Morgunblaðið - 16.06.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 16.06.2018, Síða 11
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Það er ekki á hverjum degi sem ís- lensk lið leika í Moskvu og aðeins einu sinni hefur Ísland skorað í landsleik karla í knattspyrnu í borg- inni. Það gerði Þórsarinn og Akur- eyringurinn Halldór Áskelsson fyrir 29 árum er leikið var gegn firna- sterku liði Sovétríkjanna á Lenín- leikvanginum 31. maí 1989. Markið kom eftir langt innkast og Halldór er ekki frá því að sú gamla uppskrift gæti gagnast Íslendingum vel í leiknum gegn Argentínu í Moskvu í dag. „Löngu innköstin hafa oft reynst Íslendingum vel og því ekki í dag?“ segir Halldór. „Markið í Moskvu kom eftir langt innkast frá Óla Þórðar, sem grýtti boltanum inn fyrir vítateigshornið. Atli Eðvalds fleytti boltanum aftur fyrir sig á fjærstöngina þar sem ég og Siggi Jóns vorum. Sem betur fer náði Siggi ekki boltanum, hann féll vel fyrir mig og ég smurði hann upp í þaknetið með vinstri. Það dugði í óvænt jafntefli.“ Eitt besta lið í heimi Leikurinn var liður í undankeppn- inni fyrir heimsmeistaramótið 1990 og höfðu Rússar ekki fengið á sig mark í 15 HM-leikjum á heimavelli frá því að Grikkir skoruðu gegn þeim 1965. Frá þeim tíma höfðu Sovétmenn leikið 15 leiki og skorað í þeim 40 mörk. Úrslitin urðu 1:1 og stigið sem Ísland tók var það fyrsta sem Rússar misstu síðan í undan- keppninni fyrir HM 1958 í Svíþjóð er þeir fyrst tóku þátt í keppninni. Um 60 þúsund áhorfendur voru á vellinum, sumir segja 80 þúsund, og komu úrslitin mjög á óvart. Rússar voru silfurlið frá Evrópumótinu 1988 og meðal leikmanna þeirra má nefna Kuznetsov, Zavarov, Belanov og Dasayev í markinu. Liðið var á þessum tíma talið eitt þriggja bestu liða í heimi og það átti að vera létt verk að sigra litla liðið frá Íslandi. En í fótbolta fer ekki allt eins og sérfræðingarnir reikna með! Allt annað sett á stopp Halldór segist bíða spenntur eftir leiknum við Argentínu í dag og um miðjan dag verði allt annað sett á stopp. „Við Þórsarar eigum góðan fulltrúa í íslenska liðinu og munum sérstaklega fylgjast með Aroni fyrirliða og vonum að hann spili. Birkir var oft með pabba sínum sem lítill strákur í klefanum hjá okkur Þórsurum, en endaði svo í KA. Við eigum því okkar menn þarna, en fyrst og fremt er maður ótrúlega stoltur af öllum strákunum og að þeir skuli vera á þessum stað. Jafn- tefli í leiknum yrði sigur fyrir okkur, en væntingarnar eru stundum óraunhæfar því við erum orðin svo góðu vön,“ segir Halldór. Erum með stórt hjarta Eins og sjá má á meðfylgjandi úr- klippu úr Morgunblaðinu 1989 var Halldór ánægður með markið í Moskvu. Atli Eðvaldsson fyrirliði talaði meðal annars um að Ísland ætti nú möguleika á að komast í lokakeppni heimsmeistaramótsins. Sú von varð þó ekki að veruleika fyrr en nú í Moskvu. „Það sem gerði gæfumuninn var að við erum með stórt hjarta þar sem þeir hafa breiðan brjóstkassa,“ er haft eftir Atla í Morgunblaðinu. Markið í Moskvu - upp- skrift sem gæti virkað  Halldór Áskelsson segist ótrúlega stoltur af strákunum Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Fótbolti Vinnufélagarnir hjá dk-hugbúnaði hafa eflaust talað um knatt- spyrnu í hádegismat á Greifanum í gær. Halldór Áskelsson er lengst hægri, en aðrir eru f.v. Magnús Björnsson, Brynjar Tryggvason og Egill Áskelsson. Morgunblaðið Ítarlega var fjallað um leikinn á íþróttasíðum 1. júní 1989. 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Ný sending af gallabuxum frá MARC LAUGE Glæsilegur fatnaður fyrir allar konur KJÓLL/TÚNIKA 6.995.- Líka til í svörtu St. s-xxl SÍÐ SKYRTA 10.995.- St. s-xxl Opið kl. 11-16 í dag Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 13.900 • Str. 36-46 Gallabuxur gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Áfram ísland 20-40% afsláttur Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Skoðið LAXDAL.is/yfirhafnir Skipholti 29b • S. 551 4422 FLOTTAR SUMAR YFIRHAFNIR 20% AFSLÁTTUR Matur SMARTLAND MÖRTUMARÍU Viðburðir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.