Morgunblaðið - 16.06.2018, Page 33

Morgunblaðið - 16.06.2018, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 ✝ Ásdís Valdi-marsdóttir fæddist 9. septem- ber 1933 í Hafnar- firði. Hún lést á St. Fransiskusspítala í Stykkishólmi 7. júní 2018. Foreldrar Ásdís- ar voru Valdimar Össurarson frá Kollsvík, f. 1896, d. 1956, og Jóna Bjarney Jónsdóttir frá Auðkúlu í Arnarfirði, f. 11. október 1896, d. 1985. Hálfsystkini Ásdísar í móður- ætt voru Sverrir, f. 1920, d. 2001, Bjarney Jóna, f. 1922, d. 2004, og Helga Bogey, f. 1924, d. 1990. Al- systkini Ásdísar eru Valdimar, f. 1935, og Anna Margrét, f. 1938. Árið 1958 giftist Ásdís Þor- varði Jóhanni Lárussyni, skip- stjóra í Grundarfirði. Hann var frá Krossnesi í Eyrarsveit, f. 1938, d. 2001. Þau byggðu hús sitt á Hlíðarvegi 21 í Grundar- firði og ráku útgerð í samvinnu við Guðmund Jóhannesson og konu hans, Jóhönnu Pálmadótt- ur. Ásdís og Þorvarður slitu sam- vistum 1978. Nokkrum árum síð- ar flutti Ásdís til Reykjavíkur þar sem hún starfaði lengst af sem saumakona. Ásdís fluttist aftur til Grundarfjarðar árið 2005. Börn Ásdísar voru sjö. 1) Kolbrún Sjöfn f. 1951, sam- býlismaður Ólafur F. Magnússon, eiginkona Sjöfn Sverrisdóttir f. 1964. Börn þeirra eru Hlynur f. 1987, eiginkona María Ósk Ólafs- dóttir f. 1982, synir þeirra eru Ólafur Geir f. 2012 og Vilhjálmur Freyr f. 2014. Hafdís Dröfn f. 1991, unnusti Kristof Van den Berghe f. 1978, dóttir þeirra er Emma Van den Berghe f. 2015. Gréta f. 1997. 6) Sævör f. 1964, eiginmaður Einar Guðmundsson f. 1959. Börn þeirra eru Sævarður f. 1986, unnusta Þóranna Hrönn Þórsdóttir f. 1985, sonur þeirra er Bjarki Valdimar f. 2015. Jó- hannes Fannar f. 1989, unnusta Berglind Marteinsdóttir f. 1986. Valdimar f. 5. 1991, d. 2009. Jón Þór f. 1993, unnusti Jón Bjarni Óskarsson f. 1995. Snædís Ólafía f. 1995. 7) Jón Bjarni f. 1967, eigin- kona Anna Dóra Markúsdóttir f. 1965. Börn þeirra eru Saga f. 1991, Þorvarður f. 14. 1992 og Sól f. 29. 2009. Stjúpsonur Jóns er Markús Ingi Karlsson f. 1986, unnusta Elsa Fanney Grétarsdóttir f. 1979, börn þeirra Benjamín Æsir f. 2013 og Hilmir Hrafn f. 2015. Stjúpsynir Markúsar eru Hafþór Orri Harðarson f. 1997, sonur hans Róbert Aron f. 2015, og Gabriel Berg Rúnarsson f. 2006. Útför Ásdísar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 16. júní 2018, og hefst athöfnin klukkan 11. f. 1952. Börn Kolbrúnar eru Ásdís f. 1972, eiginmaður Stefán Þórðarson f. 1973. Börn Ásdísar eru Kristinn Aron f. 1993, Gunnar Valdi- mar f. 1997, unn- usta Ásdís Birta Al- exandersdóttir f. 2000, Daníel Breki f. 2000 og Alexand- er Nói f. 2010. Þorvarður Jóhann f. 1975, eig- inkona Árný Hlín Hilmarsdóttir f. 1974. Börn Þorvarðar eru Kol- brún Harpa f. 2002 og Hilmar f. 2010 og stjúpdóttir hans er Hlín Björnsdóttir f. 2001. 2) Valdimar f. 1958, d. 1989. Börn hans eru Svanur Þór f. 1975, dóttir hans Heiðrún Hel- ena f. 2011, Ólöf Hugrún f. 1982, unnusti Hjörtur Örn Eysteinsson f. 1982 og Valdimar f. 1989. 3) Lárus Guðbjartur f. 1959, eiginkona Pia Bertelsen f. 1962. Börn þeirra eru Anna María f. 1984, unnusti Ingvard Larsen f. 1984, synir þeirra eru Kristoffer Larus f. 2011 og Kristian Larus f. 2015. Jóhann f. 1988. 4) Jóhannes Guðjón f. 1961, eiginkona Kolbrún Reynisdóttir f. 1964. Synir þeirra eru Lýður Valgeir f. 1988, Hinrik f. 1992, unnusta Björg Árnadóttir f. 1993, og Sæþór f. 1996. 5) Sigurður Ólafur f. 1963, Elsku amma Ásdís. Þá ert þú horfin frá okkur, amma mín, sem hefðir orðið 85 ára í september. Fjölskyldan var þér allt og þú varst svo ánægð að vera innan um okkur öll. Þú varst stolt af öllum barnahópnum þínum, mundir af- mælisdaga allra og skrifaðir fal- legustu afmælis- og jólakort, sem hægt var að fá. Ávallt varstu með opinn faðm, tilbúin að knúsa okk- ur þétt og innilega. Minningar úr æsku eru margar, til dæmis man ég að þegar þú breiddir yfir mig fyrir svefninn þá var mér pakkað með þvílíkri list inní sængina að það hvarflaði ekki að mér að fara framúr eftir það. Við höfum ekki langt að sækja púkaskapinn, því þú varst alltaf að sprella og hlát- urmildin leyndi sér ekki. Þú varst bindindismanneskja og þannig góð fyrirmynd fyrir alla. Þú varst þeim gáfum gædd að geta saumað og teiknað á undraverðan hátt og ófá handavinnan sem ég fékk hjálp með frá þér. Það hvað þú varst boðin og búin að aðstoða mig með strákana þegar þeir voru litlir er mér svo óendanlega dýrmætt. Elsku amma, ég er þakklát fyr- ir þær stundir sem við áttum sam- an. Þín verður sárt saknað, minn- ingar um þig lifa áfram með okkur. Ég kveð ömmu með bæninni sem hún las fyrir mig þegar ég var lítil: Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Amma mín, ég elska þig og bið góðan Guð að geyma þig, eins og þú sagðir svo fallega sjálf þegar þú signdir yfir okkur á kvöldin fyrir svefninn. Ásdís Jónsdóttir. Elsku amma Ásdís. Fyrsta minningin sem kemur upp í huga okkar þegar við hugs- um til baka eru heimsóknirnar til þín á Lindargötunni og þar á eftir í Ljósheimum og að sjálfsögðu þau skipti sem þú passaðir okkur. Minnisstæðast er dótið sem þú áttir og við lékum okkur mikið með, dúkkan Anna Lísa og öll bollastellin og sullið í kringum þau. Þér þótti við nú oft fara ansi harkalega með dótið, en þú neit- aðir okkur aldrei um neitt og það breyttist ekkert eftir að börnin okkar fóru að koma í heimsókn til þín. Það var alltaf svo gott að koma til þín, þú varst alltaf svo hlý og góð, og áttir alltaf til bestu knúsin. Við gleymum aldrei öllum vöfflukaffitímunum hjá þér eftir að þú fluttir vestur, þó svo að þú hafir aldrei sest niður fyrr en allir voru búnir að borða og á leið heim, en það var einmitt þá sem var allt- af svo notalegt að setjast niður með þér og spjalla. Þú varst alltaf svo jákvæð, fordómalaus og sást allt gott í öllum. Þú varst alltaf ung í anda og lést ekkert stoppa þig, við gleym- um aldrei kaffiboðinu þegar amma fór í splitt. Þú eltir alltaf draumana þína og naust þess að læra eitthvað nýtt til að gera í höndunum, enda ein sú flinkasta í bransanum og ófáar buxurnar sem þú styttir fyrir okkur, svo ekki sé talað um vettlingana og sokkana sem þú hefur prjónað. Við kveðjum ömmu með sorg og söknuði, en í hjarta okkar hlýj- um við okkur yfir dýrmætum minningum og pössum vel upp á þær. Takk, amma, fyrir að auðga líf okkar og þá mikilvægu reynslu og viðhorf sem þú hefur kennt okkur. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni, veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Guð geymi þig. Hlynur Sigurðsson, Hafdís Dröfn Sigurðardóttir og Gréta Sigurðardóttir. Amma mín Ásdís var með ein- dæmum jákvæð manneskja, stutt í hláturinn og húmorinn og það var alltaf hægt að gantast í henni og gera góðlátlegt grín. Amma hafði ekki mikið á milli handanna á búskaparárum sínum og hefur það eflaust oft verið flók- ið að sjá fyrir barnastóðinu stóra. Kannski var þetta að hluta til ástæðan fyrir því að í gegnum tíð- ina sankaði hún að sér öllu mögu- legu og ómögulegu, þó allra helst ýmiss konar fataefni; ströngum og tvinnum, tölum og spottum. Allt var þetta gull í augum ömmu, sem var afskaplega laghent og vand- virk saumakona. Vandvirknin fólst þó stundum í því að vera ákaflega lengi að hlut- unum, eins og ég komst að þegar ég bað hana um að sauma á mig kjól fyrir árshátíðina mína þegar ég var í 9. bekk í grunnskóla. Efn- ið var fagurblátt og glansandi, svokallað sundbolaefni eins og var mjög móðins í kringum 1997. Kjóllinn varð á endanum hinn glæsilegasti, eins og hennar var von og vísa, en var reyndar ekki tilbúinn fyrr en síðla kvölds, dag- inn fyrir árshátíðina. Ég gleymi því ekki þegar amma var að flytja úr Reykjavík aftur vestur í Grundarfjörð. Ég mætti í Sólheima í Reykjavík, þar sem amma bjó, til að aðstoða við flutningana. Þar var fyrir stór hópur ættmenna, því þó að amma hafi ekki endilega verið auðug í krónum talið var hún stóreigna- kona þegar kom að fjölskyldunni. Það sem blasti við mér á bíla- planinu fyrir utan fjölbýlishúsið sem amma bjó í var búslóð sem sennilega hefði dugað þremur fjöl- skyldum! Ég fékk hláturskast. Vel gekk að ganga frá og græja sendi- bílinn en þegar á leið kom nokkuð óvænt á daginn. Amma tilkynnti okkur að við þyrftum eiginlega að fara á einn annan stað. Annan stað? Já, annan stað. Upp úr dúrnum kom sú stað- reynd að amma Ásdís átti nefni- lega leynigeymslu í Bústaðahverf- inu, hún hafði leigt bílskúr af ágætu fólki og geymdi þar ýmis- legt sem alls, alls ekki mátti henda, enda voru þetta gersemar sem skyldu allar með vestur! Það er eiginlega ekki hægt að minnast ömmu án þess að nefna að hún var best. Langbest í flest- öllu sem hún tók sér fyrir hendur í gegnum tíðina, hvort sem það var handbolti, bakstur, leiklist, hann- yrðir, að sjá langt með arnarsjón eða tala erlend tungumál, almenn- ur fríðleiki, söngur eða hvaðeina. Amma var ævinlega, að eigin mati, langsamlega langbest allra í öllu saman. Að vita fyrir víst að þú ert vel- komin er dýrmætt og við vorum ávallt velkomin til ömmu. Hún var mikil reglumanneskja hvað varðar áfengi og þegar við barnabörnin eða börnin hennar grínuðumst með að hún væri nú alltaf á djamminu þá vorum við oftar en ekki kölluð „púkar“ og svo hlegið dátt. Mér finnst það sjást best á börnunum hennar, föðursystkin- um mínum, hvernig lundarfarið létta og jákvæðnin hefur leitt nið- ur í afkomendurna. Fyrir mér vissi það, og veit alltaf, á hlýju og gæsku að fara vestur, að sækja heim fólkið mitt í Grundarfirði. Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir. Mikill söknuður, en á sama tíma mikið þakklæti kemur mér í hug þegar ég kveð hana Ásdísi ömmu. Ég tel mig mjög heppinn að hafa átt Ásdísi Valdimarsdóttur sem ömmu, því betri ömmu er varla hægt að hugsa sér. Ég myndi lýsa ömmu sem hlýrri og góðri manneskju sem var á sama tíma mjög ákveðin, sem er nauðsynlegt þegar þú þarft að hafa stjórn á stærðarinnar krakkaskara. Hún sagði oft að hún væri rík kona, og það var hún sannarlega. Amma átti 7 börn, mörg barna- börn, ennþá fleiri barnabarnabörn ásamt slatta af ská-ömmubörnum, enda máttu allir sem vildu kalla hana ömmu og hún var meira en til í að vera amma þeirra allra. Amma hafði mjög gaman af því að segja sögur og rifja upp minn- ingar frá gömlum tímum, sem hentaði okkar sambandi mjög vel. Ég hafði mjög gaman af því að mæta í vöfflukaffi til ömmu og borða af bestu lyst meðan ég hlustaði á hana segja sögur af sjálfri sér og fleirum. Sögurnar voru langflestar jákvæðar og jafn- vel hetjusögur af henni sjálfri. Með aldrinum kunni ég betur og betur að meta sögurnar hennar ömmu og ég lærði það af ömmu að það er betra að einblína á góðu minningarnar. Lífið var ekki áfallalaust hjá ömmu, en hún lét það ekkert stoppa sig og ákveðni hennar og þrautseigja hjálpuðu henni í gegn- um lífið. Góðar minningar um yndislega manneskju er það sem Ásdís amma skilur eftir sig. Jóhannes Fannar Einarsson. Nú er hún Ásdís Valdimars- dóttir fallin frá. Við sem ólumst upp í Grundarfirði eftir miðja sein- ustu öld, munum vel eftir henni Dísu Varða. Hún var einstaklega glæsileg kona hún Ásdís, greind, vel lesin, lífleg og skemmtileg, yndisleg í alla staði og síðast en ekki síst, höfðingi heim að sækja. Á uppvaxtarárum mínum var ég fastagestur á Hlíðarveginum, en við Jói sonur Ásdísar erum jafn- aldrar og æskuvinir. Síðast þegar ég hitti Ásdísi, þá hafði hún á orði að fáir hefðu nú stútað jafn mörg- um rjómatertum hjá sér á Hlíð- arveginum eins og ég. Það var reyndar í áttræðisafmæli hennar, fyrir fimm árum síðan, sem haldið var uppá í Samkomuhúsinu í Grundarfirði, og sennilega hef ég tekið til mín nokkrar rjómatertu- sneiðarnar þar í viðbót. Á kveðjustund er margs að minnast. En eitt af því sem stend- ur ljóslifandi í huga mér er kosn- ingafundur í Samkomuhúsinu fyr- ir vestan, í aðdraganda sveitar- stjórnarkosninganna 1978. Hún Ásdís var gallharður mál- svari þeirra sem minna mega sín í okkar ágæta þjóðfélagi. Þegar kom að þessum málum, gat hún svo sannarlega verið föst fyrir og talaði þá tæpitungulaust. Það gerði hún svo sannarlega þetta kvöld svo eftir var tekið. Þarna gustaði af frúnni, rökföst og fylgin sér. En eftir að hafa skammað þá sem voru við stjórn hressilega, tók hún hlýlega utan um þá, þannig skildu allir sáttir. Þannig var hún Ásdís. Nú kveðjum við þessa góðu konu, eftir löng og yndisleg kynni. Ég sendi innilegar samúðarkveðj- ur til barna hennar, Kolbrúnar, Lárusar, Jóhannesar, Sigurðar Óla, Sævarar og Jóns Bjarna, til tengdabarna, barnabarna og fjöl- skyldunnar allrar, en minningin um þessa glæsilegu og góðu konu mun svo sannarlega lifa áfram í hugum okkar. Bjarni Júlíusson. Ásdís Valdimarsdóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Kristín IngólfsdóttirSverrir Einarsson Margrét Á. Guðjónsd. Hannes Ó. Sampsted Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNATAN ARNÓRSSON frá Ísafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn 11. júní. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 21. júní klukkan 13. Þóra Benediktsdóttir Kristjana Jónatansdóttir Guðmundur Bjarnason Valur Benedikt Jónatansson Kristín B. Aðalsteinsdóttir Arnór Jónatansson Kristjana Ósk Hauksdóttir Þóra Jóna Jónatansdóttir Erlingur Jón Valgarðsson Rúnar Már Jónatansson María Níelsdóttir og afabörn Ástkær sonur minn, stjúpsonur, bróðir, barnabarn og frændi, KRISTJÁN STEINÞÓRSSON, Gvendargeisla 19, lést laugardaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafar- holti miðvikudaginn 20. júní klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð fyrir ungmenni í fíkniefna- vanda, reiknnr. 0354-13-200240, kt. 160370-5999. Dagbjört Þórunn Þráinsdóttir Fikri Aðalheiður Rósa og fjölskylda Guðrún Tinna Sandra Mujiatin Viktor Abdullah Kristján Þór Þórisson Þráinn Oddsson Guðrún Guðmundsdóttir Kristján Bergmann Steinþór Máni Guðný Helga Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI JÓNSSON rafvirkjameistari, Freyvangi 20, Hellu, lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 5. júní. Útförin fer fram frá Oddakirkju föstudaginn 22. júní klukkan 14. Esther Markúsdóttir Svava Þuríður Árnadóttir Jón Árnason Sigurður Grétar Árnason Sandra Árnadóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, RÓSBJÖRG SIGRÍÐUR ÞORFINNSDÓTTIR frá Raufarhöfn, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 13. júní. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 20. júní klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Gunnar Gunnarsson Jóna Á. Jóhannsdóttir Þorfinnur Jóhannsson Heiðar B. Jónsson Margrét R. Lýðsdóttir Birna S. Lýðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.