Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
VIÐTAL
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra
Íslands í Rússlandi, segir að sá
gífurlegi áhugi sem heimspressan
sýni íslenska landsliðinu, íslenskum
stuðningsmönnum í Rússlandi og
heima á Íslandi og Íslandi sé „ómet-
anleg og jákvæð landkynning“.
„Þetta er ótrú-
lega spennandi
og nú er þetta að
bresta á. Það rík-
ir mikil til-
hlökkun, stolt og
gleði hjá okkur
þessa dagana.
Áhugi Rússa á
liðinu okkar er
geysilega mikill,
en ekki síður á ís-
lenska stuðnings-
mannaliðinu. Ég hef sagt að þjóðhá-
tíðin okkar Íslendinga sé komin til
Moskvu. Það er mikilvægt að allir
Íslendingar sem koma til þess að
styðja strákana okkar komi vel fram
og fylgi reglum, því Rússar munu
líta á hvern og einn Íslending hér
sem sendiherra Íslands,“ sagði
Berglind í samtali við Morgunblaðið
í gær. Hún segir að í raun sé dag-
skráin sem tengist þátttöku Íslend-
inga á HM þegar hafin. „Í dag (í gær
innskot blm.) er Ævar Benediktsson
rithöfundur (Ævar vísindamaður) í
tvígang að lesa upp og spjalla við
áheyrendur í bókasafni erlendra
bókmennta. Svo eru stórtónleikar í
kvöld, þar sem Emilíana Torrini og
The Colorists stíga á svið fyrir tón-
listarblaðamenn, -gagnrýnendur og
aðra stóra aðila í tónlistarlífinu hér í
Rússlandi,“ sagði Berglind.
Berglind segir stemninguna í
Moskvu vera frábæra. „Borgin er
komin í knattspyrnugír. Ég var við-
stödd opnunarleikinn í gær og svo
fékk ég mér göngutúr um miðbæ
Moskvu í gærkvöld og var þá aug-
ljóst að knattspyrnuáhugamenn frá
öllum heimshornum eru mættir til
Moskvu,“ sagði Berglind.
Hún segist ekki hafa hitt marga
Íslendinga enn sem komið er, því
annirnar í sendiráðinu séu mjög
miklar vegna ýmiss konar undirbún-
ings. Mikið sé hringt í sendiráðið,
ekki síst eftir að tekist hafi að út-
vega sérstakan „fan zone“ fyrir ís-
lensku stuðningsmennina.
„Það er einn stór „fan zone“ fyrir
alla, en við fórum fram á það við
borgaryfirvöld að fá sér „fan zone“ á
góðum stað, og við því var orðið.
Þetta er afskaplega ánægjulegt fyr-
ir okkur. Um er að ræða glænýjan
og glæsilegan garð sem heitir Za-
ryadye, á móti Kreml, þar sem áður
var stærsta hótel í heimi,“ segir
sendiherrann, afar ánægð með þá
niðurstöðu að Íslandi hafi verið út-
hlutað þessum garði, þar sem
upphitunardagskrá fer fram í dag
fyrir leik og hefst kl. 11 að Moskvu-
tíma.
Tólfan verður í öndvegi
„Okkar aðstaða í garðinum er þar
sem eru upphækkuð sæti, svona eins
og í leikhúsi og þarna munu bræð-
urnir Friðrik Dór og Jónsi troða upp
í fyrramálið, ásamt Erpi Eyvind-
arsyni. Tólfan verður þarna í önd-
vegi og stýrir húinu. Auk þess eru
alls konar sýningar og veitingahús í
garðinum og því hægt að skoða
margt, og ég held að þessi uppá-
koma okkar í fyrramálið verði hval-
reki fyrir íslensku stuðningsmenn-
ina, ekki síst þá sem stoppa stutt í
Mosvku og fara aftur heim til Ís-
lands að morgni 17. júní, daginn
eftir leikinn gegn Argentínu,“ sagði
Berglind.
Aðspurð nánar út í áhuga heims-
pressunnar á strákunum okkar og
íslenskum stuðningsmönnum, sagði
Berglind: „Ég nefni sem dæmi að
okkur var tilkynnt af forsvars-
mönnum garðsins að margir af
stærstu fjölmiðlum heims ætli að
koma í garðinn í fyrramálið. Sér-
staklega hafi fjölmiðlar spurt um
hvenær húið og klappið verði!“ seg-
ir Berglind og hlær við.
Berglind segir að meðal fjölmiðla
sem boðað hafa komu sína í garðinn
Zaryadye á Íslandsdagskrána séu
fjölmiðlar eins og BBC World Ser-
vice, Guardian, New York Times,
Financial Times og Reuters. Þá
hafi áhugi rússneskra miðla verið
mikill.
Fram kom í gær að Guðni Jó-
hannesson, forseti Íslands, fer ekki
til Rússlands, ekki frekar en ráð-
herrar ríkisstjórnar Íslands, en
Eliza Reid, forsetfrú muni verða á
leiknum á morgun. Berglind var
spurð hvort forsetafrúin myndi
gegna einhverju opinberu hlut-
verki: „Mér skilst að forsetafrúin sé
hér í einkaheimsókn ásamt sonum
þeirra hjóna,“ sagði Berglind.
Heimspressan verður í garðinum
Gríðarlegur áhugi helstu fjölmiðla heims á íslenska landsliðinu og íslensku stuðningsmönnunum
Sendiherra Íslands í Moskvu segir um ómetanlega landkynningu að ræða fyrir okkur Íslendinga
Morgunblaðið/Eggert
Rauða torgið Berglind segir að Moskva sé komin í knattspyrnugír og fólk frá öllum heimshornum sé mætt til leiks.
Berglind
Ásgeirsdóttir
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is • Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Einnig getum við úvegað
startara og alternatora
í allskonar smávélar
frá Ameríku
Rafstilling ehf er sérhæft verkstæði
í alternator og startaraviðgerðum.
Við höfum áratuga reynslu í
viðgerðum fyrir einstaklinga
og fyrirtæki.
Verkstæðið er með öll nauðsynleg
tæki og tól til þessara verka.
Allir viðgerðir hlutir eru prófaðir í
prufubekk til að tryggja að allt sé
í lagi. Þeim er einnig skilað
hreinum og máluðum.