallgrímsson, en Hugo kennir spænsku og ensku í Framhaldsskól- anum í Vestmannaeyjum og hefur bæði kennt syni Heimis og konunni hans. Sólrún smellti mynd af Heimi og Hugo þegar þau hjónin fóru í skoðun til Heimis í janúar. „Ég hafði leikinn í huga þegar ég ákvað að taka þessa mynd, það var ekki annað hægt en að taka mynd af þeim saman. Það er svo einstakt að á þessari litlu eyju séu staddir bæði landsliðsþjálfari Íslands og Argent- ínumaður,“ segir Sólrún. ragnhildur@mbl.is Ljósmynd/Sólrún Bergþórsdóttir Félagar Sólrún gat ekki annað en smellt mynd af þeim Hugo og Heimi. Heimir hefur ekki náð að fá Hugo til að halda alfarið með Íslandi. Vill sjá jafntefli Ís- lands og Argentínu  Heimir tannlæknir Argentínumanns Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Stóll 38.000 Stóll 38.000 Borð 27.000 Borð 27.000 Sessa 4.500

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.