Morgunblaðið - 16.06.2018, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018
Að setjast niður
og skrifa minning-
argrein um Trausta
er þyngra en tárum
taki. Maður sem hefur verið mér
samferða í gegnum lífið öll mín
fullorðinsár. Hann var ekki bara
mágur og minn besti vinur, hann
var líka besti frændi barnanna
minna og „pabbi tvö“ eins og
Herdís dóttir mín komst að orði.
Samband bræðranna var ein-
stakt, það sá ég strax þegar ég
kom inn í fjölskylduna fyrir 45
árum síðan. Ebbi leitaði til bróð-
ur síns með alla hluti enda var
ekkert sem Trausti gerði ekki
fyrir bróður sinn.
Frá því að við Ebbi stofnuð-
um fjölskyldu mætti telja þær
ferðir þar sem Trausti og Björk
voru ekki ferðafélagar okkar.
Árið 1980 byggðum við Ebbi
sumarbústað í Öndverðarnesi og
nutum samveru við þau bæði
sumar og vetur. Fyrst í okkar
bústað og síðar þeirra eftir að
þau festu kaup á bústað í ná-
grenni við okkur.
Í Öndverðarnesi kynntumst
við golfíþróttinni og þegar
fyrsta golfsettið var keypt var
því skipt bróðurlega á milli okk-
ar fjögurra. Golfið átti brátt hug
okkar allan og efldi það enn
frekar vináttuböndin. Hvorki
var golfferð erlendis ákveðin né
golfhringur í Öndverðarnesi eða
Keili bókaður án þess að kanna
fyrst hug Trausta og Bjarkar til
þess. Fyrstu golfferðirnar á er-
lendri grundu voru farnar til
Skotlands með golfvinahópnum.
Síðar var haldið suður á bóginn
til Suður-Evrópu og Tyrklands.
Þegar Trausti varð sextugur
buðum við honum í afmælisferð
Trausti Rúnar
Hallsteinsson
✝ Trausti RúnarHallsteinsson
fæddist 30. septem-
ber 1947. Hann lést
6. júní 2018.
Útför Trausta
fór fram 15. júní
2018.
til Flórída. Þangað
höfum við farið
saman árlega, enda
frábært að sameina
golf- og verslunar-
ferðir. Ekki er
hægt að segja að
kaupgleðin hafi hel-
tekið Trausta utan
ferða í Edwin
Watts. Alltaf kom
hann þó með í
„mollin“, þó ekki
væri nema til þess að gleðja
mágkonu sína.
Árið 1982 keyptu bræðurnir
fokhelt tvíbýlishús í Kópavogi.
Einhverjir höfðu á orði að svona
nábýli gæti verið óheppilegt.
Það gerði hins vegar ekkert
nema styrkja böndin. Sam-
heldnin var ætíð í fyrirrúmi og
þess nutu Steini, Vignir, Gummi
og Herdís í hvívetna.
Í gegnum árin höfum við Ebbi
verið nokkuð framkvæmdaglöð
bæði hvað varðar endurbætur
eða nýframkvæmdir á húsnæði
okkar. Ekki var mágur minn
alltaf sammála um nauðsyn
þessara framkvæmda en alltaf
var hann mættur fyrstur manna
til að leggja hönd á plóg, jafnvel
þótt verkefnin væru næg heima
fyrir.
Mér dettur í hug máltækið
„lengi má manninn reyna“. Að
fylgjast með Trausta heyja
hvert veikindastríðið á fætur
öðru var sárt en jafnframt aðdá-
unarvert að upplifa æðruleysið
hans gagnvart veikindunum.
Trausti greindist fyrst með
krabbamein árið 1986. Hann átti
þó alltaf góð ár á milli. Við viss-
um að þessi síðasta barátta yrði
óvenju hörð en vorum samt full
bjartsýni enda var engan bilbug
að finna hjá Trausta.
Elsku Björk, það var aðdáun-
arvert að fylgjast með styrk þín-
um í þessum erfiðu veikindum.
Mikið var Trausti lánsamur að
eiga þig að og þú hann.
Við leiðarlok er ljúft að horfa
til baka og minnast samveru-
stunda, vináttu og hlýju. Öll
eigum við ótal minningar um
einstakan gleðigjafa sem lifa
munu með okkur um ókomin ár.
Blessuð sé minning Trausta
Hallsteinssonar.
Guðrún (Gunna mágkona).
Elsku Trausti minn. Nú ert
þú farinn frá okkur og engin orð
fá því lýst hversu mikið ég sakna
þín. Minningarnar eru margar
enda ólst ég upp í nábýli við þig
og átti í miklu samneyti við þig
alla mína bernsku bæði á Hlíð-
arveginum og sumarbústaðnum
í Öndverðarnesi. Þú varst alltaf
að stjana og dekra við mig enda
var ég stelpan þín líka. Ég var
svo heppin að eiga eiginlega tvo
pabba.
Þú hefur alltaf reynst mér vel
og ég vildi að ég hefði náð að
segja þér að ég kallaði þig pabba
númer tvö, bara svona til að
sýna þér hversu 110% vænt mér
þótti um þig. Ég vona samt að
þú hafir áttað þig á því þegar ég
skírði son minn Guðmund
Trausta í höfuðið á þér og
pabba, mönnunum sem mér
þótti vænst um.
Þegar ég hugsa til þín kemur
minningin um „kossinn“ fyrst
upp í huga minn. Í hvert skipti
sem við hittumst þá bentir þú á
kinnina sem þýddi, „ ég vil koss
á kinnina vinan“. Það skipti ekki
máli hversu ung eða gömul ég
var, koss á kinn vildir þú fá og
hann fékkstu að sjálfsögðu með
glöðu geði frá mér. Enda var
ekkert sem hefði ekki viljað
gera fyrir þig.
Það var stundum óþægilegt
að biðja þig um aðstoð og þá sér-
staklega þegar kom að bílavand-
ræðum mínum. Ef ég ætlaði að
reyna að fá að greiða fyrir bíla-
viðgerð þá bentir þú bara á
kinnina og ekki orð um það
meir.
Ég hef lært það í gegnum árin
að þú ert þrjóskur og því sem þú
ákveður verður ekki breytt. Ég
get líka verið þrjósk og man eitt
sinn að ég fékk pabba í lið með
mér svo þú fengir greiðslu fyrir
aðstoð auk kossins góða.
Þú hefur kennt mér svo ótal
margt í gegnum lífið. Það að þú
hafir nú kvatt okkur í síðasta
sinn minnir okkur á að lífið er
núna og við eigum að njóta þess
á meðan við getum.
Elsku Björk, Steini Ingi og
Vignir, mínar dýpstu samúðar-
kveðjur til ykkar allra.
Herdís Guðmundsdóttir.
Elsku Trausti, okkur langar
að þakka þér fyrir að hafa tekið
okkur inn í fjölskylduna þína
strax frá fyrstu kynnum. Við
munum minnast þín með bros á
vör, því eftir sitja yndislegar
minningar um frábæran mann.
Umhyggja, kærleikur og húmor
eru orðin sem okkur detta fyrst í
hug þegar við hugsum til þín.
Við erum þakklát fyrir þann
góða tíma sem við fengum með
þér og kveðjum þig með sökn-
uði.
Helgar stjörnur, háreist fjöll,
himininn og sæinn,
líka norðurljósin öll
og ljúfa vestanblæinn
og allt sem fagurt augað sér
á ævilöngum vegi
bið ég kveðju að bera þér
bæði á nótt og degi.
(Páll Ólafsson)
Nína og Þorbjörn Egill.
Minn kæri vinur Trausti Rún-
ar Hallsteinsson er látinn. Vin-
átta okkar hófst fljótlega eftir
að hann flutti í bæinn ofan af
Akranesi. Svo vel vildi til að
hann hafði fengið vinnu hjá
sama vinnuveitanda og ég. Mér
er það minnisstætt þegar hann
mætti fyrsta daginn til vinnu,
okkur var tjáð að það væri að
bætast nýr maður í hópinn sem
héti Trausti. Þá varð einum að
orði: „Þetta er stórt nafn, von-
andi stendur hann undir því.“
Já, það gerði Trausti svo sann-
arlega. Þarna byrjaði vinátta
okkar, sem hefur staðið í fimm-
tíu og fimm ár. Það var margt
sem tengdi okkur, báðir í skáta-
starfi sem varð til þess að það
fjölgaði fljótt í vinahópnum. Þar
varð til hópur sem kallaði sig
„Félagana“, við félagarnir höld-
um enn hópinn og hittumst til að
gera eitthvað skemmtilegt sam-
an. Það er margs að minnast,
eins og öræfaferðanna um páska
á Reó-trukknum frá Kjartani og
Ingimar eða Víboninum hans
Eiðs. Þarna var göslað yfir
óbrúaðar árnar, sem gekk ekki
alltaf áfallalaust. Sveitaballa-
ferðirnar á gamla Willys-inum
sem við fórum ég, þú og Eiður
eftir langar vinnutarnir hjá
Bæjarútgerðinni. Vinna á hjöll-
unum var ævintýraleg hjá okkur
þremenningunum, mætt í akk-
orðsaðgerð kl. 5 að morgni og
síðan farið á hjallana stundum
fram á kvöld. Eftir að við stofn-
uðum fjölskyldur og keyptum
húsnæði þrengdist fjárhagurinn
enda báðir í iðnnámi. Þá fórum
við að smíða toppgrindur á
Bronco-jeppa í bílskúrnum hjá
foreldrum mínum í Samtúninu.
Þar smíðuðum við líka yfirbygg-
ingarnar á rússajeppana okkar.
Minningarnar eru margar og
kærar, við „Félagarnir“ og fjöl-
skyldur okkar höfum gert svo
margt saman í gegnum tíðina.
Nú hefur verið höggvið skarð í
vinahópinn.
Kæri vinur, ég vil þakka þér
fyrir samfylgdina, það var svo
gott að eiga þig að. Mínar inni-
legustu samúðarkveðjur sendi
ég ykkur, elsku Björk mín, son-
um og fjölskyldum.
Kristján Örn og Þórunn.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir
Rúnar Geirmundsson
Sigurður Rúnarsson
Þorbergur Þórðarsson
Elís Rúnarsson
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
BJARNHEIÐUR GÍSLADÓTTIR
frá Hausthúsum,
Berugötu 14, Borgarnesi,
lést miðvikudaginn 6. júní.
Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti
mánudaginn 18. júní klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
minningarsjóð Einars Darra 100200 fyrir ungmenni í
fíkniefnavanda, reikn. nr 0354-13-200240 kt. 160370-5999.
Auðbjörg Friðgeirsdóttir Úlfar Ragnarsson
Þórarinn M. Friðgeirsson Ásdís H. Júlíusdóttir
Arnar Þ. Friðgeirsson
Guðjón Viggósson og fjölskylda
ömmu og langömmubörn
Elsku ættingjar og vinir. Innilegar þakkir
fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar okkar ástkæru
GUÐBJARGAR ERLU
HARALDSDÓTTUR,
Hólagötu 26,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Viðar Einarsson
Matthildur Einarsdóttir Ríkharður Zoega
Guðný H. Einarsdóttir
Ágúst Ómar Einarsson
Einar Birgir Einarsson Guðrún Snæbjörnsdóttir
Halla Einarsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Ástkær faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐBJÖRN AXELSSON,
Hraunvangi 1, Hafnarfirði,
áður Sóltúni 7, Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum fimmtudaginn
14. júní. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju fimmtudaginn 21. júní klukkan 13.
Innilegar þakkir til hjúkrunarfólks fyrir einstaka umönnun. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Elísabet Guðbjörnsdóttir Axel Guðbjörnsson
Björn Jónasson Ólöf Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGÞÓR HÁKONARSON,
Arnarási 1, Garðabæ,
lést af slysförum miðvikudaginn 13. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Lilja Bragadóttir
Bragi Sigþórsson Guðrún S. Hlöðversdóttir
Hörður Sigþórsson
Hákon Sigþórsson Kristín Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn